Stormsker 45!

Já, eins og vinur vor og góðkunningi Jens Guð, hefur rækilega minnt á bæði í gær og dag, þá á ærslabelgurinn og tón- og textaskáldið með meiru, SVerrir Stormsker 45 ára afmæli í dag!
Að því tilefni skutlaði ég léttri limru inn hjá Jens og hljómar svo.

Hann SVerrir fráleitt er fól,
né fífl með aumingagól.
Bara náungi naskur,
nettur kjaftaskur
og ólíkindatól!

Karlinum óskum vér svo til lukku með daginn!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gulli litli

Heimurinn á ennþá menn eins og Sverri sem allt lýsa upp...

Gulli litli, 6.9.2008 kl. 18:13

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Nó kommentó.

Jenný Anna Baldursdóttir, 6.9.2008 kl. 18:54

3 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Jamm Gulli og hann er nú ekki allur þar sem hann er séður blessaður!

Ississ Jenný, ert örugglega leyndur aðdáandi hans!

Magnús Geir Guðmundsson, 6.9.2008 kl. 20:30

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ég hef lúmskt gaman að Sverri, get ekki að því gert.  En meira samt sem grínista.   Og þú ert flottur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 7.9.2008 kl. 14:01

5 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Sæll. Ég verð að viðurkenna að ég skil ekki Sverri Stormsker. Fyrir mér er hann bara eitthvað svona órætt, svona eins og Björk, þú skilur. Hann er eiginlega of kaldhæðinn fyrir minn smekk. Ég tek hinsvegar undir hamingjuóskir til hans í tilefni afmælisins.. er hann ekki eldri en þetta maðurinn  kveðja Kolla.

Kolbrún Stefánsdóttir, 7.9.2008 kl. 15:41

6 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Takk kærlega mínar ágætu vinkonur.

Sverrir er sjálfur ansi lúmskur og margir átta sig ekki á honum. Þú ert ekki ein um það Kolla mín að botna ekki alveg í honum og heldur ekki ein um að finnast hann eldri en þetta.TAkk fyrir skjallið Cesil, vona að ég eigi það skilið, strakstaulinn!

Magnús Geir Guðmundsson, 7.9.2008 kl. 16:08

7 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Ó dísus... gleymdi ég að skjalla strákinn . Þetta minnir mig á einn plötusnúðinn í Komið og dansið þegar hann segir ..." það má alveg klappa" þegar honum finnst hann hafa staðið sig vel í plötu- og lagavali. kveðja til þín Kolla.

Kolbrún Stefánsdóttir, 7.9.2008 kl. 22:16

8 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

hehe, alveg óþarfi að skjalla mig ofan á eða auk Cesil, nú eða kjassa mig um of, hvað þá að jesúsa sig að gleyma því mín elskulega, algjör óþarfi! En ef ég gæti einn góðan veðurdaginn farið með þér í golf, þá mættirðu fyrst "skræmta"!?

Magnús Geir Guðmundsson, 7.9.2008 kl. 22:53

9 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

úuuuuuuuu. Gæti komið til þess að við spiluðum golf saman... hvað er forgjöfin. Ég var að keppa í dag og svei mér ef það var ekki sýnishorn af "Ike" á Keilisvellinum. Ferlegur stormur og rigning. Ég er alveg að gefast upp á að keppa hér heima vegna veðurs. Ég ætti bara að fara að koma mér á Evróputúrinn  Ekkert oflof á þig kallinn. Þú ert flottur. kveðja Kolla.

Kolbrún Stefánsdóttir, 7.9.2008 kl. 23:05

10 Smámynd: Solla Guðjóns

Ég hef gaman af Sverri.....en jú stundum of kaldhæðinn en orðheppinn með eindæmum.......

Hann á mörg fallleg lög og texta.........og svo á hann texta sem eru ekki fyrir penpíur....

Auðvita kastar maður á hann afmæliskveðju.

Solla Guðjóns, 8.9.2008 kl. 01:14

11 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Gott hjá þér Solla mín og það þótt síðbúið sé!

Þetta er svo alveg rétt hjá þér með Sverri, margt gott frá honum komið, en annað svona kannski ekki alveg við hæfi barna og viðkvæms fólks hehe!

Þú ert nú bara ekki í réttum landshluta þessa stundina Kolla Kylfingur, engir hitabeltisstormar eða útfjarandi fellibylir norðanlands, enn sumar, sól og sælir spilarar þar!

Magnús Geir Guðmundsson, 8.9.2008 kl. 13:52

12 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Nei það er alveg rétt ég er ekki á réttum slóðum núna. Vonandi kemst ég norður þó það styttist illilega í haustið. kveðja Kolla.

Kolbrún Stefánsdóttir, 8.9.2008 kl. 21:35

13 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Ekkert haust hér enn, golfvertíðinni þó formlega lokið, en menn halda þó áfram að spila svo lengi sem veður og völlur leyfir!

Magnús Geir Guðmundsson, 9.9.2008 kl. 01:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Pælt um heima og geima

Höfundur

Magnús Geir Guðmundsson
Magnús Geir Guðmundsson
Áhugamaður um flesta hluti.

Nýjustu myndir

  • wmftcs
  • mgg
  • ...mg2_251805
  • ...mg2_251804
  • ...mg2

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 218059

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband