Færsluflokkur: Menning og listir
21.11.2007 | 17:51
Meinhæðin mannlýsing!
Ég hef verið sæmilega duglegur við að rökræða og benda á galla léttvíns- og bjórsfrumvarpsins að undanförnu.
Rökin á móti hafa mér þótt nær undantekningarlaust rýr í roði og haldlítil. Eftir skoðanaskipti við einn annan bloggara, komu mér aftur í hug hendingar sem mér þóttu lýsa málflutningi hans nokkuð og ástandi á þeirri stundu!
Aumur, móður, másandi,
maður einn var þvælandi.
Argur, reiður, rásandi,
ræfill já og skælandi!
16.11.2007 | 14:39
Megi hann dafna!
Fyrir viku var dagur íslenskrar tónlistar haldin hátíðlegur, nú er dagurinn sjálfrar þjóðtungunnar, á tvöhundruðustu árstíð frá fæðingu Jónasar!
EFast sannarlega ekki um að ævisagan sé vandað og mikið verk, Böðvar fyrir löngu búin að sanna rithöfundarhæfileika sína með bæði fjölmörgum leikritum og ritverkum af ýmsu tagi!
Gott mál að hlua svo sem best að þessum degi og þar með að tungunni sem mest. Ekki veitir af, er fleiri og fleiri sögur um að unga fólkinu sé mörgu orðavant og skorti skilning, heyrast.
Auðvitað má hafa gaman af í aðra röndina og vona að um einangruð dæmi sé að ræða, en ekki veitir samt af að standa vörð og efla tunguna sem best og mest.
Að hætti Jónasar endar þetta svo á stöku!
Mikilvægur og merkur,
megi hjá þegnunum ungu.
Dafna, dýrmætur sterkur,
Dagurinn íslenskrar tungu!
Forsetinn afhenti bók um Jónas Hallgrímsson í Þelamerkurskóla | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 14:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
15.11.2007 | 23:19
Meira sérkenni!
Garðabær hefur nú aldrei þótt mjög sérstakur þannig séð, verið svona úthverfi frá Hafnarfirði í augum margra utanaðkomandi. Verður sjálfsagt sameinað allt þetta dót einhvern timan, Hafnarfjörður, Kópavogur, Garðabær!?
En hvað um það, þetta er hið besta mál sýnist mér, nema hvað Garðbæingar sem nú alast upp mega ekki fá þá ranghugmynd, að Jónas sé annars á nokkurn hátt tengdur eða náin byggðarlaginu, öðru nær, úr Eyjafirðinum fagra, frá Hrauni í Öxnadal!
Annars má þetta segja nú.
Garðabænum grænkar í,
er glænýtt torgið fær.
Nú er orðin næstum því,
"Náttúrulegur" bær!
En verður það svo auðvitað alveg þegar safnahúsið rís!
Nýtt torg í Garðabæ nefnt Jónasartorg | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
3.11.2007 | 19:04
Og var þá komin tími til!
Jájá, ástæða til að óska bæjarbúm til hamingju, en aðrir landsmenn hljóta að spyrja hvernig standi á að þetta hús hafi ekki fyrir löngu orðið að veruleika í öðrum stærsta kaupstað landsins!?
En nei, það hefur hins vegar ekki skort á leikhúsmenninguna í bænum, örugglega verið fyrir hendi frá stofnun bæjarins, í hálfa öld eða meir.
Og svo eru ýmsar "listrænar tjáningar" og "farsar" frægir með eindæmum í Kópó Vógó!
Í Kópavogi er kannski best,
kvennalist ein þekkt
Sem mun vera framin flest,
í fullkominni nekt.
Svo mörgum hefur góðum gest,
já gleði fundist legt
En víst þá hefur veskið lést,
sem væri orðið lekt!
Fyrsta eiginlega leikhúsið opnað í Kópavogi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
29.10.2007 | 17:49
Ógleymanlegur!
Já, enn í dag er þáttur Ómars um Gísla ógleymanlegur. Um hann og fleiri einbúa landsins eins og hana Önnu á Hesteyri, hafa verið gerðir þættir sem eru ómetanlegir í að skrá sögu landsins á sem víðastan hátt, þannig að sem best mynd fáist af aðstöðu landsmanna, hárra sem lágra!
Í Stikklum við sáum hann sýsla
og sérstæðri röddu já hvísla.
í harðskeyttum heimi,
honum ei gleymi
Hinum einstaka Uppsala-Gísla!
Öld liðin frá fæðingu Gísla á Uppsölum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
25.9.2007 | 14:41
Hugur fer á flakk. - Um Ross, Ríkharð og fleiri!
Til að byrja með vekur hún upp minningar um Karlinn Perot, litla Texasbúan sem bauð sig fram minnir mig um leið og hinn grískættaði Dukakis fyrir Demokratana og Bush eldri var fyrir Republikana!? Olíubarón, sem afar erfitt var að skilja minnir mig, en virkaði svolítið hressandi á annars venjubundið einvígi stóru flokkanna.
Hins vegar reikar hugurinn við þessa frétt, enn lengra aftur sem skýrskotuninni ber, aftur á slóðir Musterisriddara, Normanna og Saxa í Englandi á tímunum sem nefnd Magna Carta var gerð.
Í sögunni sígildu eftir Walter Scott um Ívar Hlújárn, kemur J'ohann þessi einmitt við sögu, reynir þá og tekst um hríð að ræna völdum af eldri bróður sínum, hinum sögufræga svarta riddara, Ríkjharði Ljónshjarta!
Það mistókst þó á endanum í það skiptið.
En skemmtileg og sígild saga,s em allir unglingar hafa gott og gaman af að lesa!
En með þessu tali um Magna Carta, mætti svo fljóta með líka, að í daglegu tali hygg ég kalla Bandaríkjamenn sýna stjórnarskrá einmitt Magna Carta!
Eintak af Magna Carta selt á uppboði í desember | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 14:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
17.9.2007 | 22:16
Merkur náungi Branson!
Tubular Bells með Mike Oldfield!
Punktur er því nú settur aftan við merkan þátt í tónlistarsögu Breta, en eins og svo margur annar Íslendingurinn hef ég átt góða stund í slíkri verslun, á Oxfordstræti í hjarta Lundúna!
Branson selur Virgin tónlistarverslanirnar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
7.9.2007 | 11:57
Róttæk tillaga, en aldeilis rökrétt!
Kannski þarf þessi heimsfrægi Rokkbær nei ekkert á neinum vinum að halda?
Hátiðin risastóra kendd við bæinn dregur víst nógu mikið til sín.
En í staðin ættu Ísfirðingar kannski að gerast róttækari og þar með fleiri bæjir herlendis, stofna til meiri vinabæjatengsla innanlands, jú eins og fagri bærinn Akureyri og aðeins minna fagri bærinn Hafnarfjörður hafa að nokkru gert!
Og hvaða bær væri þá heppilegur sem góðvinur Ísafjarðar?
Svarið finnst mér eiginlega liggja í augum uppi eftir þessi slit, auðvitað við Sauðárkrók!
Jú því,
BETRI ER KRÓKUR EN KELDA!!!
Hróarskelda slítur vinabæjarsamstarfi við Ísafjörð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.9.2007 | 13:29
Töfrandi galdrakallaklúbbur!
Veit ekki, en töfrabrögð og ýmsir galdrar heilluðu mann nú aldeilis í gamla daga og nokkra sniðuga spilagaldra lærði maður og ýmsa hugarleikfimi!
En er nú örugglega búin að gleyma þessu flestu.
Þetta ætti hins vegar að gleðja margan ungherjan sem elskar Harry, en hvernig er það, engar stelpður í þessu?
Töfrum líkast | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
30.8.2007 | 15:16
Friður í fjölmenningarsamfélagi?
Frumbyggjastríð er þvert á móti það sem landsmenn hafa fengið að kynnast úr samfélaginu þarna suður með sjó og það allt hahaha, öðlingunum og friðelskandi alla jafna herramönnunum rúnna Júll og Jóa Helga!
Það er hreint alveg dásamlegt hvað þetta lag þeirra í höfuð "hverfis í reykjanesbæ" (hahaha, eins og einhverjir Njarðvíkingar orðuðu það svo snilldarlega) skuli hafa komið þessari styrjöld í gang, ég get varla hætt að hlægja!
En þetta hlýtur samt að jafna sig og gleðilega Ljósahátið í Reykjanesbæ, keflvíkingar, Njarðvíkingar, að ég tali nú ekki um vogafólk, sem ég man ekki betur en væru líka þarna!?
Ljósanótt sett í Reykjanesbæ | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Pælt um heima og geima
Eldri færslur
- Desember 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- Janúar 2013
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Janúar 2011
- Nóvember 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
Bloggvinir
- Jens Guð
- arnar valgeirsson
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Big Fats Slim
- Blúshátíð í Reykjavík
- Brynjar Davíðsson
- Einar Bragi Bragason.
- Eva Benjamínsdóttir
- Eygló
- Gulli litli
- Heiða Þórðar
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Hildur Sif Thorarensen
- Hlynur Hallsson
- Hólmdís Hjartardóttir
- Inga Lára Helgadóttir
- Ingvar Valgeirsson
- Jenný Anna Baldursdóttir
- Jóhanna Magnúsdóttir
- Kolbrún Stefánsdóttir
- Kristinn Halldór Einarsson
- Kristín Einarsdóttir
- Kristín M. Jóhannsdóttir
- Kristján Kristjánsson
- Kristján Logason
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
- Oddur Helgi Halldórsson
- Ólafur Ragnarsson
- Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
- Rannveig H
- Sema Erla Serdar
- Sigþrúður Þorfinnsdóttir
- Sjónstöð Íslands
- Solla Guðjóns
- Steingrímur Helgason
- Svala Jónsdóttir
- Svavar Alfreð Jónsson
- Vefritid
- Víðir Benediktsson
- Þórarinn M Friðgeirsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar