Loks mælir Magnús, en meira þarf til!

Eftir að miður góð umfjöllun um einelti á Veðurstofu Íslands hefur átt sér stað í Sjónvarpinu síðan fyrir helgi með tilheyrandi viðbrögðum í þjóðfélaginu, m.a. hér í bloggheimum, birtist loks hinn rólyndislegi Veðurtofustjóri magnús Jónsson í viðtali og hefur tíðindi að færa!
Viss niðurstaða sé komin í málin, ónefndur sviðsstjóri hefur verið færður um set að undangenginni úttekt óháðs skoðunaraðila auk þess sem önnur ráð hafa verið fyrirhuguð til að skerpa á innviðum vinnustaðarins.Það og fleira á að stuðla að betri og væntanlega friðsamari vinnuumhverfi!
Aðspurður um vhí lengi hafi sem raun ber vitni, tekið að bregðast við vandanum, sem vissulega kom ekki upp fyrir helgi, þá útskýrði Magnús það með ýmsum flóknum lögum og reglugerðum er gilda um opinbera starfsemi, sem taka þyrfti tillit til og af vandvirkni!
Held líka að það sé rétt hjá honum, sem þó er alls ekki fullnægjandi skýring á því hví þetta ástand hefur staðið svo lengi og með þessum miklu afleiðingum, allavega 12 starfsmenn sagt upp vegna þessa óánægjuástands og samstarfsörðugleika við einn sviðsstjóra! (að því best fæst ráðið!)
Þá virðast starfsmenn er enn vinna á Veðurstofunni, ekki enn vera sáttir þrátt fyrir þessi viðbrögð er loksins hafa orðið og íhuga sumir uppsagnir ennþá! Magnús óttaðist þó ekki að þjónustan við landsmenn væri í hættu, menn séð það svartara fyrr!
Vonandi mun þó í framhaldinu fleira verða gert svo þessi "él á Veðurstofunni stytti upp um síðir" eins og þau gera öll jafnan,annað gengur bara ekki!

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jens Guð

  Það undarlega í málinu er að eineltið virðist ná allt að 2 ár aftur í tíma.  Fórnarlömbin eru að minnsta kosti 12.  Sálfræðingur hefur verið fenginn til að slá á báttið.  Gerandinn hefur verið færður til í starfi og þrengt að umsvifum hans.  Eftir stendur að málið er óleyst.  Ásdís Auðunsdóttir hefur kært eineltið og segir að forstjórinn sé í því hlutverki að sópa málinu undir teppi fremur en taka á því af röggsemi.  Forstjórinn segir stofnunina geta staðið af sér fjöldauppsagnir.  Er það málið?  Er ekki betri leið til að leysa vandann að gera það sem til þarf til að stöðva eineltið.  Vandamálið snýr aðeins að einni manneskju,  gerandanum.  Þarf þetta að vera svona flókið?

Jens Guð, 7.8.2007 kl. 01:10

2 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Já, minn góði hugsuður Jens, mikill skaði er skeður og vandinn virðist ei leistur enn!

En kannski getur verið, að fleira hangi á spýtunni en vandin varðandi sviðsstjóran, sem Magnús er kannski undir rós að viðurkenna að hann ráði ekki við!? En skal ekki fullyrða neitt, varð eins og þú hissa er hann sagði þetta um hugsanlegu fjöldauppsagnirnar, að menn gætu samt staðið þær af sér, menn hefðu séð það svart áður!Kannski verða æðri ráðamenn að grípa í taumana, við sjáum til!

Magnús Geir Guðmundsson, 7.8.2007 kl. 11:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Pælt um heima og geima

Höfundur

Magnús Geir Guðmundsson
Magnús Geir Guðmundsson
Áhugamaður um flesta hluti.

Nýjustu myndir

  • wmftcs
  • mgg
  • ...mg2_251805
  • ...mg2_251804
  • ...mg2

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband