Aumingja "UNI-TEDDAR"!

Já, ég verð nú bara að segja það núna, ljóta sæmið að þetta skildi fara svona fyrir United, hefðu að sjálfsögðu átt að fá víti þarna í byrjun, ronaldo fellur náttúrulega aldrei svona eða dettur inn í teig nema að einhver togi eða sparki í hann, hefði líka mátt að minnsta kosti gefa Frakkanum þarna gult líka!
Og svo hefði ekkert átt að dæma þetta víti á greyið hann tomas Cuzac fyrst ekki var dæmt á hitt!
Því eru auðvitað allir sannir Unitedmenn sammkála!?
Æjá, hrikalegt tap og agalegt að nýta svo ekki öll færin!

Já, óvænt var tapið hjá "Teddum",
enn trúa vart sínum augum.
Það syrgja nú brotnir í beddum,
búnir alveg á taugum!

Ronaldostrákurinn hefði kannski átt að spara sér stóryrðin fyrir garmurinn, talaði þá eins og það væri nánast á hreinu að vinna tvo eða þrjá bikara.
en það kemur víst annar leikur eftir þennan, önnur bikarkeppni eftir þessa!


mbl.is Portsmouth sigraði Man Utd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Ég fór á taugum, hætti að horfa, fór svo inn aftur og hélt áfram, fór aftur á taugum og hóf að öskra mikið og hátt - dagfarsprúð manneskjan...  Þetta var hrikalegur leikur í alla staði. Sá sem á eftir kom var lognmolla í samanburði.

Lára Hanna Einarsdóttir, 8.3.2008 kl. 17:52

2 Smámynd: Steingrímur Helgason

Ég viðurkenni það aldrei að ég hafi haft samúð með Mumuinu, en næstum því þó.

Leikurinn í heild var gargandi sönnun á því að réttlæti er oft skemmtilega fjarri í fótbolta.

Steingrímur Helgason, 8.3.2008 kl. 18:00

3 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

ææ,vonandi hefur þú öxl til að emja á leiða Lára Hanna, en ef ekki þá er það bara BEDDINN!

Hehe STeingrímimus, næstum því næstum því samúð já, en ekki alveg!

Og nei, réttlætið finnur sér ei stað þar sem leðurtuðra rúllar um græna bala!

Magnús Geir Guðmundsson, 8.3.2008 kl. 18:53

4 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Iss, ég er ekkert leið, Magnús minn Geir. Tek þessu létt og leikandi - engin trúarbrögð hér, takk fyrir. En það er gaman að þessu og vel spilaður bolti gleður augað...   

Lára Hanna Einarsdóttir, 8.3.2008 kl. 21:54

5 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Jæja, eins gott að svo er, vil ekki að Bloggvinirnir séu plagaðir af þunglyndi og harmi haha!

Magnús Geir Guðmundsson, 9.3.2008 kl. 00:15

6 Smámynd: Eysteinn Þór Kristinsson

Já það er alltaf gaman að fylgjast með baulinu í SAF eftir tapleiki.

Eysteinn Þór Kristinsson, 9.3.2008 kl. 08:25

7 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Skil ekki baun í bala í knattspyrnu.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 9.3.2008 kl. 13:51

8 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hehe, elska fótboltablogg, því þar get ég sett inn nó kommentó með góðri samvisku.  Þ.e. vegna þess að ég hef ekki hundsvit á honum.

Held með Bítlunum.

Jenný Anna Baldursdóttir, 9.3.2008 kl. 14:44

9 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

rétt Eysteinn, hann er alltaf svo orðfagur!

En elsku Cesil, þú veist þó að húsið þitt er í laginu eins og bolti og reyndar fleira sem strákum ekki síst finnst skemmtilegt að "brasa í" haha!

Takk mín ágæta Jenný, bara verst hvað þessir Bítlar þarna spila lítið!?

Magnús Geir Guðmundsson, 9.3.2008 kl. 16:46

10 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Hver er SAF?

Lára Hanna Einarsdóttir, 9.3.2008 kl. 17:59

11 identicon

Svo ég svari nú fyrir Meistarann þá hlýtur SAF að vera sir Alex Ferguson... annars Maggi, þú ert alltaf umkringdur fallegu kvenfólki, jafnvel þó þú sért að skrifa um fótbolta, það er æðislegt.

Bubbi J. (IP-tala skráð) 9.3.2008 kl. 21:31

12 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Jájá, fallegar ungar konur á öllum aldri laðast að mér, minn kæri Bubbi, en gallin bara sá að þær staldra aldrei of lengi við haha!

En þessar sem eru he´rna eru allar skotheldar skutlur!

Já Guðjón minn, það eru merkilegt nokk ekki alltaf jólin hjá M.U, en ansi oft samt!

Og takk Bubbi, Eysteinn átti við Sir Alex þarna!

Magnús Geir Guðmundsson, 9.3.2008 kl. 22:29

13 Smámynd: Brynja skordal

Horfi Aldrei á fótbolta nenni ekki að eyða tíma í að horfa á einhverjar boltabullur rífast um einn bolta hafðu góðar stundir

Brynja skordal, 10.3.2008 kl. 00:06

14 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Þú segir ekki Brynja, (ekki síðri fegurðardís en hinar!) ert þá um það bil eina kvinnan að kannski þremur á Skaganum sem EKKI elskar boltarúllið!

Magnús Geir Guðmundsson, 10.3.2008 kl. 16:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Pælt um heima og geima

Höfundur

Magnús Geir Guðmundsson
Magnús Geir Guðmundsson
Áhugamaður um flesta hluti.

Nýjustu myndir

  • wmftcs
  • mgg
  • ...mg2_251805
  • ...mg2_251804
  • ...mg2

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 218018

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband