Færsluflokkur: Enski boltinn

(Leikhúss)Draumur í dós!

Hahahahahaha, hvað er hægt að nefna þennan leik annað út frá sjónarhóli Blackburn í það minnsta?!
En MARTRÖÐ Í MANCHESTER heitir þetta sjónarspil sannarlega séð út frá Fergie og sonum hans.
Og hún er marghætt, ekki aðeins tapar liðið í annað sinn þar sem verið er að halda upp á tímamót í lífi stjórans og það á nokkuð stuttum tímaheldur var um neðsta lið deildarinnar að ræða sem ekki hafði unnið leik á útivelli og svo var það SKOTI sem eyðilagði allt saman með vþí að skora sigurmarkið í þessum afmælisleik og jafnframt síðasta leik ársins sem með glæstum hætti átti að skjóta MU á toppinn inn í nýja árið!
Snilldarverkin með slíku risi og hámarki, gerast vart betri?!
mbl.is Blackburn lagði United á Old Trafford
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alltaf jafn gáfulegur hann Roy!

Þessi gamli afbrotaseggur og tuddi á velli, gleymdi svei mér bara að láta fylgja með, að í rauninni þyrfti ekkert að spila mótið, bara afhenda dolluna strax?!
Og kannski verður heldur ekki mikið spilað ef ástandið heldur áfram að versna í landi Tjalla, á næstunni að minnsta kosti!
mbl.is Keane býst við lítilli samkeppni um titilinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Taugatitringur?!

Það er nú ekki laust við að svo sé með gamla Fergusoninn, því ekki eru liðnar nema vika eða tvær frá því hann skammaðist við fjölmiðla fyrir að velta einmitt upp þessum veruleika sem æ betur virðist ætla að koma í ljós, að hans menn geti tapað fyrir bæði Arsenal og Chelsea þannig að baráttan yrði mikil í stað þess að þetta væri nokkurn vegin komið hjá MU.Vildi karlinn frekar meina að þeir gætu alveg eins unnið báða leikina, en um það væri bara ekki rætt? En þegar menn vilja sjá spennu fram á síðustu stundu, en ekki segja bara eins og aðdáendurnir, að "þetta sé búið, við tökum þetta létt" (líkt og margir MU-menn hafa digurbarkalega lýst yfir á sl. vikum) þá velta menn auðvitað upp möguleikunum og miðað við hve misjafnt MU hefur verið á milli leikja, þá er þetta sannarlega fyrir hendi, að einhverjir aðrir "ræni" titlinum?!
og svo er rétt að benda á, að ef Chelsea tækist að vinna á Old Trafford um næstu helgi og Arsenal héldi sínu striki og ynni, þá eru þeir sannarlega aftur komnir inn í myndina, aðeins þremur stigum á eftir MU og C og ennnþá tvær umferðir eftir!
Við spyrjum semsagt sem aldrei fyrr að leikslokum!
mbl.is Ferguson: Chelsea á fína möguleika
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Yfirgengilega bjánalegt bull!

Ef hér er öllu til skila haldið, rétt með farið og þýtt, er bara engu logið á þetta "hægribakvarðarmannkerti" hjá Mu og fíflaleg framkoma hans í leikjum og eftir, hefur stundum gefið til kynna!
Á þessu er að skilja að landsliðsþjálfarinn hafi reynt að fá Scholes til baka, en svo líka að þjálfarinn hefði frekar átt að fá Scholes til að snúa aftur en Carragher?!
En toppurinn er auðvitað þetta með hægri bakvörðin og að Capello hefði frekar átt að velja Wes Brown en Carragher?
Hvurslags bjáni er maðurinn eiginlega?
Á að velja leikmann þótt vissulega góður sé, en hefur nánast bara ekkert spilað vikum og mánuðum saman vegna meiðsla og annars, í stað leikmanns sem óumdeilanlega er ekki bara einn besti varnarmaður lands síns og reynslumesti, heldur sá stöðugasti og að vera afskaplega sterkur og drífandi persónuleiki í ofanálag?
Makalaust moð, sem ég ítreka aftur, að ef sé rétt, þá er ekki alveg í lagi með mannin sem setur það fram!
Kannski svona svekktur sjálfur að hafa hætt núna þegar þessi mikli spenningur er í kringum liðið og það talið geta farið jafnvel alla leið í keppninni og ekki sjálfur fengið beiðni um að koma aftur, hver veit?
N'u eða afbrýðisamur út í Liverpoolleikmannin fyrir hönd MU?
Veit ekki, en þetta er alveg sprenghlægilegt í öllum kjánaskapnum!
mbl.is Neville: Capello reyndi að fá Scholes
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samt hefur það nú verið með "Carra" eins og eðalvínin...,

...hann hefur nær stöðugt batnað með árunum og fyrirfram er það ekkert nema gæfa fyrir enska landsliðið að fá þennan "hertoga" aftur inn í landsliðið!
og jafnvel þótt hann muni ekki spila nema takmarkað kannski, verður líka af honum ómældur andlegur styrkur í baráttunni sem framundan er.
Þessi tíðindi auka svo sömuleiðis möguleika enskra mikið að ná langt í S-Afríku, allavega í 8-liða úrslit, þar sem síðan allt getur gerst með framhaldið!
Það lítur því út fyrir að einum allraversta þjálfara enskra frá upphafi vega, Steve mcLarren, hafi sem betur fer ekki alveg tekist að eyðileggja landsliðsferil þessa án eefa TRAUSTASTA miðvarðar Englands sl. tíu árin eða svo!
mbl.is Carragher: Ég yngist ekki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dagur gjafmildi og gleði!

Það má já með sanni segja, sólin skín í heiði og gos gleður landan. Og ekki nóg með það, gerast nú geðshrærðir og ljúfir sem lömb aðdáendur fótboltaliðsins Manjú eftir sigur vannst á vígreifum andstæðingum.
En auðvitað hafðist sá sigur ekki nema með stakri "Gjafmildi & hjálpsemi" stjórnanda leiksins og andstæðinganna sjálfra, en svona er þetta bara stundum á þessum vígstöðvum!
mbl.is United lagði Liverpool og endurheimti toppsætið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þróunaraðstoð og þorlítill dómari!

Ótrúlegt að Vidic hin vandræðalegi hengi áfram inn á eftir brotið og vítaspyrnudómin í upphafi, en þeirri staðreynd og að "litlu strákarnir frá Lifrarpolli" gátu fimlega skorað, færði MU þennan vafasama sigur!
Finn til með Villaaðdáendum!

Torres aftur með LFC og sýndi mikilvægi sitt þó vart sé meir en hálfnaður í að ná fyrri styrk!


mbl.is Rooney hetja United - Torres tryggði Liverpool sigur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eins og kjúklingar í barnshöndum!

Jamm, eftir góða framistöðu í Mílanó fyrr í vikunni, þ.e.a.s. í seinni hálfleik, snérist dæmið aldeilis við á Gooodison í dag, meðlimir úr barna- og unglingadeildinni hjá Everton kláruðu þetta með stæl!
Annars virðist ómældum kröftum hjá MU vera eytt í að blaðra um hver sé ekki að fara, séu svo til í slagin, en eru það svo alls ekki samanber "Júggalúggan" Vidic og óánægðu kelluna hans!
mbl.is Everton lagði Manchester United
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það var laglegt!!

Það held ég nú, engin glæsileikur nei, en sigra í slíkum nágrannaslag og spila einum færri lengi vel, er nú nokkuð svo ágætt!

Úrslit reyndust fjarri fúl,
fóru eftir bestu von.
Ljúfur sigur LIVERPOOL,
á liðsmönnum í Everton!


mbl.is Kuyt tryggði Liverpool sigur á Everton
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heimskan hefnir sín!

Allt er þá þrennt er, þriðji pistill minn um þetta ömurlega atferli Rio Ferdinand og reyndist ég hafa HÁRRÉTT fyrir mér um afleiðingarnar, fannst hann eiga allavega þrjá leiki skilið í bann og þá fékk hann líka, en einn svo að auki fyrir dónaskapin að áfrýja svo hann gæti í raun svindlað sig inn sem leikmaður gegn Man City í gær!
Óíþróttamannsleg hegðun, sem þó kemur ekki alveg á óvart hvað þennan leikmann varðar, hann sveikst um að mæta í lyfjapróf eins og frægt varð um árið, svo ekki beinlínis ókunn breyttni.
ég á reyndar ekki von á því síðan, en kannski læra ýmsir aðdáendur félagsins sína lexíu af þessu og eru ekki að rembast eins og kjánar framvegis við að verja svona háttsemi!
mbl.is Ferdinand fékk fjögurra leikja bann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Um bloggið

Pælt um heima og geima

Höfundur

Magnús Geir Guðmundsson
Magnús Geir Guðmundsson
Áhugamaður um flesta hluti.

Nýjustu myndir

  • wmftcs
  • mgg
  • ...mg2_251805
  • ...mg2_251804
  • ...mg2

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 217945

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband