Gummi og Simmi slógu í gegn, Sigmundur agalegur!

Jamm, þeir Sigmundur ERnir og Guðmundur Steingríms stóðu einna helst upp úr hjá mér, fluttu einna hressustu ræðurnar og skemmtilegustu óháð innihaldi þeirra beinlínis. (og kannski ekki skrýtið að þeir hafi "Staðið upp úr" haha, báðir yfir 1.90 á hæð)
En ég botna enn hvorki upp né niður í hvers vegna Guðmundur skipti yfir í B, næ því bara ekki!
STelpur á borð við Kötu og Liljuna ágætar og þær Margrét og Birgitta úr Borgarahreifingunni eiga eftir að standa sig vel heyrðist mér. Veit hins vegar ekki alveg með B dömuna Vigdísi. Hinnn nýji formaður þess sama flokks var reyndar einnig viss senuþjófur, kom og hóf sína ræðu með slíkum yfirsnúningi að mynti mig á bilað segulband sem óvart hefði farið allt of hratt í gang! Og ræðan hjá honum var bara alveg agaleg!
Ný formaður D fór líka snemma í hágírinn, hef alltaf meir og meir á tilfinningunni, að hann sé kannski ekki alveg á réttri hillu þarna!? "Gömluhjúin" heillög Jóhanna og Steingrímur sigldu þetta á reynslunni, karlinn þó orðin nokkuð spakari sem sá er valdið nú hefur, en alltaf með góða tækni og málfar í besta lagi!
Þetta er svona það helsta, en ég hafði meir gaman af þessu núna en í mörg ár!
mbl.is Átta jómfrúrræður í kvöld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

 Hvar gróf íhaldið upp þennan ömurlega ræðumann sem er formaður flokksins.

Auðvitað fékk hann djobbið út á nafnið og útlitið, en ekki ræðusnilld eða frambærileg tilþrif í pólitík.

Ömurlegri ræðumaður hefur ekki sést lengi á alþingi.

Sveinn Elías Hansson (IP-tala skráð) 18.5.2009 kl. 23:14

2 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Ei tek ég nú svo djúpt í árinni sem þú Sveinn, en BB er enn allavega ekki búin að finna sína pólitísku flokksforingjafjöl!

Kærar þakkir fyrir þetta frú Sigurbjörg. Þetta var nú bara svona ábyrgðarlaust hjal hjá mér og mest án tillits til innihaldsins. EFtir á að hyggja, er ég farin að hallast að því að Sigmundur Davíð hafi bara verið yfirspenntur, óð allt of mikið á honum og hann þó vanur sviðsljósi fjölmiðlanna.Svo gleymdi ég reyndar, að hinn nýji leiðtogi D í NV (Aðalbjörn ef mig misminnir ekki) flutti alveg ágæta ræðu sem slíka og fær hann ágæta einkun sem nýliði. Missti hins vegar af nokkrum ræðumönnum.

Magnús Geir Guðmundsson, 18.5.2009 kl. 23:49

3 Smámynd: Jens Guð

  Ég fylgdist ekki með fjörinu á alþingi í kvöld.  Sæunn systir er í bænum ásamt fjölskyldu og það var miklu meira gaman að heilsa upp á það fjörmikla fólk.  Ég er vitaskuld ekki aðdáandi Bjarna Ben.  Í mínum huga stendur hann helst fyrir það að hafa barist á hæl og hnakka gegn því að fyrningu væri aflétt af barnaníðingum.  En hann er huggulegur og vel klæddur.  Skortir foringja ímynd.  Virkar eins og sá sem fæddist með silfurskeið í munni og hefur alið aldur í bómullarkenndu umhverfi.  Þokkalega vel gefinn og máli farinn.  Ljúfur í aðra röndina.  En hefur ekki áru stjórnmálaleiðtoga eða stjórnmálaskörungs.  Mér skilst að ættaróðal hans,  Neinn,  standi höllum fæti. 

Jens Guð, 19.5.2009 kl. 00:50

4 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Bið kærlega að heilsa Sæunni og fjölskyldu. Hún er virkilega góð stelpa!

ER þér sammála um BB í það heila, svo vantar hann alveg kímni, sem alltaf skiptir máli með góða leiðtoga finnst mér.

Magnús Geir Guðmundsson, 19.5.2009 kl. 17:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Pælt um heima og geima

Höfundur

Magnús Geir Guðmundsson
Magnús Geir Guðmundsson
Áhugamaður um flesta hluti.

Nýjustu myndir

  • wmftcs
  • mgg
  • ...mg2_251805
  • ...mg2_251804
  • ...mg2

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband