Færsluflokkur: Menning og listir
29.8.2007 | 16:02
Ein mesta heimsins hetja!
Ekki minnsti vafi er á því, Nelson Mandela er einn af merkilegustu einstaklingunum sem enn í þessum heimi lifa!
Ætti skilið að fá styttur reistar af sér eða önnur heiðursmerki víðar!
Hér á landi, hugnast mér,
honum mætti reisa vörðu.
Mandela, sem maður er,
merkastur á okkar jörðu!
Stytta af Mandela afhjúpuð í Lundúnum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
29.8.2007 | 00:10
LANDSMENN, TAKIÐ EFTIR!
HÚN Á AFMÆLI Í DAG, 29. ÁGÚST 2007!
HÚN ER 145 ÁRA Í DAG
HÚN AKUREYRI!!!
Á þetta skal minnt, ef þá nokkur sála hefur dirfst að muna ekki eftir því!
HÚN LENGILENGILENGILENGI LIIIIIIIIFI...
...HÚRRA!!!
24.8.2007 | 23:42
Góðir tónleikar!
Aðsókn var nokkuð bærileg, svona á milli 60 og 70 manns, hefði mátt vera meiri, en ásættanleg samt.Og engin fór ósáttur heim, held ég alveg örugglega.
Lét sjálfur til leiðast að þiggja frímiða fyrir tvo og gerðist svo djarfur að bjóða mjög svo áhugaverðri ungri konu á uppleið og í næsta nágreni við mig, að koma með. Hún gat það þó ekki, hafði líka fullstuttan fyrirvara á, en hver veit nema að ég bjóði bara eitthvað annað í staðin, t.d. skreppitúr til London eða eitthvað að kíkja í plötubúðir og þess háttar skemmtilegheit!?ER allavega alltaf að gæla við slíkar hugmyndir.
22.8.2007 | 21:09
Ein dýrt kveðin!
Stundum grípur mann sterk löngun til að láta gammin geysa og þá kemur fyrir að eitthvað skemmtilegt kemur upp úr dúrnum.
Þannig var það í gær er ég hafði lesið margt bullið og blaðrið sem bæði í fullri alvöru, en sjálfsagt gamni líka var sett fram.Kviðlingurinn er margrímuð hringhenda!
Bullustampar, blaðri hampa,
brosi í kampinn yfir því.
Eg með dampi, á þeim trampa,
enda svampur hausum í!
Og það skal skýrt tekið fram, að ef einhver hyggst mæla þessa vísu af munni fram, þá er strangt skilyrði að viðkomandi geri það með grjóthörðum eyfirskum áherslum að hætti Svarfdælinga!
20.8.2007 | 21:23
Tónleikar Jóhönnu á Græna hattinum!
Léttur djass og ljúfar ballöður verða þungamiðjan í dagskránni, en sem dæmi mun Jóhanna flytja lög er söngkonur á borð við Nine Simone, Sarah Vaughn, Sara McLachlan og Helena Eyjólfs hafa sungið til frægðar!SVo má einnig búast við rokkballöðum eins og hinni margfrægu More than Words úr smiðju rokkaranna í Extreme, svo dæmi sé nefnt!
Með Jóhönnu munu koma fram margot Kíís á píanó, Stefán Ingólfsson á bassa og Lára Sóley Jóhannsdóttir á fiðlu!
Tónlistarunnendur mega ekki missa af!
20.8.2007 | 20:51
"Þú Akureyri, ert öllum meiri"!
Kemur mér bara ekki í hug þessi klassík með Ingimar heitnum og sveit hans með Helenu og Þorvald syngjandi, þegar ég les þetta!
Og svo má þetta líka fljóta með, fyrst "Sannur héraðsandi" leikur mér um brjóst!
Hjartað alltaf hraðar slær,
er hugsa ég um þig,
Akureyri, besti bær,
er barnfóstraðir mig!
Finnst ykkur þetta ekki fallegt?
Vel gekk að ráða kennara á Akureyri | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
18.8.2007 | 15:03
Heimsins mestu hlaupagikkir!
Ekki kemur þetta nú á óvart, ekki heldur langt síðan sagt var frá einvherri rannsókn sem sýnir að líkamsbeiting Kenýamanna og sjálfsagt fleiri Afríkumanna er á einvhern hátt betri á hlaupum, eða eitthvað í þá áttina.
Engir eru svo betri í langhlaupum en Kenýamenn, vinna oftar en ekki flest ef ekki öll verðlaun á heims- og Olympíuleikum og það bæði í karla- og kvennaflokkum, þó ég haldi reyndar að Eþópíumenn séu líka mjög sterkir.
Að þeir séu fráir á fæti,
fræknir sýna hér enn.
Í forystu storma um stræti,
stæltir Kenýamenn!
Annars til hamingju með daginn Reykjavík og góða skemmtun við ykkur sem ætlið svo í kvöld að streyma út um strætin, gott fólk! (eins og Bubbi Kóngurmyndi orða það!)
Kenýamenn sigursælir í Reykjavíkurmarþoni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
10.8.2007 | 21:26
Svolítið um samkynhneigð!
Ekkert vafamál að mikið verður um dýrðir, dans, söng og gleði.
Horfði á þá félaga Heimi Má Pétursson sjónvarpsmann með meiru og Palla poppstjörnu, Pál Óskar Hjálmtýsson, í Kastljósinu í kvöld spjalla við Sigmar Guðmundsson. Voru þeir auðvitað hressir og kátir og hlökkuðu til morgundagsins þegar gangan mikla verður farin niður Laugaveginn. Veit nú ekki hvernig dagsránni verður háttað, en man að fv. Félagsmálaráðherra, Árni magnússon, hélt einu sinni ræðu við miklar og góðar undirtektir. Á ég því ekki von á öðru en að núverandi Félagsmálaráðherra, frú Jóhanna Sigurðardóttir, verði allavega á svæðinu, ef hún tekur þá ekki til máls, því hún er jú sjálf samkynhneigð og því sérstakur áfangi í hugum samkynhneigðra án efa að eiga ráðherra í sínum röðum!
Sjálfur er ég gagnkynhneigður og það gegnheill, en átti því láni að fagna að kynnast samkynhneigð strax í barnæsku, tveimur bræðrum er þá voru reyndar nokkuð drykkfeldir og annar þeirra nokkuð villtari meðan hinn var alltaf ljúfur sem lamb,þannig að fordóma eða þaðan að síður andúð hef ég aldrei gengið með.Þess vegna hef ég líka getað gagnrýnt baráttu samkynhneigðra af sanngirni og nokkurri þekkingu, leyft mér hiklaust að vera ósammála í nokkrum atriðum.
Ætla nú ekki að fara djúpt ofan í það, eiginlega engin ástæða til nú þegar hátiðisdagar eru, en til að mynda sú skoðun sumra samkynhneigðra allavega um að barneignir séu sérstök mannréttindi, sem minnihlutahópum jafn sem öðrum á að vera sjálfsögð, hef ég ekki tekið undir.
Og svona í lokin af því í Kastljósinu var aðeins spilað úr þjóðhátiðarlagi ársins með Palla, þá velti ég því fyrir mér hvers vegna lagið er alltaf í þessum vélræna poppbúningi ár eftir ár? ERu allir jafn hrifnir að hafa þetta alltaf svona? Á bágt með að trúa því, samkynhneigðir ekkert öðruvísi en aðrir hvað það varðar, að þar er tónlistarsmekkur fólks líka fjölbreyttur, þótt auðvitað viti ég að t.d. diskótónlist og ýmsar stjörnur þar, hafi náð sérstakri hylli og hetjuímynd fyrir baráttu samkynhneigðra! (Donna Summer og Michael Jackson m.a. auk poppgoða á borð við Madonnu og fleiri)
Lækjargötu lokað vegna Hinsegin daga | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 21:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
10.8.2007 | 17:15
Faðmlagafræðsla!
Bolungarvík (nú eða Bolungavík, svo ég styggi nú engan!) er um margt merkilegur bær og þar er mannlífið gott þrátt fyrir ágang í atvinnulífinu.
Ekki fannst mér heldur skemma fyrir þegar ákveðið var að ráða bassaleikarann góðkunna og tónleikahaldarann með meiru Grím Atlason í stól bæjarstjóra, en þar voru margar flugur slegnar í einu höggi! Ekki nóg með að bærinn eignaðist þannig hæsta bæjarstjóra landsins, Grímur tröll að vexti, á þriðja metra, heldur fjölgaði í bænum við þetta í hátt í tíu! Grími fylgdi nefnilega eiginkonan glæsta og ljóngáfaða, Helga Vala Helgadóttir og fjöldi barna sem eru a.m.k. sex!
Nú, svo gerast forsetar bæjarstjórnar vart sætari né sniðugri, en Soffía VAgns, ein hinna fjölmörgu Vagnsbarna (Hrólfur harmonikkusnillingur m.a. eitt þeirra líka) sem einmitt kom þessari merku Ástarviku í gang ef ég man rétt!
Námskeiðið núna í faðmlögum vekur forvitni og áhuga hjá mér, ég tala nú ekki um ef Soffía kæmi þar við sögu!?
Ástarvikan enn er frétt
og aldeilis til gagns.
Ef fræðslan í að faðma nett,
fæst hjá Soffíu Vagns!
Ástarvika haldin í fjórða sinn í Bolungarvík | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 17:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
7.8.2007 | 23:07
Ekki stendur á mér...!
Hommar eru auðvitað nokkrir í fótboltanum, þó þeir séu reyndar snöggt um fleiri, sem margir halda að séu hommar, en eru það ekki! Gaurar sem safna hári og ganga mjög svo skrautlega til leiks eins og til dæmis Henrik Larson, patric Berger og sjálfur David Beckham! Engin þeirra er þó samkynhneigður svo ég viti!
En sambandi við þetta leikrit, langar mig samt mest að vita,
hver leikur skutluna Kate Moss!?
Tæklað í nafni ástarinnar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Pælt um heima og geima
Eldri færslur
- Desember 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- Janúar 2013
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Janúar 2011
- Nóvember 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
Bloggvinir
- Jens Guð
- arnar valgeirsson
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Big Fats Slim
- Blúshátíð í Reykjavík
- Brynjar Davíðsson
- Einar Bragi Bragason.
- Eva Benjamínsdóttir
- Eygló
- Gulli litli
- Heiða Þórðar
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Hildur Sif Thorarensen
- Hlynur Hallsson
- Hólmdís Hjartardóttir
- Inga Lára Helgadóttir
- Ingvar Valgeirsson
- Jenný Anna Baldursdóttir
- Jóhanna Magnúsdóttir
- Kolbrún Stefánsdóttir
- Kristinn Halldór Einarsson
- Kristín Einarsdóttir
- Kristín M. Jóhannsdóttir
- Kristján Kristjánsson
- Kristján Logason
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
- Oddur Helgi Halldórsson
- Ólafur Ragnarsson
- Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
- Rannveig H
- Sema Erla Serdar
- Sigþrúður Þorfinnsdóttir
- Sjónstöð Íslands
- Solla Guðjóns
- Steingrímur Helgason
- Svala Jónsdóttir
- Svavar Alfreð Jónsson
- Vefritid
- Víðir Benediktsson
- Þórarinn M Friðgeirsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar