Ekkert væl núna!

Neinei, þýðir nú ekkert að fara að grenja núna, bara eitt tap og því gleymum við bara strax, en förum að hlakka til stórrimmunnar við DAni í hádeginu á laugardaginn! Auðvitað fúlt að tapa svona og ekki í fyrsta sinn fyrir "litlu gulu mönnunum", en þeir eru bara þrælgóðir og við réðum bara ekki við þá í dag! En getum alveg tekið bæði DAni og Egypta og þannig náð allavega öðru sætinu í riðlinum!
mbl.is Ísland tapaði með einu marki fyrir Suður-Kóreu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Akkúrat... þetta er málið. Erfiður leikur búinn - horfum fram á við. Ég var stoltur af baráttu "strákanna okkar" í dag, sérstaklega með tilliti til þess hversu oft bolti fór til þeirra eftir frábæra markvörslu eða fór út af... þetta var óheppni, þetta var vel spilað hjá S-Kóreumönnum... engin skömm að því að hafa tapað þessum leik. Erfiðir leikir eftir, áfram Ísland!

Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 14.8.2008 kl. 07:42

2 Smámynd: arnar valgeirsson

heyr heyr. maður vaknar klukkan sex og er bara fúll. en þeir eru drullusprækir, kóreukallarnir. jebbs, drullusprækir snemma dags.

arnar valgeirsson, 14.8.2008 kl. 08:00

3 Smámynd: Steingrímur H Steingrímsson

Að vinna dani verður nú ekki létt verk, það hefur okkur ekki tekist á síðustu stórmótum, það hafa þó verið jafnir leikir.

Steingrímur H Steingrímsson, 14.8.2008 kl. 08:17

4 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Takk kærlega Doddi minn, við hugsum þetta greinilega svipað og mér heyrðist nú á strákunum flestum eftir leikin að ekkert þunglyndi væri í gangi þrátt fyrir tapið.

hehe Arnar skákkempa, þeir kóresku voru auðvitað hressir,þetta jú svipaður eða sami tími og þeir lifa á dagsdaglega! Það munar minnir mig um átta tímum á Kína og okkur, klukkan þarna var því um tvö eftir hádegi!

Magnús Geir Guðmundsson, 14.8.2008 kl. 08:19

5 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Og kveðja til ykkar inn í daginn strákar, suður á Kleppsvegin og upp á brekku!

Magnús Geir Guðmundsson, 14.8.2008 kl. 08:21

6 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Takk STeingrímur, töpuðum já síðast minnir mig fyrir þeim í framlengingu í rosalegum leik á HM frekar en EM.Allavega í mjög jöfnum leik, en núna er komið að okkur, ég vil trúa því!

Magnús Geir Guðmundsson, 14.8.2008 kl. 08:25

7 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Strákarnir voru samt sem áður góðir, og stóðu svo sannarlega fyrir sínu. - Ekki satt ?

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 15.8.2008 kl. 04:24

8 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Ójú,en alltaf þegar menn tapa þá finnst þeim auðvitað þeir ekki hafa staðið sig!

En þetta er búin leikur, gleymdur, nú er bara að taka hressilega á BAunanum á morgun, getum sannarlega sigrað þá og öskrum því eins og hann Hlynur Már "hinn danski",

ÁFRAM ÍSLAND!!!

Magnús Geir Guðmundsson, 15.8.2008 kl. 11:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Pælt um heima og geima

Höfundur

Magnús Geir Guðmundsson
Magnús Geir Guðmundsson
Áhugamaður um flesta hluti.

Nýjustu myndir

  • wmftcs
  • mgg
  • ...mg2_251805
  • ...mg2_251804
  • ...mg2

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 218059

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband