Barátta í járnum!

Mjög góð grein hjá Bjarna þó ekki sé hún löng né orðmörg!
ÁHersluþungin í þessari frétt og fyrirsögnin er hins vegar aðfinnsluverður, meginumfjöllun greinarinnar er a benda á að við höldum nokkuð vel sjó ennþá eða allavega fram til ársins 2004, hvað varðar áfengisvarnarmál.Notar jú vissulega orði meinlausari neysla eftir tilkomu bjórsins vegna þess að tíðni sjúkdóma skorpulifur og Lifrarbólgu C í samspili með alkahólisma almennt og fylgifiskum hans, (glæpa m.a.) hafi ekki aukist í samræmi við mun meiri neyslu, en sé þó svipað hlutfall.
Það má reyndar alveg vera ósammála því mati Bjarna að drykkjan sé endilega meinlausari þótt afleiðingum aukinnar neyslu hafi ekki fylgt meiri afleiðingar, því lögleiðing bjórsins átti jú beinlínis af helstu boðberum að BÆTA ástandið og mynda með tímanum eitthvað sem kallað var og kallað er enn "Drykkjumenning"!? Það hefur nú svo sannarlega ekki gerst enn, tæpum tuttugu árum eftir lögleiðingu bjórsins og vel gæti svo verið að tölur sl. þriggja ára sem vantar hér sýni verra ástand ekki hvað síst er varðar lögbrot í tengslum við áfengisneyslu og aðrar afleiðingar er ný þekking hefur leitt í ljós.
Nú, en eins og fleira skynsamt fólk með þekkinguna að leiðarljósi, er Bjarni svo að vara við að rugga bátnum, ástandið er viðkvæmt og það jákvæða sem lesa megi úr áðurnefndum upplýsingum geti verið í hættu ef svo færi að lögum um áfengissölu yrði breytt!
Á það er nú áherslan í grein hans mest auk þess að draga fram sem besta heildarmynd af ástandinu nú (aftur þó ekki nær en til 2004) sem þó eins og kunnugt er, misvitrir fulltrúar þjóðarinnar á alþingi vilja nú breyta til að treysta atkvæðin sín væntanlega og í þágu einvhers þokukennds frelsishjals, sem er þó ekki annað en hjóm eitt þegar grant er skoðað!
mbl.is Drykkjusiðir Íslendinga orðnir meinlausari
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Skál !

Bubbi J. (IP-tala skráð) 13.1.2008 kl. 21:17

2 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Sömuleiðis "Bragi minn"!

Magnús Geir Guðmundsson, 13.1.2008 kl. 22:22

3 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Frekar ruglingsleg færsla hjá þér Magnús, ertu fullur? Auk þess finnst mér Bubbi Morthens leiðinlegur tónlistarmaður!

Gunnar Th. Gunnarsson, 14.1.2008 kl. 00:32

4 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Já GHr. Gunnar, fullur af skynsemi!

Annars "sláinyfir" eins og fleira stundum úr þessari áttinni, en bara hið besta mál þótt þér finnist kóngurinn leiðinlegur!

Magnús Geir Guðmundsson, 14.1.2008 kl. 10:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Pælt um heima og geima

Höfundur

Magnús Geir Guðmundsson
Magnús Geir Guðmundsson
Áhugamaður um flesta hluti.

Nýjustu myndir

  • wmftcs
  • mgg
  • ...mg2_251805
  • ...mg2_251804
  • ...mg2

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 218026

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband