5.5.2009 | 20:52
Þessi niðurstaða þýðir, að varla þarf að spila úrslitaleikinn!?
Enenen, ekki misskilja þessa fyrirsögn, MU unnu jú góðan sigur nú, litaðan að vísu af endemisklaufaskap og einbeitingarskorti Arsenaldrengja. En þessi úrslit þýða, að næstu Evrópumeistarar verða anna hvort Barcelona eða Chelsea!
Að vísu ætti MU kannski svona 10% sjéns í þá bláu eins og þeir eru sterkir núna, en varla meira en kannski 3% í "El Barca" eins og þeir leika hvað best og sýndu t.d. svo stórkostlega á móti Real Madrid um sl. helgi!
Þannig er það bara eins og það lítur út blákalt metið í dag!
Og ef það hefði verið LFC sem MU ætti að mæta, þá væru möguleikarnir einfaldlega 0,0% og undir það hljóta allir góðir og sanngjarnir fótboltamenn að taka af skilningi og raunsæi!?
En aumingja Arsene, hann hefur greinilega aldrei heyrt orðatiltækið góða, að "Fæst orð hafi minnsta ábyrgð" karlgreyið, fullyrti að hans menn myndu leika stórkostlega og sigra!
ÆÆÆ, ég get ekki sagt annað og vorkennt honum í aðra röndina!
Man Utd. í úrslitaleikinn eftir 3:1 sigur á Arsenal | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Pælt um heima og geima
Eldri færslur
- Desember 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- Janúar 2013
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Janúar 2011
- Nóvember 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
Bloggvinir
- Jens Guð
- arnar valgeirsson
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Big Fats Slim
- Blúshátíð í Reykjavík
- Brynjar Davíðsson
- Einar Bragi Bragason.
- Eva Benjamínsdóttir
- Eygló
- Gulli litli
- Heiða Þórðar
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Hildur Sif Thorarensen
- Hlynur Hallsson
- Hólmdís Hjartardóttir
- Inga Lára Helgadóttir
- Ingvar Valgeirsson
- Jenný Anna Baldursdóttir
- Jóhanna Magnúsdóttir
- Kolbrún Stefánsdóttir
- Kristinn Halldór Einarsson
- Kristín Einarsdóttir
- Kristín M. Jóhannsdóttir
- Kristján Kristjánsson
- Kristján Logason
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
- Oddur Helgi Halldórsson
- Ólafur Ragnarsson
- Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
- Rannveig H
- Sema Erla Serdar
- Sigþrúður Þorfinnsdóttir
- Sjónstöð Íslands
- Solla Guðjóns
- Steingrímur Helgason
- Svala Jónsdóttir
- Svavar Alfreð Jónsson
- Vefritid
- Víðir Benediktsson
- Þórarinn M Friðgeirsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
hahahahaahahahahahahahaahahahahaahahaha! Þetta er með fyndari færslum sem ég hef lesið! Takk fyrir góðan húmor þó ég skynji smá biturleika í honum :D
Greyið Arsenalmenn! Eigið mína samúð að vera með svona ungt og óreynt lið.
Hjalti (IP-tala skráð) 5.5.2009 kl. 21:00
Ekki svaravert, tapsári Liverpool drengur. Nokkuð ljóst að Ars nær í jafn marga titla og Liver....
Þórður Helgi Þórðarson, 5.5.2009 kl. 21:02
vá ....... er ekki bara spurning um að snúa sér að einhverjum af hinum hlutunum sem þú ert áhugamaður um þar sem það er nokk klárt að fótboltavitið vefst ekkert allt of mikið fyrir þér ..... ;)
Jóhann (IP-tala skráð) 5.5.2009 kl. 21:09
Takk fyrir það Hjalti og haltu endilega áfram að hlægja, alltaf gaman að geta skemmt fólki! En, engin biturð, ekki fylgismaður Skyttanna, þó ég beri hlýhug til þeirra.
En Doddi litli minn kæri, hvað varð um húmorinn hjá þér!? Við sjáum nú til með titlanna, "Þetta er ekki búið fyrr en það er búið" og það segir hinn geðþekki leikmaður MU, Paul Scholes enda líka!
Magnús Geir Guðmundsson, 5.5.2009 kl. 21:12
hvað segir þú Jóhann,viltu nammi væni?
Magnús Geir Guðmundsson, 5.5.2009 kl. 21:13
Mér fannst nú bara ágætis húmor í þessu hjá mér....Það hreyfir alltaf skemmtilega við Liverpool mönnum þegar maður talar um titla, eitthvað sem þið eigið ekki að venjast síðustu árin.. áratugina
Þórður Helgi Þórðarson, 5.5.2009 kl. 21:52
Það hlýtur að vera e.h. púki í lyklaborðinu hjá þér Magnús. Ég er viss um að þú meintir að þeir bláu ættu ekki nema 10% séns í MU, og Barca 3%, en maður verður að fyrirgefa þér þetta fyrst að lyklaborðið er svona skondið hjá þér.
Hjörtur Herbertsson, 5.5.2009 kl. 21:53
éttu þitt nammi sjálfur góði, ég er saddur
Jóhann (IP-tala skráð) 5.5.2009 kl. 21:58
Merkilegt að þú sért að bauna á Wenger með að "fæst orð beri minnsta ábyrgð" og skrifir þennan pistil um leið, eins arfavitlaust og hann er!
Það verða fjórir tiltlar hjá mínum mönnum þetta tímabilið! Engin spurning! Enda besta lið allra tíma og með besta stjóra allra tíma.
Aðalsteinn Jóhannes Halldórsson (IP-tala skráð) 5.5.2009 kl. 22:18
Hehe. Merkilegt að segja að Júnæted séu lélegir eftir að hafa rústað sterku liði Arsenal. Eins og það sé einhver mælikvarði að vinna Real Madrid? Þeir töpuðu jú í Meistaradeildinni fyrir liðinu frá Everton, hvað heitir það nú aftur?
Ólafur Gíslason, 5.5.2009 kl. 22:26
Ekki málið Doddi litli, en ekki stemmir nú að titlaleysi hafi hrjáð LFC síðustu ár og áratugi, nema hvað sá enski hefur ekki komið í hús nei í um tvo áratugi.
Hvað þá um kaffi J. minn? Þú ert alltof æstur eitthvað og með derring!
Magnús Geir Guðmundsson, 5.5.2009 kl. 22:55
Ólafur minn, létt í þér og það er bara fínt, en ég sagði nú alls ekki að MU hefðu verið lélegir, menn eiga að lesa vandlega þegar MEISTARINN ritar sinn eðaltexta!
Magnús Geir Guðmundsson, 5.5.2009 kl. 23:00
Takktakk hjörtur minn, þú sýnir réttsýni og góðsemi og hver veit nema að svona 4% líkur séu á að þú hafir bara rétt fyrir þér, sem er nú allnokkuð!?
Magnús Geir Guðmundsson, 5.5.2009 kl. 23:03
Alli þó, minn góði bróðir í ÞYNGSLAROKKSTRÚ, mátt nú ekki fyllast augnaofbirtu og svífa værukær á vængjum ofurraunsæis!
SVo var ég ekkert að bauna neitt á kallinn, bara staðreynd að hann hafði uppi þessa stóru yfirlýsingu fyrir leikin, en strákarnir hans stóðu bara ekki undir því. N'u, ef þú lest nú litlu sætu færsluna mína aftur í ró og næði, þá muntu líka sjá, að ég er í raun ekki að fullyrða neitt sem ég get ekki staðið við, ekki þannig séð!
Bestu kveðjur austur í víkina góðu!
Magnús Geir Guðmundsson, 5.5.2009 kl. 23:11
er ekki æstur minn kæri, finnst þessi færsla þín bara arfavitlaus og bera lítinn vott um vit á knattspyrnu. kallaðu það að vera með derring ef þú vilt.
Jóhann (IP-tala skráð) 5.5.2009 kl. 23:29
Æ, gerðu mér nú greiða Jóhann minn, útskýrðu betur hvað þú átt við, já og segðu mér hvernig þetta hefði átt að hljóma með viti!?
Magnús Geir Guðmundsson, 5.5.2009 kl. 23:39
Ég er feginn að það verða annað hvort Chelsea eða Barcelona sem mæta United í úrslitum en ekki Fulham... United tekur úrslitaleikinn örugglega hvort liðið sem það verður... enda United besta lið sem ég hef séð spila...
Brattur, 5.5.2009 kl. 23:44
Þú hefur þá ekki séð mikið fleiri lið spila Brattur minn!?
Magnús Geir Guðmundsson, 6.5.2009 kl. 00:18
ef þú þarf frekari útskýringu þá á ég við þessa fullyrðingu þína að MU eigi í besta falli 10% möguleika á að vinna úrslitaleikinn, og kallar þetta svo "blákalt mat". Þú ert reyndar svolítið fyndinn ef maður spáir í það ....
Jóhann (IP-tala skráð) 6.5.2009 kl. 10:25
Já Jóhann, ert að koma til, en ættir samt að spara stóru orðin, hvað sem þér þó finnst um skrif einhvers, þá áttu ekki að draga ályktanir um persónu hans út frá þeim. Ég var þó í aðra röndina að fistak eftir slíkum viðbrögðum sem þínum.
Magnús Geir Guðmundsson, 6.5.2009 kl. 18:23
Fiska eftir, átti að standa þarna.
Magnús Geir Guðmundsson, 6.5.2009 kl. 18:26
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.