Færsluflokkur: Lífstíll
29.1.2013 | 22:50
Norrænt - Já takk!
Ýmsir - World Music From The Cold Seas.
Ekki er svo langt um liðið frá því að Frónbúar voru svo blindir á flest eða allt sem engilsaxneskt var upprunnið, að þeir fussuðu bara helst og sveiuðu ef aðrar tungur og öðruvísi efni var nefnt! Slíkt var nei ekki við hæfi og stimplað nær sjálfkrafa sem rusl. Þannig raddir heyrast jú ennþá og kjánalegir fordómar, en ef við tökum bara sem dæmi sjónvarpsefni, hefur nú þróunin aldeilis snúist við og norrænt efni þaðan orðið eitt það allra vinsælasta sem býðst.
Norræn tónlist hefur auðvitað verið í náðinni hjá mörgum um langa hríð, en samt hafa menn á sama hátt sett á hana stimpil neikvæðan og þá sérstaklega ef hún hefur verið flutt á móðurmáli flytjendanna. Einhvern tíman setti ég sjálfur stundum slíkt fyrir mig, en ekki lengur og það hygg ég að þeir sem í alvöru hafa áhuga og ánægju af tónlist, geri nú í minna mæli!
Nú skömmu fyrir jólin læddist inn um lúgu hjá mér skífa nokkur sem eftir því sem tíminn líður og meira er hlustað, verður meira og meira skemmtileg og góður vitnisburður fyrir sinn (þjóða)hatt! Um er að ræða 16 laga Vest-norrænu safnskífuna World Music From The Cold Seas, er inniheldur fjögur tóndæmi í flutningi listamanna frá jafn mörgum þjóðum, Íslandi, Færeyjum, Grænlandi og lendum Sama!
Nukaaka Motzfeldt - Drum Dance for Rasmus (Grænland)
Kristian Blak - Addeq 2 (Færeyjar)
Tryggvi Hansen - Ólafur Liljurós (Ísland)
Elín Kaven - Aibbas Jaska (Samaland)
Margrét Örnólfsdóttir - Vélsög (úr kvikmyndinni Einkalíf)(Ísland)
Samma Samma - Qinnut (Grænland)
Skáldi - Taxi Driver (Samaland)
Shalder - Trana Trýta (Færeyjar)
Jens Guð - Fjallgangan (Ísland)
Sume - Upernaaq (Grænland)
SámiLuondu Collerisku - Gidda (Spring) (Samaland)
Kristian Blak & yggdrasil (með Eivör Pálsdóttur) - The Eagle (Færeyjar)
Johann Anders Bær - Gáhttaráiggi (Samaland)
Klakki - Fæding Máfsins II (Ísland)
Nanu Disco - The Drum-The Drum (Grænland)
Týr - Ormurin langi (Færeyjar)
Ansi fjölbreytt flóra þarna á ferðinni, meira og minna rammþjóðleg, ný lög í bland við eldri og kunnari, samanber hinn geysivinsæla Orm Víkingarokkaranna í Týr (svei mér ef lagið var bara ekki það alvinsælasta hérlendis um langt skeið?) þjóðbraginn gamla um Ólaf (í frábærum flutningi Tryggva o.fl.) og rappsins/"Mæltafmunnifram" útgáfu Jens Guð af kvæði Tómasar Borgarskálds, Fjallgöngu. Áður hafði Jens auðvitað eins og margur man, heldur betur hrist upp í landanum með annarri slíkri túlkun og afbragðsgóðri, á Þorraþræl Kristjáns Fjallaskálds Jónssonar. Jens á svo stóran þátt reyndar í plötunni ásamt þeirri mjög svo gagnmerku útgáfu Tutl í Færeyjum, sem borið hefur hitann og þungann af "færeysku útrásinni" í rokki og poppi sl. árin, komið m.a. út með plötur með Týr, Eivör, Teiti að ógleymdri fyrri plötu okkar eigin ástsælu Víkingaþungarokkssnilldarsveitar, Skálmaldar! Nú svo er þarna hin goðsagnakennda grænlenska sveit Sume með að ég held nokkuð gamalt lag, hressilegt popp með grænlenskum blæ í grunninn. Þau Elín og Johann Anders frá Samalandi eru bæði með gríðarfín lög, hennar ansi seiðmagnað bæði og kraftmikið, minnti mig í senn á eitthvað í anda Bjarkar og eitthvað svona austrænt í taktinum. Hans þjóðlegra en þó skemmtilega djassskotið. Hin íslensk-danska Klakki er þarna sömuleiðis með ansi flott lag er hreif mig vel og þannig mætti telja fleiri lög af plötunni. Síðan má ekki láta hins merkilega færeyska músíkfrömuðar, Kristian Blak, ógetið, en ekki aðeins gefur hann plötuna út sem eigandi Tutl, heldur kemur hann við sögu allra hinna færeysku laganna og gaf auðvitað Týr út á fyrri stigum. Stórmerkilegur maður og áhrifamikill! Þessi eftirfari hinnar mögnuðu og rokkuðu Rock From The Cold seas kemur mér satt best að segja mjög þægilega á óvart, vel heppnað samsafn í alla staði í öllum þeim ólíku tónmyndum sem þar birtast. Merkilegur menningarvitnisburður um hve margt er að finna hjá þessum fjórum ólíku en menningarríku þjóðum í norðri!
Lífstíll | Breytt 2.12.2014 kl. 17:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
11.8.2012 | 20:46
Beiskur er sá beygði!
Prófessorinn gleymir nú því langmerkilegasta á ferli "Gerðunnar" í upptalningunni, nefnilega fv. Handboltadómari!
En það er nú annars kunnara en frá þarf að greina, að prófessorinn var sekur fundin og dæmdur af hæstarétti fyrir að gera orð Nóbelskáldsins Laxness að sínum (svo við orðum það pent) í ævisöguþríleik sínum um hinn síðarnefnda. Hins vegar vill svo til, að sá sami Halldór Guðmundsson sem þarna er nú í forsvari Hörpunnar, en prófessorinn vill meina að ætti ekki að vera það, skrifaði líka á svipuðum tíma ævisögu sama Nóbelsskálds, þar sem vel var að verki staðið og viðurkenningar hefur hlotið!
Þessu mun prófessorinn að sjálfsögðu aldrei geta kyngt í sinni eilifðarvindmyllubaráttu við "þá vinstri" svo skrif sem þessi koma nú ekki beinlínis á óvart.
Þannig er því bara oftast varið með þann beygða, beiskjan grefur um sig og brýst fyrr eða síðar upp á yfirborðið og er öllum ljós nema þeim beygða, sem helst aldrei mun viðurkenna ósigur sinn!
Það er svo síðan nokkuð fyndið, þegar Halldór Guðmundsson á með einvherjum hneykslishætti að vera ráðin sem einhver "innsti koppur í búri" hjá Samfylkingunni, meðan Þorgerður er bara "saklaust fórnarlamb og órétti beitt af vonda stráknum Degi B....?!"
Ansi hreint hlálegt já, en sannarlega ekki í fyrsta skiptið sem prófessorinn sér okkur fyrir álíka skemmtan!
Segir Dag hafa komið veg fyrir ráðningu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.7.2012 | 15:33
"Guðni hinn guðhræddi!"
Um Guðna að segja frekar er fátt,
ef fljótt er málin litið.
Talar jú mikið og hefur oft hátt,
en hreint ekki stígur í vitið!
Skilur ekki afstöðu Guðna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
17.1.2012 | 11:15
Blúsinn er blessun....ekki bölvun!
Blússveit Þollýjar My Dying Bed.
Þótt þjóðsagan um Robert Johnson, eitt helsta goð Blússins, að hann hafi selt djöflinum sálu sína fyrir gæfu og gjörvileika á krossgötunum forðum, lifi enn góðu lífi, vita sæmilega upplýstir menn og öfgalausir, að tónlistin sem svo nefnist er sannarlega ekki af hinu ílla.
Jújú, líkt og í flestum öðrum tónlistargreinum, hafa menn notað kræfa og krassandi texta og Blúsinn þar ekki hvað síst verið beitt tjáningarform í samskiptum kynjanna sem öðrum tilfinningaefnum. Og það hefur ekkert verið síður í þágu gleði og glaums en beins trega, eins og nafnið þýðir þó og margur telji að skilja eigi bókstaflega.
Fyrir ekki svo mörgum árum vakti það nokkra athygli er hingað kom Blúsmaður frá Chicago og hélt tónleika hjá Hvítasunnukirkjunni m.a. Glenn Kaiser heitir hann Man nú ekki lengur frekari deili á honum, en tónleikunum var útvarpað svo undirritaður heyrði og fannst honum ansi mikið til koma. Í stað texta um litlar rauðar unghænur sem lystugt væri að snæða og álíka tvíræðni, voru hins vegar komnir guðræknissálmar, lofgjarðir til hans og heillags sonar , Jesú Krists! Blússtefin voru þó kunnugleg og ekki vantaði stuðið.
Svo er einmitt upp á teningnum með Blússveit Þollýjar Rósmunds á plötunni þeirra, My dying Bed, er sá dagsins ljós fyrir jólin, á köflum nokk kraftmikill Blús með léttari tilbrigðum í bland þar sem mörgum kunnuglegum óð hefur verið snúið upp í lof til Himnaföðursins.
Og fyrir tónleika GK, hitaði sveitin einmitt upp allavega einu sinni fyrir um sjö árum.
Auk Þollýjar eru nú í sveitinni þeir Magnús gítarleikari, Jonni bassaleikari og Benjamín trommari, en á ferli hennar sem spannar nær áratug hafa ýmsir fleiri komið við sögu, m.a. engin önnur en Lay Low, Lovísa Sigrúnardóttir og spilaði á bassa.
Ég hef nú lengst af þeim tíma sem ég hef skrifað um tónlist þ.m.t. að dæma plötur, ekki verið mikið gefin fyrir beinar einkunagjafir, hef reyndar ekkert á móti þeim, en mitt álit mótast hins vegar fyrst og síðast hversu mikið þær ná að grípa athyglina, skemmta manni þannig að viljinn verður eindregin að spila aftur og aftur.
My Dying Bed fær því enga einkun hér í tölum eða stjörnum, en skemmst er frá því að segja, að ekki þurfti mjög mikla hlustun til að koma mér í ljómandi gott skap og þá ekki hvað síst vegna þess hve hressilega kraftmikil platan reyndist mestmegnis og gleðirík.
Það má örugglega deila um hversu platan er vel unnin og/eða hversu góð hljómgæðin eru á henni, en það skiptir mig nú minnstu mér finnst hún bara þrusufín og þá m.a. vegna vel sjóaðarar raddar Þollýjar og hrás gítarspilsins hjá Magnúsi, sem bendir nú reyndar til að hann eigi rætur í rokkinu og þá af þyngra taginu. Svo mun hygg ég líka eiga við um takttvíeykið J og B og allir munu þeir hafa komið víða við, í fleiri en einni sveit.
Allavega tveir gestir koma svo við sögu og spila held ég í sitt hvoru laginu, gítarleikarinn Sigurgeir Sigmundsson (m.a. í Start forðum) og góður kunningi og félagi, Sigurður Ingimarsson, sem við norðlendingarnir vitum að bæði er afbragðsgóður söngvari og gítarleikari, en bregður hér hins vegar fyrir sig munnhörpuleik í lofsöng um Manninn frá Gallileu! Siggi þar ansi snaggaralegur, en sem margir vita er hann nú dagsdaglega í þjónustu drottins, kapteinn hjá hjálpræðisherrnum í Reykjavík.
Vil annars ekki taka út nein lög sérstaklega, en þau eru blanda af Blús- og sálmasöngs/gospelmeiði í oftar en ekki kraftmiklum útsetningum.Eru tvö lagana held ég frumsamin.
Útgáfa á íslenskum plötum með rótarmúsík var annars nokkuð svo gróskumikil á sl. Ári, má þar nefna auk BÞ, plötur með Blúsmönnum Andreu, Sigga Kentár Sigurðssyni, Lame Dudes og síðast en ekki síst Sollu Soulful, er ekki hvað minnst vakti mína athygli. Vonandi verður bara framhald á þessu, fyrir mína parta er alltaf spenningur að heyra af nýjum plötum af því taginu.
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
17.11.2011 | 00:05
"Glöggrakompaníið!"
Eftirfarandi lét eldpredikarinn Jón VAlur Jensson flakka á bloggsíðu sinni fyrr í dag, sem viðbrögð við afsökunarkröfu Steingríms J. á hendur Vigdísi Hauksdóttur "íslenskufræðingi" er hún hafði dylgjað um meint hagsmunatengsl hans og venslafólks við sölusamning ríkisins og Reykjanesbæjar.
Má þarna með sanni segja að skilningur á hugtakinu "Glöggskyggni" nái alveg nýjum og óþekktum hæðum?!
Engum sögum fer svo enn af hvort þingkonan hafi beðið þau sómahjón Kristínu og Ólaf Hergil afsökunnar, glöggskyggnina kann að skorta til þess?
"Ótrúlega ósvífinn er Steingrímur J. á þingi í dag, þar sem hann krefst afsökunarbeiðni Vigdísar Hauksdóttur alþm. sem bendir á hagsmunatengsl fjölskyldu ráðherrans við kaup ríkisins á tveimur jörðum á Rosmhvalanesi (Reykjanesskaga), þar sem systir hans og mágur eiga 16 komma eitthvað í tvimur jörðum þar, sem Steingrímur ætlar að láta ríkið kaupa. Ráðherrann er augljóslega hagsmunatengdur, en kann ekki að skammast sín og reynir að smyrja skömmum á glöggan þingmanninn Vigdísi"
Hljóta að vakna pólitískar spurningar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.8.2010 | 20:28
Þetta hllýtur bara að vera Árna Johnsen að kenna!
Eða svo talar hann allavega sjálfur um þessa höfn og svo margt annað, þannig að hann hlýtur bara að taka fulla ábyrgð á hruni lundastofnsins á eyjunni í suðri!
Mér finnst það allavega rökrétt!
Prófasturinn tekur flugið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.6.2010 | 21:35
"Hve glöð er vor (Framsóknar)æska...og gáfuleg!?"
allur í skinninu brenn
af íllkvittniskæti,
kann mér ei læti
Slík fífl eru framsóknarmenn!
Mótmæla ásökunum þingmanns | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 21:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
22.3.2010 | 15:28
Brúðkaup ársins!
Jamm, ekki spurning um það!
Hins vegar vekur eitt auðvitað athygli.
Á vænni stund ég velti fyrir mér,
hve veröldin hún gerist ´skrítin stundum.
Að besta fólk á brúðkaupsdegi sér,
blessunar nú óski mest frá hundum?!
Jónína og Gunnar í hjónaband | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
27.12.2009 | 23:57
Ætli þessi eini..
Einn með drykkjulæti á Blönduósi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
7.11.2009 | 14:17
Karlmenn eru heimskir, veiklyndir, vitlausir....Margir hverjir!
Femínistar segja KSÍ hafa brugðist | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 14:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
Um bloggið
Pælt um heima og geima
Eldri færslur
- Desember 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- Janúar 2013
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Janúar 2011
- Nóvember 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
Bloggvinir
- Jens Guð
- arnar valgeirsson
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Big Fats Slim
- Blúshátíð í Reykjavík
- Brynjar Davíðsson
- Einar Bragi Bragason.
- Eva Benjamínsdóttir
- Eygló
- Gulli litli
- Heiða Þórðar
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Hildur Sif Thorarensen
- Hlynur Hallsson
- Hólmdís Hjartardóttir
- Inga Lára Helgadóttir
- Ingvar Valgeirsson
- Jenný Anna Baldursdóttir
- Jóhanna Magnúsdóttir
- Kolbrún Stefánsdóttir
- Kristinn Halldór Einarsson
- Kristín Einarsdóttir
- Kristín M. Jóhannsdóttir
- Kristján Kristjánsson
- Kristján Logason
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
- Oddur Helgi Halldórsson
- Ólafur Ragnarsson
- Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
- Rannveig H
- Sema Erla Serdar
- Sigþrúður Þorfinnsdóttir
- Sjónstöð Íslands
- Solla Guðjóns
- Steingrímur Helgason
- Svala Jónsdóttir
- Svavar Alfreð Jónsson
- Vefritid
- Víðir Benediktsson
- Þórarinn M Friðgeirsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar