Af hógværð skildu menn hæla sér!

Eins og hver annar þegn í þessu landi, gleðst ég í hvert sinn sem tekst að hemja í einhverju þá vá, sem fíkniefnasala og neysla sannarlega er!
Rík ástæða er líka til þess nú, í þessu tilfelli fyrir austan, sem enn á þó eftir að skýrast betur!
Hinir tveir yfirmenn löggæslumála sem stígið hafa fram og þá sérstaklega sá æðri, finnst mér þó spenna bogan örlítið hátt er hann leynt og ljóst fjölyrðir um hversu vel hann og hans menn hafi nú staðið sig í þessu mikla máli í samráði við Evrópulögregluna! Ekki laust við að í máli hans örli á smá stærilæti yfir afrekinu og gott ef ekki bara grobbi!
Þannig fannst mér hann nú hljóma blessaður og einnig svolítið líka sá yngri er hefur með lögreglumál að gera, hljómuðu strax sigri hrósandi, í stað þess að greina frá málum af hógværð!
Eldra yfirmanninum er kannski vorkun, hann staðið í mikilli orrahríð sl. misseri vegna Baugsmála og hefur mátt sæta þungum ásökunum þar, því kannski ekki nema von að hann grípi tækifærið nú með kastljósið á sér til að "rétta sinn hlut"!?

Spyrjum að leikslokum!

En hvðí er ég að nöldra þetta, þegar menn eiga að gleðjast yfir að líkast til stærsta smygl til landsins á fíkniefnum hafi verið stöðvað?
Jú, ég vil spyrja að leikslokum, minnugur þess að því miður hafa fleiri en eitt og fleiri en tvö tilfelli af svipuðum toga eða öðrum yfirgripsmiklum misferlum, farið úrskeiðis með slæmum afleiðingum í meðferð lögreglu og síðar saksóknara!
En það er vissulega gleðiefni út af fyrir sig, að komið hafi verið í veg fyrir innflutningin á þessu mikla magni fíkniefnanna, því einu og út af fyrir sig ítreka ég já og því ber að fagna!
En svo er það bara eftirleikurinn, að lög og rétti verði með tilhlýðilegum hætti komið yfir þá sem fyrst og síðast eiga sök og þeir hljóti dóm sem nemur glæp þeirra!
Þá fyrst fyrir alvöru geta menn lyft glösum og barið sér á brjóst, en ekki fyrr!


mbl.is Lögregluaðgerðum að mestu lokið í Fáskrúðsfirði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þakka þér fyrir ágætis innlegg í umræðuna. En ég vil spyrja, er einhver sigur í sjálfu sér að lögum sé komið yfir þessa menn sem stóðu að þessu og að fíkniefnin hafi verið gerð upptæk? Jújú, að vissu leiti kann það að vera það, mennirnir brjóta ekki af sér á meðan og við forðuðum helling af einstaklingum frá neysluævintýrum sínum og frjálsum vilja sínum, en eigum við nokkuð að vera að fagna fyrr en við förum að sjá minni fíkniefnaneyslu á Íslandi? Að frjáls vilji fólks breytist, að fólk hafi ekki lengur áhuga á fíkniefnum og neyslu þeirra væri að mínu mati mun meiri árangur. Ég hefði haldið að það sé tilgangurinn með þessu "eiturlyfjastríði" sem verið er að há á landinu okkar að stemma stigu við neyslunni sjálfri, sem er hornsteinn fíkniefnainnflutnings og -sölu. Þegar sá dagur rennur upp að ég sé fíkniefnaneyslu íslendinga minnka vegna aðgerða lögreglu og stríðsins í heild, í stað fregna um aukna neyslu og fjölgun fíkniefnaafbrota ár frá ári, þá fyrst lyfti ég glösum og ber á brjóst mér. En í fullri hreinskilni held ég að sá dagur muni seint renna upp með þeim aðferðum sem við beitum í dag, á meðan eftirspurn er til staðar þá verða fíkniefni flæðandi inn í þetta land okkar. Við getum bannað efnin, en við bönnum aldrei eftirspurn, og þar með getum við aldrei komið í veg fyrir viðskipti með þessi efni með boðum og bönnum.

Daði (IP-tala skráð) 20.9.2007 kl. 17:21

2 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Þú heldur semsagt að eftirspurnin muni mínka ef eiturlyf verði lögleg?

Ekki deili ég þeirri skoðin með þér ef svo er!

Og ef þú trúir því að þeir sem eru verstu neytendurnir, séu bara og hafi byrjað í neyslu "af frjálsum vilja", þá erum við enn frekar á öndverðum meiði!

Í þessu einangraða máli er viss sigur unnin, ef ú vilt orða það þannig, en allur ekki fyrr en já allir sem sök eiga, fái makleg málagjöld!

Fíkniefnaneysla hefur í einhverjum yngri aldurshópðum minnkað í landinu, þökk sé miklum áróðri og fræðslu geri ég ráð fyrir! Helsti vandin mun vera í aldurshópnum 20-30 ára.

8% þeirra sem leitað hafa á Vog frá 1996 vegna anfetamínneyslu eru látnir nú, af því þeir höfðu "Frjálsan vilja" til þess eða hvað?

Magnús Geir Guðmundsson, 20.9.2007 kl. 19:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Pælt um heima og geima

Höfundur

Magnús Geir Guðmundsson
Magnús Geir Guðmundsson
Áhugamaður um flesta hluti.

Nýjustu myndir

  • wmftcs
  • mgg
  • ...mg2_251805
  • ...mg2_251804
  • ...mg2

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 218061

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 18
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband