Bloggfærslur mánaðarins, júní 2007

KARLABOLTI í klípu!

Höfundur fréttarinnar hér hefði nú mátt vanda sig betur!
Hróður íslenskrar KARLAKNATTSPYRNU eykst ekki með þessum úrslitum, né þeim síðustu hjá KARLAlandsliðinu, en í KVENNAknattspyrnunni er bara nákvæmlega öfugt upp á teningnum, árangur bæði Vals og Breiðabliks í Evrópukeppninni og nú landsliðsins að undanförnu, hafa SANNARLEGA AUKIÐ hróður íslenskrar knattspyrnu! Ættum við ekki bara frekar að leggja áherslu á það, frekar en hitt?
Þeir tæplega 6000 sem mættu á völlin á leikinn gegn Serbíu, eru áreiðanlega sammála mér um það!
mbl.is Valur tapaði fyrir Cork City, 0:2
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gott ef satt reynist!

Já, sama er mér þótt svona fyrirbærum verði komið fyrir kattarnef með lögum, frjálslyndum manninum sem ég annars er.
EN...
Ekki er sopið kálið þótt í ausuna sé komið, það skildu menn nú muna rækilega!
Og spurningar lifa.
En hvað gerir Gunnar Ingi Birgisson nú?
Og um hvað hefur Ísafold að skrifa framvegis!?
mbl.is Einkadansinn líður undir lok
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jónsmessunótt.

Jæja, þá er Jónsmessunóttin liðin og hún var bara viðburðarrík á þessum bæ!
Fór nefnilega hnakkakertur og hreint ekki ósprækur út í minn stóra garð íklæddur engu nema eigin hári og velti mér vel og rækilega upp úr volgri og votri dögginni!
Og hvers ég óskaði mér?
Nú auðvitað, að 10 flottustu og villtustu meyjarnar í næstu húsum gerðu slíkt hið sama! Þar mistu landsmenn aldeilis af flottum leik, allt Sjónó og STöð 2 að kenna, sofa alltaf á verðinum þegar "Blotnar" einhvers staðar!
En, aaaaaaahhhhh, mikið er ég sæll í dag!

Rosalegt!

Lengi hefur legið þurrt,
lífvana nú allur hagi.
Suðurland því svífur burt,
sýnist mér í heilu lagi!

En í alvöru talað, svona moldrok er alveg rosalegt og bráðnauðsynlegt að bregðast við því!


mbl.is Moldrokið á Suðurlandi sést utan úr geimnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Afrek!

Já, vann stórafrek í gærkvöldi!
Lallaði þungstígur út úr húsi, inn í minn stóra garð og að gúmmífyrirbærinu, sem kallast garðsslanga!
tók hana upp eftir strangri leiðsögn Mútter I, festi á krana, gekk af sveifinni góðu og snéri!
Og viti menn, Það kom vatn!
Einlægur ásetningur síðustu fimm vikna var orðin að veruleika.
Húrra fyrir mér!!!
Vökvaði ég svo?
Nehei, það hefði nú skyggt á afrekið sjálft, stendur til innan fimm vikna!

SIGURPÁLL GEIR SVEINSSON!

Hvað gengur eiginlega á hjá íþróttafréttamönnum og það ár eftir ár? Hann Siggi Palli, Sigurpáll Geir Svinsson, hefur í rúman áratug verið einn af allrabestu kylfingum landsins, m.a. unnið þrjá Íslandsmeistaratitla. Hann er því sömuleiðis einn af helstu afreksíþróttamönnum landsins, er nú hægt og bítandi að marka sér feril sem atvinnumaður erlendis. En, nánast á hverju ári þegar golftímabilið er hafið, má hann einhverra furðulegra hluta vegna, sæta því að farið sé aftur og aftur rangt með nafnið hans!? Þessi frétt er alveg kostuleg, mynd af kappanum þar sem hann er vissulega réttnefndur, en svo í fréttinni sjálfri er allt í einu allt annar maður, en þó nafntogaður fyrverandi handboltagarpur úr Þór m.a. komin til sögunnar, Sigurpáll Árni Aðalsteinsson!? (alltaf kallaður Árni Palli!) Strangt til tekið er Siggi Palli svo ekki Akureyringur, þó ungur hafi hann flust í bæinn og mótast sem golfleikmaður að mestu hér, upprunnin nefnilega úr Skagafirðinum og hygg ég að sveitungar hans þar vilji halda því á lofti! En ekki er allt upptalið enn! Í hádegisfréttum á Stöð 2, tókst nefnilega "Eyjatröllinu" Þorsteini Gunnarssyni íþróttafréttamanni, að brengla nafnið á Sigga Palla líka! Sigurgeir Páll SVeinsson, sigraði á ARtic Open!? Hvað er eiginlega í gangi með þessa íþrótafréttamenn, ég spyr bara aftur!? En Siggi Palli vann mótið já enn einn ganginn í nótt, á flottu skori, til lukku með það!
mbl.is Tveir fyrrum Íslandsmeistarar í baráttunni á Arctic open
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"En þó var ekki öll nótt úti enn"!? - Málvitund hrakar.

Í makindum mestu og sakleysi, kúrði ég við sjónvarpstækið mitt fyrir nokkrum dögum og fylgdist með fréttum STöðvar 2. Þá voru í hámæli Bíladagarnir svonefndu hér í bæ, en ýmislegt gekk nú á, líkt og fyrir ári að þessir dagar voru fyrst að ég held haldnir.
Hin skelegga fréttakona, Lára Ómarsdóttir (Ragnarssonar) las réttina og taldi upp hina leiðu atburði er átt höfðu sér stað, slagsmál fyrir og inn á tjaldsvæðinu að Hömrum, árás á tjaldstæðisvörð og áreitni við lögreglu. Og svo kom þetta í lok upptalningarinnar, eitthvað á þessa leið!
"En þó var ekki öll nótt úti enn"!?
Nú er ég ekki einn af þeim sem eltist við allar villur sem hugsast geta hjá fjölmiðlafólki, en geri þá kröfu, að það komi sínum texta nokkuð sómasamlega frá sér. HItt er ég gagnrýnni á og hef satt best að segja meiri áhyggjur af, þegar málvitund þess og raunar allra annara, fer hreinlega að brenglast eins og í þessu dæmi!
Hér átti fréttakonan annars hin ágætasta, auðvitað við og taldi sig segja, að ekki væri allt upptalið enn af uppákomunum!
Að öll nótt sé ekki úti enn, hefur hins vegar allt aðra og jákvæðari merkingu, nefnilega að enn sé von á betrum, þar sem eitthvað lítur ílla út, þó útlitið sé dökkt, þá er ekki öll nótt úti enn!
Ætla ég bara rétt að vona, að Láru hafi nú verið bent á þetta, jafnvel að karl faðir hennar hafi tekið eftir og leiðrétt sína góðu dóttur!
Annað dæmi og miklu verra og útbreiddara, er hin "útíhött" kveðja, sem ég vil kalla svo, er t.d. starfsfólk hjá ýmsum fyrirtækjum og stofnunum hefur tileinkaðsér.
Nefnilega að svara kveðjunni "Þakka þér fyrir" með "Gjörðu svo vel"!?
Nú hef ég ekki hugmynd um hvernig þetta komst á í upphafi, en viðkomandi gætu alveg eins svarað mér þakkarkveðju t.d. "Það er út í hött"!
Það væri nefnilega jafnmikið út í hött!

Listasumar, Kastljóssdjass og Ronnie Earl!


Í Kastljósi gærkvöldsins komu fram nokkrir djassarar, m.a. hinn ágæti píanisti Agnar Már Magnússon og tóku lagið í tilefni af upphafi Listasumarsins hér á Akureyri, sem jafnan hefst á Jónsmessunni, 24. júní, og líkur í enda ágúst með Akureyrarvöku.
Ekki úr vegi að minna alla bloggara á þessa miklu listaveislu!
Það sem vakti þó meiri athygli mína á spili djassarana, var lagið sem þeir tóku, gamall "Standarður" eins og Jón Múli heitinn hefði orðað það, Moanin´!
ER nefnilega í sérstöku uppáhaldi hjá mér í flutningi hins frábæra Texasblúsara Ronnie Earl!
Útgáfa hans af laginu á tónleikaplötunni Blues And Forgivenes er algjört afbragð!
Fann skífuna í hvelli á eftir þættinum og hækkaði vel í græjunum!
Ronnie annars mikill snillingur gítarsins, fyrst og síðast auðvitað blúsmaður besti, en hefur í gegnum tíðina á sínum fjölmörgu plötum, tvinnað sérlega vel saman djass og latnesk áhrif svo úr hefur orðið persónulegur afburðastíll!
Kynntist honum fyrst sem meðlim í fornfrægri Texassveitinni Room Full Of Blues, sem enn sveiflast, en lengst af hefur Ronnie starfrækt sína eigin sveit sem kallast The Broadcasters. Meðmörgum öðrum kröftum og svo undir sínu nafni einungis, hefur hann svo líka starfað og gefið út plötur.
Eins og margur spilarinn, Féll Ronnie ungur fyrir BAkkusi, en rétti úr kútnum og starfaði lengi eftir það sem boðberi gegn bölinu! (og gerir e.t.v. enn?)

Fagnað með stolti!

Það er ekki ofsögum sagt, að ég hafi fyllst nýju og endurnærðu stolti hvað fótbolta snertir, eftir annars vegar glæstan sigur Íslenska kvennalandsliðsins á Frökkum í sl. viku og svo sér í lagi núna í kvöld, er stórsigur vannst á Serbíu, 5-0!
Umgjörðin enda frábær, fallegt síðkvöld og fleiri áhorfendur en nokkru sinni á kvennalandsleik!
Og það sem meira er, yfirgnæfandi líkur orðnar á að liðið nái þeim merka árangri að leika í úrslitakeppni EM árið 2009!
Það er reyndar nokkuð skrýtið hvað undankeppnin dreifist á langan tíma, næsti leikur ekki fyrr en í ágúst, úti gegn Slóveníu, en næsti heimaleikur ekki fyrr en eftir um ár!?
En hvað sem því líður, fögnuður og gleði með sönnu stolti fer um mann eftir svona glæstan sigur!
mbl.is Fimm marka sigur Íslands á Serbum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Konur, Ó konur!

Í tilefni dagsins, birtast hér nokkrar hendingar sem settar voru saman fyrir margt löngu.
Til hamingju með daginn!
.

Konur ég elska, dýrka og dái,
svo dásamlegar á hverju strái.
Þó aðallega ég eina þrái,
á aðrar stundum snöggvast gái.

Þær margar stuttum kjólum klæðast,
svo kenndir manna óðar glæðast.
Þá finnst mér best í burt að læðast,
ella “blautar línur” fæðast.

En siðavandar aðrar eru,
aldeilis í raun og veru.
Voldugar að hætti Heru,
holdi sjaldnast flagga beru.

Svo eru hinar, mitt á milli,
sem mestrar kannski njóta hylli.
Þær sjaldan valda svaka trylli,
en sveinum veita gleðifylli.

Já, stórar litlar, stinnar mjúkar,
þær standa í röðum, trúa því mátt.
Feitar og mjóar, frískar og "sjúkar",
svo fallegar allar, hver á sinn hátt.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Pælt um heima og geima

Höfundur

Magnús Geir Guðmundsson
Magnús Geir Guðmundsson
Áhugamaður um flesta hluti.

Nýjustu myndir

  • wmftcs
  • mgg
  • ...mg2_251805
  • ...mg2_251804
  • ...mg2

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 218024

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 24
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband