Einbeitingarskortur!

Í einu orði sagt já!
En, þessi úrslit skipta ekki neinum sköpum í titilbaráttunni, hún er enn í algleymingi og verður það líkast til allt fram á vor og e.t.v. ekki bara á milli Man. Utd og Liverpool heldur alveg eins Aston villa, Arsenal og/eða Chelsea!
Jafntefli annars leiðinleg úrslit, sérstaklega þegar þitt lið á nær undantekningarlaust að fá meir út úr leiknum en það.
En eins og þar stendur,

SVona er fótboltinn!


mbl.is Cahill jafnaði og Liverpool ekki á toppinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Víðir Benediktsson

Víðir Benediktsson, 19.1.2009 kl. 22:10

2 identicon

Já man.utd aðdáendur kættast núna,,,,, enn ég er klár á því að man.utd á eftir að tapa stigum líka!

Þráinn Maríus (IP-tala skráð) 19.1.2009 kl. 22:32

3 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

TAkk fyrir Þetta Víðir, hvað sem það svo á að þýða orðalaust!?

Jamm Þráin, löng barátta framundan!

Magnús Geir Guðmundsson, 19.1.2009 kl. 22:42

4 Smámynd: Steingrímur Helgason

~þú skokkar einn á vegg...~

Steingrímur Helgason, 19.1.2009 kl. 22:44

5 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Þú segir ekki STeini!?

Magnús Geir Guðmundsson, 19.1.2009 kl. 22:46

6 identicon

Bara eitt Magnús,,,,,,,,,, það er villa í færslunni hjá þér!!! það á ekki að skrifa man.utd með stórum staf!

Þráinn Maríus (IP-tala skráð) 19.1.2009 kl. 22:47

7 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Nei Þráin, ekki man. utd með stórum staf, en MU eru stórir stafir!

Magnús Geir Guðmundsson, 19.1.2009 kl. 23:02

8 Smámynd: Brattur

... Þráinn, auðvitað er villa í færslunni... Aston Villa... og þeir lenda í 2. sæti á eftir United.... aðrir verða neðar...

Brattur, 20.1.2009 kl. 00:01

9 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Við spyrjum að leikslokum!

Magnús Geir Guðmundsson, 20.1.2009 kl. 02:15

10 identicon

Hvar er gorgeirinn sem einkenndi þig í haust og fram að áramótum?!! :D :D :D

Addi E (IP-tala skráð) 20.1.2009 kl. 09:20

11 Smámynd: Þórarinn M Friðgeirsson

Ég hef tekið ákvörðun, drastíska ákvörðun og hún er sú að ég er hættur að vera Poolari, minn stuðningur við Liverpool hefur verið þeim til trafala og nú er svo komið að það er ekki spurning hvað liðið þitt gerir fyrir þig heldur hvað þú gerir fyrir liðið þitt og þar sem spádómar mínir og framsýni hafa til þessa orðið mínu fyrrverandi liði til vansa þá er ákvörðun mín sú að allavega fram á vorið mun ég verða einlægur stuðningsmaður United besta liðs í heimi en stuðningurinn verður mest í orði og mun ég ausa úr viskubrunni mínum þeim til handa þar til þessari leiktíð líkur eða allavega eins lengi og ég hef nennu til......Er það von mín að minn stuðningur við þá muni leiða til þess að mínir fyrrverandi "Lúserpool" verði meistari í vor. Kv. Tótinn

Þórarinn M Friðgeirsson, 20.1.2009 kl. 09:27

12 Smámynd: Hjörtur Herbertsson

Jæja eru púllarar afskaplega niðurlútir í dag,og það niðurlútir að það á bara að hætta að vera púllari Þráinn ég býst alveg við því að Utd eigi eftir að tapa stigum(en þau verða ekki mörg) það eiga púllarar eftir að gera líka,og toppliðin öll.

Hjörtur Herbertsson, 20.1.2009 kl. 09:47

13 Smámynd: Kristinn Halldór Einarsson

Ef ég fer rétt með þá er Liverpool nú búið að gera núna 5 jafntefli á heimavelli og vinna 5 leiki á heimavelli. Samkvæmt þessari tölfræði er miklar líkur á því að jafnteflin á heimavelli verði fleiri og mörg lið munu hafa trú á því að þau geti farið á Anfield og náð jafntefli, líkurnar eru jú 50% ef marka má árangurinn á tímabilinu fram til þessa, og það er meira en hálfnað. Þeim fjölgar óðum sparkspekingum í Englandi sem spá því að Lverpool muni heltast úr titilbaráttunni á næstu vikum. En við sjáum til. allavega erum við United menn sáttir eins og hún er núna og leikmenn liðsins þekkja þessa stöðu vel og hafa skilað titlinum undanfarin t tímabil eftir að hafa komist í svipaða stöðu.

Kristinn Halldór Einarsson, 20.1.2009 kl. 10:09

14 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Engin gorgeir hér bara GEIR, Addi litli rausari!

Hjörtur kann að lesa og því sér hann að síðuritari er hinn rólegasti og sagði sömuleiðis fyrirfram, að úrslit þessa leiks skiptu engum sköpum.

Hahaha Tóti, þú ert með kímnigáfuna sannarlega í góðu lagi, eitthvað sem margur MU aðdáandin á ekki til!

En Kristinn minn Halldór, þú ert hinn mesti auðfúsugestur að MU aðdáanda að vera og akkur sömuleiðis af hve talnaglöggur og minnugur þú ert! Þó myndi ég nú ekki reikna dæmið þannig að líkurnar séu fimmtíu prósent á að gestir nái jafntefli á Anfield þ.e. 1 á móti 2, heldur 1 á móti 3, vþí þótt litlar líkur séu á, er möguleikin að vinna sigur alltaf fyrir hendi líka í upphafi leiks, þó það hafi ekki enn gerst í deildinni og rúmt ár liðið frá tapi síðast. Eða miðað við að liðið vinni 2 af hverjum 3 það sem af er, 10 af 15 en 1 af 3, fimm, endi með jafntefli kann ég ekki að reikna þetta öðruvísi.

Þú leiðréttir mig bara ef ég er að miskilja þetta.

Magnús Geir Guðmundsson, 20.1.2009 kl. 20:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Pælt um heima og geima

Höfundur

Magnús Geir Guðmundsson
Magnús Geir Guðmundsson
Áhugamaður um flesta hluti.

Nýjustu myndir

  • wmftcs
  • mgg
  • ...mg2_251805
  • ...mg2_251804
  • ...mg2

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 6
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 218006

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 15
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband