Löglegt?

Á bloggsíðu sinni, doggpals.blog.is fyrir nokkrum dögum, reifaði Dögg Pálsdóttir lögmaður þá skoðun sína, að þessi gjörð að víkja Ólöfu úr ráðinu, orkaði tvímælis að hennar mati lagalega og gæti því dregið dilk á eftir sér.vitnaði hún í breytta sveitastjórnarlöggjöf og sagði m.a. að ef viðkomandi hefði í engu brotið af sér eða að ekki væri neinn ágreiningur uppi um brottvikninguna, gæti hún vart talist lögleg samkvæmt breytingu sem gerð var á 2004, en áður hefði slík gjörð verið innan laga.
Hún talar þar um sveitastjórnir sem heild að því mér skilst á lestrinum, en talar held ég ekki um borgarráð sem slíkt. (tekur dæmi um að ef allir myndu sitja hjá gæti komið upp sú skrítna staða, að Ólafur sjálfur með sínu atkvæði gæti komið þessu í gegn löglega)
En þetta var semsagt borgarráð, skipað sjö fulltrúm, fjórum frá D lista og þremur frá minnihlutanum, en Ólafur á þar ekki sæti.
Verður nú fróðlegt að heyra viðbrögð við þessu, hvort þetta teljist lögleg og eðlileg framkvæmd og þá hvort ef svo er, einn af fulltrúm minnihlutans hefði þurft að greiða atkvæði gegn breytingunni til að lögmætið megi fyllilega draga í efa, eða hvort hin harða bókun hefur eitthvað að segja í því sambandi!?
mbl.is Skipt um fulltrúa í skipulagsráði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég bíð líka spennt eftir að heyra nánar um túlkun á þessu atriði.  Reyndar sat minnihlutinn hjá við afgreiðslu málsins í dag, mig langar að vita hvað hefði gertst hefðu þeir greitt mótatkvæði.

Jenný Anna Baldursdóttir, 7.8.2008 kl. 18:01

2 Smámynd: Steingrímur Helgason

Er þetta borgarztýrublæti hennar 'Jenfóar' svona ~zmitandi~ ?

Steingrímur Helgason, 7.8.2008 kl. 19:07

3 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Jamm Jenný, eitthvað verður nú spáð í þetta, spái því!

Gott ef ekki er, Hauganesháðfugl hehe!

Magnús Geir Guðmundsson, 7.8.2008 kl. 19:37

4 Smámynd: Jens Guð

  Hvað vakir fyrir sjálfstæðiskonunni Dögg að espa Ólöfu upp í að fara í skaðabótamál við borgarstjóra meirihluta D og F lista? Hver verða viðbrögð Ólafs F.  við svona innleggi Daggar?  Hvað gerist ef Ólafur F.  endurskoðar samstarfið við D-lista á forsendum þess að hafna hringlandahætti með borgarstjóraembættið?  Á sínum tíma var samið um að fyrrverandi borgarstjóri,  Vilhjálmur Þ., tæki við borgarstjóraembætti aftur af Ólafi.  Nú hefur Vilhjálmur dregið sig í hlé.  Það er komin upp ný staða.  Á Hanna Birna að koma þarna inn sem enn einn hringlandaháttur á borgarstjórn?  Eða á Ólafur að gera kröfu um að sitja áfram sem borgarstjóri til enda kjörtímabilsins á forsendum þess að festa sé á borgarstjórn?  Hvað gerir D-listi ef Ólafur metur stöðuna þannig að hann sé að standa vörð um stöðugleika og verjast hringlandahátt?

  Umræða um þetta er í gangi.

Jens Guð, 9.8.2008 kl. 01:16

5 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Haha, þú ert á góðri leið með að smíða uppskrift af farsanum sem þú gefur svo út um næstu jól Jens minn!

En þú ættir jú einmitt að vita meir en margur um þróunina gæti ég trúað!?

Magnús Geir Guðmundsson, 9.8.2008 kl. 18:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Pælt um heima og geima

Höfundur

Magnús Geir Guðmundsson
Magnús Geir Guðmundsson
Áhugamaður um flesta hluti.

Nýjustu myndir

  • wmftcs
  • mgg
  • ...mg2_251805
  • ...mg2_251804
  • ...mg2

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (14.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband