Bloggfærslur mánaðarins, september 2007

Hið alvarlegasta mál!

EF þetta verður upphafið af fleiri "Sprengingum" í þessum efnum, sýnist mér vera margþætt svartnætti framundan!
FEgrunarlækningar færu auðvitað smátt og smátt í vaskin og "Fegurð mannlífsins" færi þar að leiðandi aftur um aldir, undir yfirborð þykkra klæða í forvarnarskyni við "Býflugnaplágunni miklu"!
Að vísu segir í fréttinni, að konan sé mjög grönn og allt það, en það skýrir ekki hví "Blaðran sprakk" samt, ef hún á að þola allt að 200 kg. þrýsting!?
Já, bara hið alvarlegasta má sannarlega, sem bregðast verður hið skjótasta við!

Slegnar eru hrundir harmi,
um heimsins ból.
Ei meir flíka, "Fylltum barmi",
í flegnum kjól!


mbl.is Býfluga gerði gat á fyllingu í brjósti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Við unnum, en þetta var nú heppni!

Það verður já að viðurkennast, heppnin var með okkur og jú aldrei þessu vant!
Þeir n-írsku hefðu alveg átt skilið stig og kannski öll þrjú, en þetta er gamla, já eldeldgamla sagan, þetta snýst um að skora mörk!
mbl.is Ísland sigraði Norður-Írland 2:1
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gömul saga og ný!

Ófullnægjandi aðstaða´fyrir íþróttafréttamenn og yfir höfuð aðra blaðamenn á hinum ýmsu opinberu stöðum, hefur alltaf annars lagið skotið upp kollinum svo lengi sem ég man, allt frá því allavega frá því ég var sja´lfur í greininni á milli 1990 til 1999! menn virðast alltaf hugsa síðast um þessa hlið,ekki þá hvað síst þegar íþróttamannvirki eiga í hlut!
Annars er ég varkár sem fyrr varðandi góð úrslit í leiknum, að ég tali nú ekki um ef hálft eða heilt liðið hefur verið í flensustríði síðustu daga!
Vona það besta, en spái:

Ísland - N-Írland 1-2!


mbl.is Yfirlýsing frá KSÍ og SÍ
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Var sárt saknað!

Á lokasprettinum í deildinni og alveg sérstaklega í Meistaradeildinni, má segja að Liverpool hafi saknað Aurelio sárlega ásamt Harry Kewell upp á fjölbreyttari sóknarmöguleika ekki hvað síst upp vinstri kantinn! Kannski réð fjarvera þeirra úrslitum í leiknum við AC Milan, en þá sárvantaði ógnum vinstra megin, meðan Pennant var mjög góður hægra megin!
N'u er bara að sjá hvort bæði brasilíumaðurinn og Kewell ná yfir höfuð að komast í liðið, hinn ungi Babel lofar svo góðu auk þess sem Rise hefur staðið sig vel og svo auðvitað Ardeloa alveg framúrskarandi sem hægri fótar "Afleysingarbakvörður" vinstra megin!
En ef hann nær sér á strik, þá er hann bara enn einn pósturinn í gríðargóðum og sterkum 24 manna hóp!
mbl.is Aurelio af stað með Liverpool á ný
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ástarvikan í útrás?

Já, gæti verið að án þess að nokkur hafi frétt af því, að hin þokkafulla Soffía VAgns í Bolungarvík, sé komin á full í útrásinni, sé komin alla leið til rússlands með sitt frækna fagnaðarerindi!?
Ég get allavega ekki varist þeirri hugsun, er ég les þessa skemmtilegu fregn austan úr Rússíá!
Gott þegar eitthvað svona jákvætt birtist þaðan, ekki bara að þeir séu að færa sig aftur upp á skaftið í herbrölti og að ögra okkur Íslendingum með herflugi nálægt landinu!

Í svölu septemberhúmi,
nú sannlega mikið er kysst
Er galvaskir Rússar í rúmi,
"Reiðmennsku" keppa í list!


mbl.is Fá verðlaun fyrir barneignir eftir 9 mánuði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eiðsvísa!

Og í beinu framhaldi af síðustu færslu!

Mörg er sálin mjög nú leið
og "maske" reið?
En það er engin þjóðarneyð,
þótt vanti Eið!


Og hví skildi hann heldur gera það!?

Mikið fjári er þetta orðið leiðinlegt allt þetta kjaftæði um þennan fjarskylda frænda minn!
Hann er að jafna sig á viðkvæmum meiðslum, sem gætu þess vegna tekið sig upp, hefur lítið sem ekkert æft nú í töluverðan tíma og þar með ekkert spilað, auk þess sem þeir leikmenn sem spiluðu á laugardaginn stóðu sig vel, í stórum dráttum alla vega!
Nú er þetta auðvitað nýr leikur með allt öðrum forsendum og menn náttúrulega komnir í "Gamla og góða bjartsýnisgírinn", en hjálpi mér!
Þessar "Spekúlúsjónir" eru út í hött, ég tala nú ekki um eftir það sem á undan er gengið með Eið og "Samkomulagið mikla" við Barcelona frá því á laugardaginn!
Eigum við öll ekki bara að hugsa um að líkt og með Spánverjaleikinn nái liðið góðum úrslitum, í stað þess að vera endalaust að spá í hvort eða hvað gerist með Eið!?
Í ljósi reynslunnar er ég þó ekki bjartsýnn, burtséð frá Eið Smára Guðjónsen með eða ekki, tap kæmi mér ekki á óvart!
mbl.is Eiður byrjar ekki inná gegn Norður-Írum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Misskilningur!

Þessar vangaveltur hérna um rooney eru auðvitað tómur misskilningur, sem auðtrúa Man. Utd aðdáendur telja auðvitað að sé sannleikur og að strákstaulinn sé með betri bein en aðrir!
Sannleikurinn er nú hins vegar sá, að hann er svo óþroskaður ennþá,það ekki síður líkamlega en andlega, sem barnsleg hegðun hans á velli sínir og öll rauðu spjöldin, að ekki þarf nema smá hnjask eins og að stíga ofan á ristina á honum eða leggjast aðeins á bakið á honum, til að eitthvað gefi sig!
En einmitt af því hann hefur ekki tekið út þroskan (og gerir það sja´lfsagt aldrei alveg með Man Utd. á andlega sviðinu allavega!) þá eru beinin enn í mótun og gróa því hraðar! Þetta er náttúrulega vel þekkt í læknisfræðunum, börn brotna oft mjög ílla, en geta sem best náð fullum bata á ekki löngum tíma!
mbl.is Rooney með Man.Utd strax um næstu helgi?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Delluspá!

Að Akureyrarliðunum sé spáð svo neðarlega er bara í besta falli óskhyggja, í versta falli della! Allavega hvað karlaliðið varðar! Nefnilega engin tilviljun að strákarnir fóru alla leið í úrslitin á opna Reykjavíkurmótinu um dagin gegn Stjörnunni!Kannski eru þó stelpurnar svona slakar, en hef samt trú á þeim, þær reyni allavega að kveða þessa spá í kútinn!
og VAl bara spáð þriðja sæti í kvennó? Ein opinmynt "Blaðskella" örugglega að minnsta kosti, ekki sammála að það verði niðurstaðan!
mbl.is Stjörnunni spáð tvöföldum sigri í vetur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dundur í dagsins önn!?

Alveg er það stórmerkilegt með þessa Hollywoodleikara og poppstjörnur eins og Madonnu, hvað einhverjir sérstrúarsöfnuðir veita þeim skjól,s vona mitt á milli annara skemmtana!Vísindakirkjubrallið er annað dæmi, þar sem m.a. Tom Cruise ´dundar sér við bænir væntanlega og hefur tamið sér sérstæðar uppeldisaðferðir á börnum sínum skilst mér!Annars hélt ég að Madonnuspíran væri katólsk (eða kaþólsk?) enda ítölsk blessunin að uppruna ekki satt?
mbl.is Madonna fer til Ísraels ásamt félögum í kabbalah hreyfingunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Pælt um heima og geima

Höfundur

Magnús Geir Guðmundsson
Magnús Geir Guðmundsson
Áhugamaður um flesta hluti.

Nýjustu myndir

  • wmftcs
  • mgg
  • ...mg2_251805
  • ...mg2_251804
  • ...mg2

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.2.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 218309

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband