Sigur með brögðum og tímabundið toppsæti!

Sú staðreynd að leikmenn Wigan stóðu sig geysivel í fyrri hálfleik, en lyppjuðust svo niður í seinni hálfleik eins og aumustu slitti, á sér kræfar skýringar!
Glaðir og reifir en um leið svolítið svekktir að hafa ekki skorað í fyrri hálfleik, hlupu þeir til búningsklefa síns og voru staðránir í að gera í það minnsta jafn vel í þeim síðari.
En hvað haldið þið!
Ekki aðeins höfðu starfsmenn United meðan á fyrri hálfleik stóð, bónað gólfið hálfu meir en ella, þannig að þrír leikmanna Wigan urðu fyrir tognun er þeir komu á ferðinni inn í klegan í leikhléinu, heldur varð sá fjórði að spila með sorg í hjarta í þeim seinni, er kærastan Í ALVÖRU (ekkert Irelandhneyksli á ferð!) gerðist svo heimsk að hringja á þessum "Ókristilega tíma" og segjast fara í fóstureyðingu ef hann kvæntist henni ekki strax!
Og ekki nóg með það, heldur voru þrjár starfsstúlkur vallarins látnar spígspora fram og aftur fyrir utan dyr búningsklefans hjá Wigan, íklæddar flegnum bolum, stuttpilsum og undir þeim nærbuxnalausar!
Stjóri Wigan gerði örvæntingafulla tilraun til að stoppa þetta, kvartaði við dómarann, en hann sagðist bara ekki geta stoppað að "Fegurð lífsins" nyti sín!?
Niðurbrotnir og haltir snéru því leikmenn Wigan aftur út á völl og með hugan að auki við ALLT ANNAÐ EN BOLTA ÚR LEÐRI!
Og úrslitin eru ljós og verður víst ekki breytt, en svona óþverrabrögðum geta Man. UTD sem betur fer bara beitt heima, svo toppsætið verður nú skammvin sæla!
Ásama tíma á morgun eða aðeins seinna verður allt breytt!
mbl.is Manchester United efst eftir stórsigur á Wigan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Alltaf í boltanum ?????

Björn Jónsson (IP-tala skráð) 6.10.2007 kl. 17:12

2 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Jamm,maður reynir stundum að sjá spaugilegu hliðarnar og segja líka frá þeim! Að vísu var þetta þó ekkert gamanmál í tilfelli annars liðsins!

Magnús Geir Guðmundsson, 6.10.2007 kl. 18:04

3 Smámynd: brahim

Þú hlítur að vera poolari greyið, hefðir mátt nefna að MU misstu 2 byrjunarliðsmenn útaf vegna grófrar tæklingar Wigan manna & þar fyrir utan eru gólfin altaf þrifin í hálfleik og kemur því þessu bulli þínu ekkert við. Sættu þig bara við það að þú heldur með slakara liði.

brahim, 7.10.2007 kl. 12:52

4 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Óttalegt viðkvæmnisvæl er þetta, átt að taka félaga þinn í "Djöflatrúnni" hann Línberg þér til fyrirmyndar, fýlupúkinn þinn!

Magnús Geir Guðmundsson, 7.10.2007 kl. 13:27

5 identicon

Haha, nákvæmlega.

Ég er Man utd. maður og þetta lét mig hlæja upphátt. Meira svona

Elvar Örn Unnþórsson (IP-tala skráð) 8.10.2007 kl. 17:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Pælt um heima og geima

Höfundur

Magnús Geir Guðmundsson
Magnús Geir Guðmundsson
Áhugamaður um flesta hluti.

Nýjustu myndir

  • wmftcs
  • mgg
  • ...mg2_251805
  • ...mg2_251804
  • ...mg2

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 15
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband