1.3.2008 | 18:32
Smekkleysa!
Jamm og þá er ég ekki að tala um hið ágæta útgáfufyrirtæki með meiru, heldur þessi vinnubrögð og afskaplega kléna útskýringu á þessu sem hér má lesa að hálfu hlutaðeigandi!
Því trúir ekki nokkur heilvita maður, að viðkomandi hafi ekki vitað hvað þeir voru að gjöra, en eins og í frægri farsimaauglýsingu frá sl. ári reyna menn auðvitað og það fullkomlega meðvitað, að ganga eins langt og þeir geta í auglýsingaskyni!
Múnurinn núna er hins vegar sá, að hér fara menn yfir strikið, en Jón gnarr dansaði á línunni!
SVo er löglegt að auglýsa farsíma, en ekki bjór!
Eitthvað á þessa leið hafa menn sjálfsagt lagt þetta niður fyrir sér!
Vel skal hampa vorum bjór,
vegna tímamóta.
Landvættina legg'í flór
og lögin "óvart" brjóta!
Ölglaðar landvættir í auglýsingu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Viðskipti og fjármál | Facebook
Um bloggið
Pælt um heima og geima
Eldri færslur
- Desember 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- Janúar 2013
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Janúar 2011
- Nóvember 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
Bloggvinir
- Jens Guð
- arnar valgeirsson
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Big Fats Slim
- Blúshátíð í Reykjavík
- Brynjar Davíðsson
- Einar Bragi Bragason.
- Eva Benjamínsdóttir
- Eygló
- Gulli litli
- Heiða Þórðar
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Hildur Sif Thorarensen
- Hlynur Hallsson
- Hólmdís Hjartardóttir
- Inga Lára Helgadóttir
- Ingvar Valgeirsson
- Jenný Anna Baldursdóttir
- Jóhanna Magnúsdóttir
- Kolbrún Stefánsdóttir
- Kristinn Halldór Einarsson
- Kristín Einarsdóttir
- Kristín M. Jóhannsdóttir
- Kristján Kristjánsson
- Kristján Logason
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
- Oddur Helgi Halldórsson
- Ólafur Ragnarsson
- Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
- Rannveig H
- Sema Erla Serdar
- Sigþrúður Þorfinnsdóttir
- Sjónstöð Íslands
- Solla Guðjóns
- Steingrímur Helgason
- Svala Jónsdóttir
- Svavar Alfreð Jónsson
- Vefritid
- Víðir Benediktsson
- Þórarinn M Friðgeirsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ég verð að segja Magnús minn, að það svíður mig ekkert þó menn grínist með landvættina og þjóðfánan. Ég er ef til vill ekki nægilega þjóðernissinnuð. En allt sem heitir einkennisbúningar, eða tákn sem eiga að merkja stöðu og staðsetningu, er eitthvað sem mér hugnast ekki. Til dæmis þegar ég horfi á fáránlega búninga katólskra presta og páfa, þar sem hégómaskapurinn birtist í sinni skærustu mynd. Það sem skiptir máli er í hjartanu á okkur, en ekki ytra pelli og purpura.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 2.3.2008 kl. 13:19
Mín væna Ásthildur Cesil, kærar þakkir fyrir innlitið!
Ég hef nú ekki heldur neinar heitar tilfinningar sem slíkar gagnvart landvættunum, er allt of mikill æringi og prakkari til þess. En þetta snýst ekki um grín í þessu tilfelli, heldur að menn virði lög og séu ekki að hampa áfengi með svona grófum hætti.
Magnús Geir Guðmundsson, 2.3.2008 kl. 16:22
Ég hafði húmor fyrir báðum þessum auglýsingum, og mér finnst allt í lagi að láta reyna á heimskuleg lög, hvort þau standist.
Bubbi J. (IP-tala skráð) 2.3.2008 kl. 22:15
Sammála Bubba J. Óþörf lög eru heimskuleg lög, og þessi lög eru sannarlega óþörf.
Birnuson, 3.3.2008 kl. 11:46
já gott að hafa húmorin á réttum stað
Brynja skordal, 4.3.2008 kl. 08:05
Burtséð frá kímnigáfu hvers og eins og hvað sé fyndið, þá virðist á herramönnunum tveimur hér að ofan að skilja, að allt í lagi sé að brjóta lög bara ef þeim sjálfum finnst þau heimskuleg? Mjög athyglisvert sjónarmðið verð ég að segja, hvort sem þeir eiga bæði við bannið um áfengisauglýsingar eða um notkunina á skjaldarmerkinu! Sem ég sagði, þá má alveg hugsa þetta með Landvættina sem slíka, en hvað sé svona fyndið við að gera þá að drykkjufígúrum í þágu bjórframleiðanda, get ég ómögulega skynjað.
Magnús Geir Guðmundsson, 4.3.2008 kl. 12:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.