Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Ég hef á tilfinningunni...,

að þvert á móti lítil innistæða sé fyrir þessari yfirlýsingu D flokksins! En hvað finnst þér? Mér finnst ég sjálfur allavega ekki mjög ósáttur (ef þessi drög eru þá alveg rétt, sem einvher hefur því miður lekið svona óheppilega í Moggan?) þegar lesið er í rólegheitum og í raun ekkert sem kemur á óvart, þessi útfærsla eða einhver lík henni einvhers staðar verið tíunduð fyrr, sem hugsanleg lausn eða hluti af henni. Lengi verið ljóst að ef við hreinlega höfnuðum ekki ábyrgð alfarið á Icesave, þá myndi einhver hluti lenda á ríkinu/þjóðinni. Alþingi ákvað hins vegar að semja við Tjallan og það hefur legið fyrir um nokkra hríð. Enn er ekki ljóst hvers virði eignir Landsbankans teljast, hversu mikið þær duga til að greiða þessa milljarða alla, en eins og þetta dæmi lítur út og fyrirkomulagið er t.d. á láninu, þá finnst mér ekki ástæða til þeirra hávaða og láta sem orðið hafa og upphrópananna, enn eru engin endanleg fastmæli bundin og góðar líkur á að það gæti orðið lítið sem ekkert er þetta kostaði okku.
Þess vegna hefði verið betra ef menn héldu ró sinni og biðu eftir frekari upplýsingum, ekkert lægi á með umræðu,en fjárans lekin, hvaðan sem hann nú er upprunnin,veldur nú slíku sem stundum fyrr!
SEtja fyrir hann!
mbl.is Ekkert innihald fyrir yfirlýsingum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýja þingkonan Ólína "Á vængjum söngsins"!

http://olinathorv.blog.is/blog/olinathorv/entry/888213/#comments

Setti línur við góða færslu hjá vinkonu minni og nýja þingmanninum henni Ólínu og slóðin hér að ofan vísar til.
Þess skal svo getið, ef einhver skildi ekki vita, að Ólínu er einmitt ásamt svo mörgu öðru til ista lagt,að geta sungið dável!

Varla yrði vá á þingi,
en veislukostur sannur gjörður.
EF létt og kát þar "Lóan" syngi,
líkt og Árni J. og Mörður!

En myndi að sjálfsögðu gera það miklu betur, ef hún fylgdi einhvern tíman í fótspor ÁJ og Marðar Árnasonar og syngi í ræðustól alþingis!


Ekki veitir af FRIÐARSTUNDUM!

Fjölmennt er á friðarstund,
fólk þar laust við ama.
Heiðrar þennan helga fund,
Hr. Dalai Lama!

Hefur áreiðanlega verið góð stund á öðrum hvítasunnudegi, almúga þessa lands veitir ekkert af slíkum stundum nú og það sem flestum. Heimsókn þessa andlega leiðtoga tibetbúa ágæt og vona ég að risaþjóðin í austurlöndum fjær, Kína, eða ráðamenn hennar, fari nú ekki að fjargviðrast stórum vegna heimsóknarinnar.

Gleðilega hátíðarrest!


mbl.is Fjölmenni á friðarstund
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað gera Geiri og Gunnar nú?

Kemur kannski nokkuð á óvart að Ragnheiður Ríkharðs sé þarna, held hún hafi ekki verið með fyrr, en man það ekki.
En Garparnir í Kópavogi, Bæjarstjórinn og Geiri Gullputtarekandi og örugglega fleiri, hugsa nú áreiðanlega sitt við þessi tíðindi.

Hvað Geiri og Gunnar Ingi,
gramir við þessu segi.
Margt, en kannski svo kingi,
kokhreysti sinni og þegi?


mbl.is Vilja banna nektarsýningar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gummi og Simmi slógu í gegn, Sigmundur agalegur!

Jamm, þeir Sigmundur ERnir og Guðmundur Steingríms stóðu einna helst upp úr hjá mér, fluttu einna hressustu ræðurnar og skemmtilegustu óháð innihaldi þeirra beinlínis. (og kannski ekki skrýtið að þeir hafi "Staðið upp úr" haha, báðir yfir 1.90 á hæð)
En ég botna enn hvorki upp né niður í hvers vegna Guðmundur skipti yfir í B, næ því bara ekki!
STelpur á borð við Kötu og Liljuna ágætar og þær Margrét og Birgitta úr Borgarahreifingunni eiga eftir að standa sig vel heyrðist mér. Veit hins vegar ekki alveg með B dömuna Vigdísi. Hinnn nýji formaður þess sama flokks var reyndar einnig viss senuþjófur, kom og hóf sína ræðu með slíkum yfirsnúningi að mynti mig á bilað segulband sem óvart hefði farið allt of hratt í gang! Og ræðan hjá honum var bara alveg agaleg!
Ný formaður D fór líka snemma í hágírinn, hef alltaf meir og meir á tilfinningunni, að hann sé kannski ekki alveg á réttri hillu þarna!? "Gömluhjúin" heillög Jóhanna og Steingrímur sigldu þetta á reynslunni, karlinn þó orðin nokkuð spakari sem sá er valdið nú hefur, en alltaf með góða tækni og málfar í besta lagi!
Þetta er svona það helsta, en ég hafði meir gaman af þessu núna en í mörg ár!
mbl.is Átta jómfrúrræður í kvöld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Brattur!

Evrópu vill ekki sjá,
aðeins heima standa.
Í kjaftinum er Kristinn H.,
"Kjölfastur" að vanda!

En eftir langan tíma, er eflaust erfitt að sætta sig við að geta ekki þanið sig áfram innan veggja alþingis, eftirsjá hefur risið í hinum stórvaxna Krisni við þessi skrif og orðin því orðið nokkuð reiðilegri þess vegna!?
Hversu góð svo tillagan er eða eða slæm, er svo annar handleggur.


mbl.is Segir þingsályktunartillögu fádæma rugl
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kata Rokkar!

Hef frá upphafi haft mætur á þessari stúlku, alltaf hlýleg og aðlaðandi, en jafnframt hugumstór og harðákveðin í að láta engan vaða yfir sig né komast upp með "stæla"! Hefur sömuleiðis farið nokkuð sínar eigin leiðir, er kannski svolítill einfari?
Ættuð að hálfu allavega frá Húsavík veit ég, í föðurættina, ekki beinlínis ókostur það verð ég að segja, en dálítið spennandi í ljósi embættisins og framvindu álversins á Bakka við Húsavíkina fögru! (SEm ég held þó í sannleika sagt, að muni seint rísa úr þessu, allavega metið kalt eftir þeim staðreyndum sem við blasa í efnahagsmálum heimsins.)

Á mig Kata virkar væn,
velgefin og fríð.
Hugdjörf líka, hörð og kæn,
ef heyja þurfi stríð!

GAngi henni vel í nýju og mjög vandasömu starfi!


mbl.is Katrín tekin við iðnaðarráðuneytinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Í tilefni dagsins!

Nýja stjórnin, nú er orðin til,
nokk það eru víst já þáttaskil.
Heilla allra, henni óska vil,
hremninganna- sigli gegnum byl.

En meðal enn annara orða.

Mæður nær og fjær, ekki seinna vænna að óska ykkur til hamingju með daginn!

Þið eruð auðvitað algjörlega ómessandi og því segi ég við hvert tækifæri.

ÉG ELSKA ÞIG MAMMA!!!


mbl.is Trúverðugt plagg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hundrað dagar!

Já, á þessum tímamótum er fyrsta meirihlutastjórn tveggja jafnaðar- og félagshyggjuflokka í sögu lýðveldisins er að fæðast er það nokkuð merkilegt líka, að á sama degi, á morgun, verða nákvæmlega hundrað dagar liðnir frá því minnihlutastjórn sömu flokka með stuðningi B flokksins, tók við völdum!

Hún hlýtur því bara að nefnast hér eftir Hundrað daga stjórnin!?


mbl.is Ríkisstjórn í burðarliðnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gengur þó hægt fari!

Þannig lítur það allavega út.
Svo má líka orða þetta svona.

Góðir hlutir gerast hægt,
gegnumsneitt í samningsátt.
Það manni sýnist mikilvægt,
svo myndast geti um þá sátt!


mbl.is Áframhaldandi viðræður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Pælt um heima og geima

Höfundur

Magnús Geir Guðmundsson
Magnús Geir Guðmundsson
Áhugamaður um flesta hluti.

Nýjustu myndir

  • wmftcs
  • mgg
  • ...mg2_251805
  • ...mg2_251804
  • ...mg2

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband