Hugsað aftur til "Bjórþambsdagsins fyrsta" 1. mars, 1989!

Man nú býsna vel eftir þessum "rennblauta" degi!
Eins og nú var töluvert mikið vetrarríki á landinu um mánaðarmótin febrúar, mars.
Og fleira og raunar mun meira spennandi lá í loftinu þessa dagana fyrir unga og spræka menn en að fara brátt að geta hellt í sig bjór, m.a. tvennir stórtónleikar í höfuðborginni sem ég og Heimir félagi minn vorum staðránir í að mæta á. Að kvöldi hins 28. feb. var það engin annar en blúsjöfurinn mikli John Mayall sem mættur var á staðin með sína Bluesbreakerssveit, en kvöldið eftir var það góðkunningi okkar félaganna frá því í Doningtonrokkferð tveimur árum fyrr, Eiki Hauks ásamt sínum norsku kumpánum í Artch, sem áttu leikin.
En því miður, því miður, bölvuð tíðin greip inn í stóru áformin og ekki var nokkur leið að fljúga frá höfuðstaðnum góða í norðri suður yfir heiðar fyrr en 1. mars!
Heimir, sem fyrst og síðast vildi sjá Mayall, hætti því við, en ég vildi ekki gefast upp og flaug suður til að sjá Eika og Co.!
Sá ekki eftir því heldur, alveg ágætir tónleikar þótt aðsóknin hafi nú ekki verið of mikil né þetta bestu tónleikar sem vor augu og eyru höfðu numið.
Nú á eftir rambaði ég svo fínn og frakkaklæddur niður úr Múlunum og þræddi Suðurlandsbrautina allt til Glæsibæjar þar sem sjálfir Dubliners sáu um fjörið á kránni á þessum blauta og satt best að segja daunílla fyrsta bjórdegi nútímans á Íslandi.
Þarna við Glæsibæ hitti ég hina gullfallegu Dúnu, en það er nú allt önnur saga!
mbl.is Nýr bjór kemur á markað um helgina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Blessaður félagi, ég var einmitt með eitt Artch lag á metalfundinum um daginn "Metal life" alger snilld og féll vel í kramið...þú hefur verið glæsilegur þarna frakkaklæddur forðum á leiðinni á Dubliners og Dúnu...

Bubbi J. (IP-tala skráð) 28.2.2008 kl. 22:36

2 Smámynd: Brynja skordal

já man svo vel eftir þessum degi þvílík tilhlökkun að fá einn ískaldan úr krana en sástu mig ekki í glæsibæ þetta kvöld

Brynja skordal, 28.2.2008 kl. 22:58

3 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Gaman að heyra þetta Bubbi, en hvar varst þú og vorum við eitthvað með í myndinni að þú kæmir suður líka? Get ekki munað hvort það stóð til!

Hver veit Brynja, hver veit, en ei man ég lengur eftir öllum píunum þarna!

Magnús Geir Guðmundsson, 28.2.2008 kl. 23:58

4 identicon

Ég held alveg örugglega að ég hafi ekki verið inní þessari mynd var örugglega í útlegð á stórbýlinu Grund í Eyjafirði fjarri glensi og glaumi.

Bubbi J. (IP-tala skráð) 29.2.2008 kl. 00:16

5 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

ER virkilega svona langt síðan þú varst þar!? Og líka yfir veturinn, man bara eftir þér verandi þarna á sumrin.

Magnús Geir Guðmundsson, 29.2.2008 kl. 00:22

6 Smámynd: Jens Guð

  Maggi,  svo þarft þú bara að hlaupa undir bagga með að hjálpa okkur við að vekja athygli á Blúshátíð í Reykjavík.

Jens Guð, 29.2.2008 kl. 00:44

7 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Man eftir þessum degi og man líka eftir vodkablandaða pilsnernum sem maður gat keypt sér þar á undan, eða hreinlega blandað sjalfur heima hjá sér.  Þvílíkt rugl þetta bjórbann

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 29.2.2008 kl. 09:58

8 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Takk fyrir það Jens minn, að líkindum mun ég setja orð um hátíðina niður á blað, sem hefst eftir eftir rúma eina og hálfa viku, 18. mars.

Ekki drakk ég nú mikið af þessu bjórlíkissulli, mín ágæta Á.C.! Og var reyndar ekkert heldur einn þeirra sem hoppaði hæð sína út af bjórdeginum, satt best að segja!

Magnús Geir Guðmundsson, 29.2.2008 kl. 13:33

9 identicon

já er það ekki bara málið, drekkja sorgum sínum (og fýlunni) i bjór og brennivíni - það held ég sumum væri nær að skella sér í hjólaferð um ítalskar sveitir en að sitja hér í snjó og byl og rétt komast inn á næstu bjórbúllu (hér væri tilvalið að segja; jasvei) ekki drekka ítalir  bjór, þótt þeir séu oft sorgmæddir og t.d. mun sorgmæddari en þjóðverjar sem drekka vondan bjór, það er mun meiri elegans yfir því að drekka sorgum sínum (og fýlu) í vino rosso eða vino blanco. bjórdagurinn er einn mesti sorgardagur sem hin íslenska þjóð hefur upplifað - Kær kveðja K.e.

kristin einarsd. (IP-tala skráð) 29.2.2008 kl. 19:27

10 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Hahaha fróma fræðakona, þú skefur ekkert utan af því frekar en fyrri daginn, ert líka bráðskemmtileg fyrir vikið!

Ei telst ég nú hjólari, né hjóla ég mikið í bjórin heldur. Hætti reyndar alveg vínkyngingum fyrir um heilum 13 árum held ég bara!Væri til í ítalska hjólaferð, en þá bara sem farþegi á bögglabera eða tvíburahjóli með gott´fljóð á borð við þig á stýrinu! (að stýra hjólinu haha, svo það fari nú ekki á milli ma´la)

En bjór og brennivínsdrykkja semsagt bull, erum sammála um það!

Magnús Geir Guðmundsson, 29.2.2008 kl. 19:47

11 Smámynd: Kristján Kristjánsson

Ég man að ég var í Bandaríkjunum á bjórdeginum en fékk fréttir út. Kanarnir fannst við Íslendingar mjög skrítnir að bjór hafi virkilega verið bannaður árið 1989! Metal life með Artch er bara snilldin ein

Kristján Kristjánsson, 1.3.2008 kl. 11:29

12 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Takk fyrir það Kiddi!

Jamm, þetta voru fannst mér ba´ra fínar skífur þessar tvær með Artch! Önnur er reyndar týnd hjá mér, þyrfti að fara að leita!

En bjórin mætti banna aftur mín vegna!

Magnús Geir Guðmundsson, 1.3.2008 kl. 13:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Pælt um heima og geima

Höfundur

Magnús Geir Guðmundsson
Magnús Geir Guðmundsson
Áhugamaður um flesta hluti.

Nýjustu myndir

  • wmftcs
  • mgg
  • ...mg2_251805
  • ...mg2_251804
  • ...mg2

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband