3.10.2009 | 18:42
"Ég græt fyrir Gústa"!
J'a, Sunderland grátlega nærri tímamótasigri á MU, en félag það heldur áfram að reddast m.a. á klaufaskap annara og heppni, frekar en eigin getu og yfirburðum í leikjum! Í þetta skiptið nægði það þó bara til að næla í eitt stig, sem er merkilegt út af fyrir sig. Nú spyrja margir eflaust hvort MU hafi nokkuð efni á að hvíla "Gamlingan" Giggs, um leið og margir stuðningsmenn munu örugglega skýra úrslitin vergna fjarveru hans og fleiri, en það dugir auðvitað ekki. Aðdáendur Sunderland eru ekki mjög margir hérlendis, en einn sá allrafrægasti hér norðan heiða er hann Gústi frændi minn og vinur og hefur hann fyrir sitt dæmalausa trygglyndi við félagið sjálfur verið kallaður "Sunderland" um langt skeið! Hann er kannski ekki "langt niðri" vegna endisins á leiknum, en svekkelsi og það skiljanlega situr nú örugglega í honum!
Sjálfsmark í uppbótartíma bjargaði Man.Utd | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Enski boltinn | Breytt s.d. kl. 18:49 | Facebook
Um bloggið
Pælt um heima og geima
Eldri færslur
- Desember 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- Janúar 2013
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Janúar 2011
- Nóvember 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
Bloggvinir
- Jens Guð
- arnar valgeirsson
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Big Fats Slim
- Blúshátíð í Reykjavík
- Brynjar Davíðsson
- Einar Bragi Bragason.
- Eva Benjamínsdóttir
- Eygló
- Gulli litli
- Heiða Þórðar
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Hildur Sif Thorarensen
- Hlynur Hallsson
- Hólmdís Hjartardóttir
- Inga Lára Helgadóttir
- Ingvar Valgeirsson
- Jenný Anna Baldursdóttir
- Jóhanna Magnúsdóttir
- Kolbrún Stefánsdóttir
- Kristinn Halldór Einarsson
- Kristín Einarsdóttir
- Kristín M. Jóhannsdóttir
- Kristján Kristjánsson
- Kristján Logason
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
- Oddur Helgi Halldórsson
- Ólafur Ragnarsson
- Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
- Rannveig H
- Sema Erla Serdar
- Sigþrúður Þorfinnsdóttir
- Sjónstöð Íslands
- Solla Guðjóns
- Steingrímur Helgason
- Svala Jónsdóttir
- Svavar Alfreð Jónsson
- Vefritid
- Víðir Benediktsson
- Þórarinn M Friðgeirsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hvað var þá annað mark Sunderland ekki heppni ? Asshole. Man utd sóttu allan seinni hálfleik.
trulaus (IP-tala skráð) 3.10.2009 kl. 19:13
Sumir kunna ekki að tala íslensku er þeir bölsótast, athyglivert og ekki til sóma.
Magnús Geir Guðmundsson, 3.10.2009 kl. 20:04
Þótt ég sé lesbindur , þá get að minnsta kosti skrifað já rétt, fífl=asshole. Ánægður.
trulaus (IP-tala skráð) 3.10.2009 kl. 20:18
Ekki vera að rífa þig útaf stafsetningu hjá honum þegar þú skrifar vitlaust líka. Gamlinga?
Ég er harður United aðdáandi en þetta var öreglega lélegasta frammistaða sem ég hef séð lengi, viðurkenni það alveg. Gjörsamlega fyrir neðan allar hellur.
Má samt nú alveg benda á nokkra hluti, áttum skilið eitt stk víti, sóttum allan seinni hálfleikin og sköpuðum samt valla neitt. Vorum allavega líklegri heldur en Sunderland.
Brynjar (IP-tala skráð) 3.10.2009 kl. 20:59
Varst reyndar ekkert að væla útaf stafsetningu heldur að hann sletti ensku. Verður bara að "get with the time" því hann notaði öreglega ensku til að þú myndir skilja hvað hann væri að segja. Afhverju ? Því þú talar með rassinum. geggjað
brynjar (IP-tala skráð) 3.10.2009 kl. 21:03
Börnin eru greinilega ekki farin að sofa strax.
Óli blaðasali (IP-tala skráð) 3.10.2009 kl. 21:38
Manure fékk bara 4 mínútur í uppbótartíma. Hvaða rugl er það? Á ekki að spila þangað til að það kemur sigurmark?!
Gudmundur Halldorsson (IP-tala skráð) 3.10.2009 kl. 22:04
Æ, slakið þið nú á strákar! Þessi leikur er að baki, og 2-2 niðurstaðan stendur um ókomna tíma! Þið rígfullorðnir menn látið eins og illa siðaðir guttar í sandkassa!! Hvað heyrir maður næst? "Pabbi minn er stærri en pabbi þinn", eða eitthvað í þeim dúr!!! Svona til ábendingar, GH. Uppbótartími ætti að gefa báðum liðum leiksins jafn mikil tækifæri, ekki satt??? Þannig sé ég, og margir fleiri það, þarf að ræða það frekar??
Stefán Lárus Pálsson, 3.10.2009 kl. 22:17
Ég er ekki viss um að Mr. Ferguson sjái uppbótartímann með sömu augum og þú Stefán:
"Ferguson claimed Wiley had not played the correct amount of added time because he had failed to add on an additional minute to the four already signalled once United scored."
http://www.skysports.com/story/0,19528,11661_5605950,00.html
Annars skiptir þetta auðvitað engu máli og það vita það líka flestir að rökræður um fótbolta eru sjaldan á mjög háu plani. Það er líka allt í lagi, við erum allavega ekki að velta okkur upp úr Icesave rétt á meðan :)
Gudmundur Halldorsson (IP-tala skráð) 3.10.2009 kl. 22:42
Ferguson hefur sitt álit, en eg held mig nú bara við raunveruleikann: Uppbótartími gefur báðum liðum jafnan möguleika, meðan boltinn er í leik, alveg þangað til dómari flautar leikinn af. Menn verða því að vera vakandi og berjast til síðustu sekundu leiksins. Reynsluríkir leikmenn hafa of getað notað sér síðustu augnablikin til að "klára leikinn". Já eg er enginn viðvaningur í þrasi um fótbolta! Gott að komst frá þessari icesave-martröð, þó ekki sé nema smá stund!
Stefán Lárus Pálsson, 3.10.2009 kl. 23:11
Ágæt umræða hjá ykkur Stefán Lárus og Guðmundur, nema hvað að enn og aftur er rétt að minna á að í raun er ekki um neinn viðbótar- eða hvað þá uppbótartíma að ræða, þetta er einfaldlega sá tími sem dómarinn stoppar leikin. Minni svo aftur á það sem Lexi karlinn virðist ekki einu sinni geta munað, að dómararnir eru ekkert öðruvísi en leikmenn, eiga sína misjöfnu daga og gera líka mistök.
Magnús Geir (IP-tala skráð) 4.10.2009 kl. 00:19
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.