Færsluflokkur: Menning og listir

Jújú, Þingeyingar "Framsýnir" í FRAMSÝN, en..!

Hún var vissulega bráðskemmtileg fregnin í hádegisfréttum Útvarpsins áðan, að Framsýn,verkalýðsfélagið í Þingeyjarsýslum, greiði nú meðlimum sínum 50000 krónur fyrir að stunda fjörugri bólfarir í barneignaskyni!Að sögn formannsins knáa á Húsavík, Aðalsteins Baldurssonar, er þetta komið "á fulla ferð" og árangur þegar farin að koma í ljós!
Ég er nú sjálfur að stórum hluta Þingeyingur og finnst þetta því hið besta mál, að fjölga sem mest og best "kynstofninum"!
Nema hvað, að rétt áðan þyngdist brúnin þó aðeins og ánægjan minnkaði heldur, því það rifjaðist nefnilega upp fyrir mér að þetta er ekkert nýtt framtak og það sem heldur verra er, aðrir gerðu mun betur í hvatningarskyni hinu samam!?
Og hverjir skildu það svo hafa verið nema engir aðrir en þeir er teljast einmitt á háfleygum stundum allavega, "Mestu drykkju, kvenna, og hestamenn landsins",

SKAGFIRÐINGAR!

Og ekki nóg með það, því yfirvaldið í Akrahreppi, þar sem slík hvatning átti sér stað með sama hætti,ef mig misminnir ekki, bauð ekki bara góða umbun fyrir aukið ástalíf og fleiri börn, heldur MIKLU BETUR en Framsýnarfélagið nú.
Heilar 100000 kúlur takk fyrir!
Og hvernig má þá túlka þetta með Þingeyingana?
Jú, það þótt tiltækið sé sem fyrr sagði gott og skemmtilegt...

...Að Þingeyingar séu HÁLFDRÆTTINGAR Á VIÐ SKAGFIRÐINGA!?

Ja, svei mér þá, ef ekki hún Helga Guðrún bloggvinkona mín í Englandi og skagfirska sveitapían eldfjöruga, hlær sig ekki ma´ttlausa núna er hún heyrir þetta eða les!
Og það gildir sjálfsagt um fleiri sveitunga hennar!


Þórarinn Borgarskáld!

Þórarinn skáld hér brosir já breitt,
Borgin sér hvatningu hafi nú veitt.
Sem aldrei fyrr nú skuli hann heitt,
hamra sitt fræga ELDJÁRNIÐ beitt!

En þurfti garpurinn nokkuð á þessu að halda? ER eða hefur örugglega verið á listamannalaunum og almennt notið velvildar og hylli landsmanna. En hvað veit ég, þetta er allavega heiður sem mörgum þykir mikill og ekki skemma nú krónurnar nei sem fylgja fyrir!
Hitt er svo annað, Moggamenn, Þórarinn er ÚTNEFNDUR Borgarlistamaður, ekki tilnefndur!


mbl.is Þórarinn Eldjárn tilnefndur borgarlistamaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjómannadagur í sjötíu ár með hafnfirsku ívafi!

SEm sonur manns sem um árabil stundaði sjóin og bróðir fjögra annara sem meira og minna hafa sótt sitt viðurværi í áratugi um allan sjó að mestu leiti, eða með störfum tengdum sjávarútvegi, er Sjómannadagurinn merkilegur í mínu lífi! Frá því ég man eftir mér var þetta sannur hátíðisdagur og sem öll helgin miðaðist við er tímar liðu fram.En tímarnir breytast og mennirnir með, þar með talin sjómennskan og sjálfur hátíðisdagurinn. Eins og með marga aðra hátðiðisdaga hefur vægi hans því miður farið þverrandi á seinni árum, ekki sami glansinn yfir kappróðri við Pollinn eða koddaslag í sundlauginni. Þó gera sjómenn og þeirra aðstandendur sér enn glaðan dag, eða hafa það gott um þessa helgi og því ekki nema tilhlýðilegt að segja nú við þá sem aðra landsmenn,
Gleðilega hátíð í 70 ár!!

Og hinum hýra og fallega bæ Hafnarfirði er svo líka tilhlýðilegt að senda árnaðarósk í tilefni dagsins, bærinn heldur upp á 100 ára afmæli sitt í dag. og þar gera menn þetta með "Stæl" Sjómannadeginum gert sérstaklega hátt undir höfði!

Bær nú sínu besta tjaldar,
brosir kátt og hlær.
Hafnarfjörður heillar aldar,
hamingjuóskir fær!


mbl.is Helgistund á sjómannadegi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eftirsjá í glæstri konu og góðum forseta!

Ég hef margoft sagt það áður og tek ekkert fyrir að endurtaka, að Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, hefur átt aðdáun mína í mörg ár og er einfaldlega yndisleg kona!
Hefur staðið sig með afbragðssóma í embættinu og er sannarlega eftirsjá af henni!
ER já svo sem margur annar mjög forvitin að sjá hver hreppir embættið í hennar stað, hinn mjög svo sérstaki athafnamaður, bassaleikari pops og hagyrðingurinn með meiru Óttar Felix, eða hinn nýkrýndi atskákmeistari Íslands og frændi minn, Björn Þorfinnsson!
HHvor þeirra sem sigrar, vonar maður að sátt verði um kjörið og báðir vinni áfram fyrir skáksambandið!

En um Guðfríði Lilju, sem ég get líka bætt við að er tvímælalaust formannsefni hjá VG ef hún bara vill það og flokkurinn hefur vit á að veita henni brautargengi, vil ég svo bara að lokum segja þetta!

Feikna dugleg, fágæt slík,
full af sönnum vilja.
Greind og fáguð, gifturík,
Guðfríður er Lilja!

Hef reyndar áður ort í svipuðum dúr um "Drottninguna", en finnst það bara allt í lagi!


mbl.is Guðfríður Lilja lætur af embætti forseta Skáksambandsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Geiri minn maður!

Trymbillinn geðþekki og hægláti Ásgeir Óskarsson er sannarlega vel að heiðursnafnbótinni komin!
Og er þess var farið á leit við lesendur blues.is af aðstandendum hátíðarinnar að koma með uppástungur um heiðursfélagan í ár, stakk ég upp á honum!
Annars bara bestu kveðjur til Dóra og allra hinna er standa að þessari merkilegu hátíð og er bara vonandi að hún takist sem allraallra best!
mbl.is Blúshátíð hafin í Reykjavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hátíð BLÚSSINS nálgast!

Nú þegar aðeins er um ein og hálf vika í fimmtu alþjóðlegu blúshátíðina í Reykjavík, er ekki úr vegi að birta hér dagskrána eins og hún liggur nú fyrir. Sjaldan eða aldrei hefur þetta verið veglegra svo fólk ætti ekki að láta happ úr hendi sleppa, heldur flykkjast á þennan góða og merka menningarviðburð! Sérstaklega vil ég mæla með jöfrinum magic Slim og hans kumpánum, á einar þrjár plötur með honum, sem ekkert annað eru en fjör og frísklegheit, mikill gleðigjafi hann magic Slim! Um yardbirds þarf nú ekki mikið að fjölyrða, ein af helstu sveitunum í bresku blúsbylgjunni á seinni hluta sjöunda áratugarins og fóstraði meðal annara gítargoðin Eric Clapton, Jimmy page og Jeff Beck! Góða skemmtun gott fólk, en gangið hægt um gleðinnar dyr svona rétt fyrir páskahátíðina, njótum tónlistarinnar í ósvikinni GLEÐIVÍMU!

BLÚSHÁTÍÐ Í REYKJAVÍK 2008 Þriðjudagur 18. mars Hilton Nordica Hotel kl. 17, setning í samstarfi við Rás 2 • Blúslistamaður heiðraður • Blúsdjamm Stórtónleikar á Hilton Nordica Hotel kl 20 • Magic Slim and the Teardrops frá Bandaríkjunum •Jolly Jumper & Big Moe frá Noregi • Margrét Guðrúnardóttir og bandið hans pabba. Ásgeir Óskarsson trommur, Tómas Tómasson bassi,Björgvin Gíslason . Hver er pabbi? Klúbbur Blúshátíðar á Rúbín frá kl 22 • Blúsjamm nánar síðar • Ungir og upprennandi blúslistamenn Miðvikudagur 19. mars Stórtónleikar á Hilton Nordica Hotel kl 20 • The Yardbirds • Nordic all star's blues band•KK, Björgvin Gíslason, Pétur Östlund, Krister Palais , Jolly Jumper & Big Moe frá Noregi, og fl • Bláir Skuggar: Sigurður Flosason, Þórir Baldursson , Jón Páll Bjarnason ,Pétur Östlund . Klúbbur Blúshátíðar á Rúbín frá kl 22 • Blúsjamm nánar síðar Ungir og upprennandi blúslistamenn Skírdagur 20. mars Stórtónleikar á Hilton Nordica Hotel kl 20 5 ára afmælishátíð. Deitra Farr, Vinir Dóra, KK, Blúsmenn Andreu, Maggi Eiríks, Björgvin Gíslason, Bergþór Smári og fl. • Tena Palmer frá Kanada & Gras • Ungir og upprennandi blúslistamenn Klúbbur Blúshátíðar á Rúbín frá kl 22 • 5 ára afmælishátíð og blúsjamm nánar síðar. Ungir og upprennandi blúslistamenn og fl. Föstudagurinn langi 21. mars • Sálmatónleikar kl 20 Fríkirkjan í Reykjavík Deitra Farr, Borgardætur, Tena Palmer & Riot kaupa miða Hljóð Jón Skuggi http://www.blues.is/dagskra2008.htm http://blues.blog.is/blog/blues


Kristján á Skálá!

Kristján árnason bóndi á Skálá, Sléttuhlíð í Skagafirði, einn af afbragðshagyrðingum þessa lands, lést nú í byrjun febrúar.
Hann var hygg ég Borgfirðingur af ætt og uppruna, en bjó á Skálá í um það bil 30 ár og undi þar hag sínum vel.
Kristján varð landsþekktur fyrir kveðskap sinn, alltaf fágaðan og vel gerðan, bæði ljóð og lausavísur. Birtust eftir hann vísur víða í blöðum og öðrum ritum, auk þess sem hann gaf út bækur líka. margverðlaunaður var hann líka fyrir kveðskapinn, sem þjóðin kynntist til dæmis vel í vísnaþáttum útvarpsins fyrir rúmum áratug eða svo, Komdu nú að kveðast á, er Kristján Hreinsson stjórnaði.
Þessi litla vísa kom mér í hug við andlátsfregnina.

Kviðlinga og kvæði já,
Kristján orti slyngur.
Að sönnu þar er fallin frá,
frækin hagyrðingur!


Ó, Raufarhöfn!

Sá stórmerki hagyrðingur, Egill Jónasson á Húsavík orti einu sinni ódauðlegan brag um Raufarhöfn, eftir að hafa átt þar miður góða reynslu að vinnu þar.
Byrjar hann svona:
Farðu í rassgat Raufarhöfn...Fer ekki lengra með hann, nema hvað þetta kom upp í hugan núna og varð me´r sjálfum óbeint að yrkisefni.

Stundum gerist andinn ör
og atvik henda tvenn og þrenn.
Á Raufarhöfn var rosafjör,
"á rassgatinu" flestir menn!

En auðvitað leiðinlegt að þegar tíðindi berast frá stað sem þessum, skuli þau oftar en ekki vera af þessu tagi!


mbl.is Slagsmál á Raufarhöfn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Ökutímatónlist" Lay Low komin út!

Já, þá mun hún loksins vera komin út, platan hennar Lay Low með tónlistinni úr leikritinu Ökutímar, sem Leikfélag Akureyrar hefur sýnt við mjög góðar undirtektir frá því fyrir áramót.
Mörgum orðum þarf vart að fara um hana Lovísu E. Sigrúnardóttur, hún sló eftirminnilega í gegn með fyrstu plötunni sinni, Please Don´T Hate Me árið 2006 og skyggði á flesta aðra það árið!
margir hafa því beðið eftir framhaldinu, sem nú birtist með þessum nokkuð óvenjulega hætti, 13 laga plötu þar sem 5 laganna eru frumsamin, en önnur öll eftir hina brjóstgæðamiklu söng- og leikkonu Dolly Parton!
En það sem gerir auðvitað þessa útgáfu enn sérstakari er að Lay Low ákvað eftir að hafa kynnst starfsemi Aflsins, systursamtaka Stígamóta á Akureyri, að allur ágóðin af sölu plötunnar skildi renna til þeirra!
Afskaplega rausnarlegt svo ekki sé sterkara að orði kveðið, hjá stúlkunni og eiginlega alveg einstakt!

Allir eru því kvattir til að fá sér eintak, sem senn stuðlar að uppbyggingu góðs málefnis og gleður kaupandan með ljúfu innihaldinu!


Til lukku Luca!

SVona í lok ársins, mitt í uppivöðslusemi veðursins, þá er þessi fregn af viðurkenningu í þágu innflytjenda sérlega ánnægjuleg!
Éghygg að nú séu um 20 ár eða svo komin frá því þrír herramenn voru fengnir af Íþróttafélaginu Þór á Akureyri frá gömlu júgóslavíu til að ganga til liðs við knattspyrnulið félagsins til þjálfunnar og leiks! Milan Durecic var fengin til að þjálfa og tveir leikmenn fylgdu til að spila með liðinu, Bojan Tanevsky og Luca Kostic!
Er skemmst frá að segja að Durecic og Bojan skiluðu góðu verki fyrir liðið en ílengdust ekki, en hér á landi hefur Luca, eða Kole eins og hann hefur líka oftast verið kallaður, svo sannarlega fest rætur með fjölskyldu sinni og orðið íslenskur ríkisborgari!
Fyrstu árin spilaði Luca einungis með Þór, en síðasta árið var honum einnig falið að þjálfa. Ekki byrjaði þó ferillinn sem þjálfari þó sem skildi, liðið náði ekki viðunandi árangri og Luca hvarf á braut nýrra verkefna til Akranes! Þar lék hann svo við mjög góðaan orðstír, fór svo síðar til Grindavíkur og þaðan til Reykjavíkur ef ég man þetta nokkurn vegin rétt!?
Þjálfun liða auk Þórs og Grindavíkur hefur kappinn tekið að sér slík störf hjá Víkingi og KR. Nú sl. árin hafa svo þjálfarastörf hans verið fyrir KSÍ, U17 og svo nú U21 lið og hefur hann skilað mjög góðum árangri!
Það var og er enn mikill fengur að hafa fengið þennan dreng hingað, sem áður var hjá liðinu Osjek (stafað nokkurn vegin svona minnir mig) og var á sínum tíma með efnilegri spilurum Júgóslava, en meiðsli spilltu m.a. fyrir.
Fyrir mig sjálfan var mjög sömuleiðis gaman að kynnast honum persónulega og er hann í senn skemmtilegur og fyrirtaksnáungi!
Innilega til hamingju með þessa viðurkenningu Luca!
mbl.is Viðurkenning Alþjóðahúss afhent
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Pælt um heima og geima

Höfundur

Magnús Geir Guðmundsson
Magnús Geir Guðmundsson
Áhugamaður um flesta hluti.

Nýjustu myndir

  • wmftcs
  • mgg
  • ...mg2_251805
  • ...mg2_251804
  • ...mg2

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (31.1.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband