"Æ, farðu að leggja þig Lexi"!

Voða er nú orðið hvimleitt hve mikið framboð er af alls kyns viðtölum og villurugli í þessum annars stórsnjalla fótboltaþjálfara!
Bara þrír aðrir í sögu MU eru Giggs lítt eða ekki siðri og betri ef eitthvað er, Schmeikel,Keene og Cantona!Og alltaf finnst mér jafnleiðinlegt hve hlutur varnarmanna er fyrir borð borin í slíkum pælingum, MU hefði aldrei staðið sig eins vel fyrir nokkrum árum nema vegna afbragðsframistöðu miðvarðaparsins Bruce og Palisters í mörg ár.
Giggs auðvitað frábær leikmaður, sem hefur átt magnaðan feril með miklum sigrum, en um tíma gekk honum ekkert sérstaklega og hefur ekkert verið svo áberandi á mörgum tímabilum.Spilaði til dæmis ekkert svo mikið allavega framan af sl. ´timabili, en kom sterkur inn er á leið.
Úr öðrum liðum í sögu Úrvalsdeildarinnar væri hægt að nefna engu síðri leikmenn á borð við tony Adams og Paul Gasgoigne og leikmenn sem nú eru á ferðinni á borð við Lampard og Gerrard, eru meiri alhliðaleikmenn heldur en Ryan Giggs.
Framistaða Giggs sl. vikur er bara að villa karlinum sýn, sem auk þess heldur áfram að bulla um dómara og margt fleira!
mbl.is Ferguson: Giggs bestur í sögu ensku úrvalsdeildarinnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ferlegt!

Í einu orði sagt! Í raun ekki mikill munur á liðunum, en þegar hinir rauðu gátu ekki einu sinni skorað í tveimur bestu færum sínum í restina til að bjarga allavega andlitinu, þá þýðir nú lítið að kvarta meir yfir úrslitunum.
Svona er bú boltin og ekki virðast í augnablikinu miklar líkur á meistarabaráttu líkt og í fyrra frá "Strákunum úr Bítlaborginni", en við sjáum nú hvað setur.
mbl.is Chelsea efst eftir sigur á Liverpool
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Ég græt fyrir Gústa"!

J'a, Sunderland grátlega nærri tímamótasigri á MU, en félag það heldur áfram að reddast m.a. á klaufaskap annara og heppni, frekar en eigin getu og yfirburðum í leikjum! Í þetta skiptið nægði það þó bara til að næla í eitt stig, sem er merkilegt út af fyrir sig. Nú spyrja margir eflaust hvort MU hafi nokkuð efni á að hvíla "Gamlingan" Giggs, um leið og margir stuðningsmenn munu örugglega skýra úrslitin vergna fjarveru hans og fleiri, en það dugir auðvitað ekki. Aðdáendur Sunderland eru ekki mjög margir hérlendis, en einn sá allrafrægasti hér norðan heiða er hann Gústi frændi minn og vinur og hefur hann fyrir sitt dæmalausa trygglyndi við félagið sjálfur verið kallaður "Sunderland" um langt skeið! Hann er kannski ekki "langt niðri" vegna endisins á leiknum, en svekkelsi og það skiljanlega situr nú örugglega í honum!
mbl.is Sjálfsmark í uppbótartíma bjargaði Man.Utd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hin léttvæga tilvist martraðarinnar!

Svolítill útúrsnúningur á heiti frægrar bókar eftir Kundera, nema hvað að já hvað, hvað, á maður að segja eftir svona rugl?

Jú, kannski að alveg ljóst sé að LFC muni taka enska meistaratitilinn næsta vor?!


mbl.is Liverpool tapaði í Flórens
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki þó í mér get ég sagt ykkur!

Öðru nær, hef nefnilega skafið af mér um 24 pund eða um 12 kg. sl. fjóra mánuði eða svo!
En þetta er könnun frá '90 til 2007, var nú aldeilis "misléttur" á því langa tímabili.

Keypti mér fyrir nokkrum vikum eitt stykki göngubretti, sem þó er enn að komast almennilega í gagnið.
Algjör snilld held ég slíkt bretti, en í þessu árferði kannski ekki á allra færi að kaupa, kostaði um 120.000 kr... aðeins!
En þetta er langtímafjárfesting, fer ekki í tíma á líkamsrækarstöð, allavega ekki á dagskrá, fyrir kort á einni slíkri auk fata, bensínkosnaðar og fleira yfir veturinn, (8 mán., sept. - mai) borgar maður langleiðina þessa upphæð og brettið því fljótt að borga sig upp.
Auðvitað ekki mikill félagskapur með engum nema sjálfum sér, en þar sem mér líkar ágætlega við mig og finnst ég almennt skemmtilegur, þá er þetta í góðu lagi auk annars!

En því er ekki að leyna, að helsta heilsuvandamál vesturlanda hefur gert sig heimakomið hér sem víðar, óhollusta + ofát = Offita!

Það er hins vegar misskilningur held ég, að orku- og fituríkur matur sé eitt helsta vandamálið. Miklu frekar held ég núna að fenginni reynslu sé,

Sykurinn, hvíta hveitið og saltið!

Atkins heitin var ekki svo vitlaus skal ég segja ykkur!


mbl.is Pundið þyngist í Íslendingum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Elska ekki MU aðdáendur strákin frá LIVERPOOL núna?

Von að spurt sé eftir þessi málalok!
En já bara þokkalegur leikur þar sem nú bæði "grís" einu sinni sem oftar og gáleysi eða öllu heldur vitlaus herfræði held ég, varð til þess að MU vann!
Eins og þetta spilaðist virtist MC nefnilega bara vera komið til að ná jafntefli, dróg alltaf af sér eftir að hafa jafnað, en MU vildi auðvitað vinna enda á heimavelli!
En semsagt, MC geta því meir kennt sjálfum sér held ég og auðvitað einu sinni enn, heppni MU, um að fá ekkert út úr þessum leik!
Teves sefur væntanlega ekki í nótt, frábær, en það skilaði engu.
Spurning hvort MC hefðu ekki átt að horfa vel og rækilega á MU og Liverpool á sama velli síðast, þá hefðu þeir séð hvernig á að SIGRA þarna!
mbl.is Owen með sigurmark í sjö marka Manchesterslag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég er hugsi og mér er spurn...,

...eru samtökin Indefence í raun bara hópur tækifærissinna sem vilja ná athygli, stjórnað að mestu af fylgjendum stjórnarandstöðuflokkanna?
Þessi stíll og áróðursaðferð við að vekja á sér athygli og sinni tilvist sem og fleira er áður hefur birst, gefur mér tilefni til að velta vöngum og pæla í því!
Það eru og hafa ekki verið góðir kostir fyrir stjórnvöld í öllu þessu leiðindamáli og alveg ómögulegt er að koma auga á hví þessi leynd á leynd ofan á eða hefði átt að koma sér vel fyrir þau!
En tækifærismennska og lýðskrum lætur auðvitað ekki að sér hæða nú frekar en fyrri daginn!
mbl.is Segja stjórnvöld leyna Icesave-gögnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stúlka stoltsins verð!

Held að já alveg óhætt sé að fullyrða, að norðanmenn eru yfir sig ánægðir og stoltir af Rakel, sem og fyrr af Ástu árna er hún lét fyrst að sér kveða með landsliðinu.
Hún er svo greinilega með hugarfarið í lagi og fæturnar á jörðinni,af þessu spjalli við mbl. að dæma sem og almennt framkomu sinnii, virkar sem vel gefin og heilsteypt tvítug stúlka!

Til frama fullyrði ég,
frekar arka mun veg.
Hæglát en hraust,
hiksta já laust .
Hún Rakel er ROSALEG!


mbl.is Rakel: Ekkert vanmat í gangi hjá okkur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Í fréttum er þetta helst.."

Sem stundum fyrr eru fréttavegir mbl. órannsakanlegir!

Ég bara að því get ekki gert,
þó gersemis reyni"hann" tík
Það teljist já tíðindavert,
týna hundi í Reykjavík?!

En þegar einhver týnist eða hverfur og auglýst er eftir honum, er nú venjan allavega þegar mannskepnur eiga í hlut, að láta nafnið fylgja með.
En þrátt fyrir að þessi hvutti er þess verður að komast í innlendar fregnir vegna hvarfs síns, þykir ekki ástæða til að geta nafns hans, sem ég gef mér að hann hljóti að eiga. því ef að nú einhver kæmi auga á hann til dæmis út á víðavangi, væri ekki verra að vita nafnið, en eins og þeir sem þekkja til hunda vita, þá er það nú oftast besta leiðin að ná til þeirra, að kalla nafn þeirra.


mbl.is Hundur týndur í Reykjavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ætli Logi hafi svo flutt "Stórfréttina"?

Sá að sá ljúfi drengur og duglegi golfari var að lesa fréttirnar í kvöld á stöðinni, en missti af byrjuninni svo ég veit ekki svarið við þessari "mikilvægu" spurningu!
En fyrirsögnin er fyndin, hljómar eins og á íþróttafrétt, með íllkvittni mætti því spyrja líka hvað flokkurinn hafi þurft að borga fyrir fljóðið föngulega?
ÉG get annars bara giskað svona til gamans!

Fengur telst hún fullgildur,
fríð og gáfuð mær.
Keypt til "Sjalla" Svanhildur,
svona á "millur" tvær?!

Hver veit nema hún bara lesi þetta sjálf og komi með svarið?


mbl.is Svanhildur til Sjálfstæðisflokks
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Pælt um heima og geima

Höfundur

Magnús Geir Guðmundsson
Magnús Geir Guðmundsson
Áhugamaður um flesta hluti.

Nýjustu myndir

  • wmftcs
  • mgg
  • ...mg2_251805
  • ...mg2_251804
  • ...mg2

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 11
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 10
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband