"Táp & fjör"!?

Skæðir eru Skagamenn,
þó skori núna mörkin fá.
Líkjast vilja Írum enn,
"öllara" sér fá í tá

En auðvitað voru allir þessir vandræðagemsar og slagsmálahundar auk krakkagríslinganna, sem voru þarna að þvælast til óþurftar og leiðinda,
UTANBÆJARLÝÐUR NEMA HVAÐ!?


mbl.is Erilsöm nótt á írskum dögum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Helvítið hann Erill.

Jenný Anna Baldursdóttir, 6.7.2008 kl. 10:38

2 identicon

Sæll og blessaður Magnús. Ég held að þú munir eftir mér. Ég get trúað þér fyrir því að einu sinni í fornöld, þá réði ég mig í hljómsveit með bloggvini þínum, henni Ásthildi Cesil og mætti á nokkrar æfingar og það eru maðal minna verstu mistaka í lífinu að hafa ekki haldið áfram í þeirri hljómsveit (Kvennahljómsveitin Sokkabandið) Ástæðan fyrir því að ég yfirgaf þær var að ég gerðist sjómaður. Ég skoða bloggið þitt stundum. Gleymi ekki góðum vinum þó ég heyri ekki í þeim lengi. Bestu kveðjur og vonandi hittumst við einhvern tíma.

Er Húnbogi hamrar á strengi

og hefur ei stillt þá lengi,

þá tuskum og fleiru

menn troða í eyru,

tryllast og flýj´a út á engi.

(Það er enginn bloggari með bloggurum nema geta búið til vísur)

Húnbogi Valsson (IP-tala skráð) 6.7.2008 kl. 13:08

3 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Jamm Jenný góð, erill ekki vinsæll hjá löggunni til dæmis!

Komdu sjálfur ævinlega margblessaður Húnbogi minn gítarsnillingur!

Kíkti strax inn á þig og sé að þú ert komin í "nafla alheimsins" Kópó Vógó!

Það væri nú aldeilis ef ég mundi ekki lengur eftir þér, en hins vegar vissi ég ekkert um kynni þín við Vestfjarðavalkyrjuna hana Cesil, en gaman að heyra af því! En þú hefur nú verið ungur þegar þú þingeyski sonurinn flæktist þarna vestur!? (en þetta hefur sjálfsagt borist einhvern tíma í tal hjá Hemma, en ég þá alveg búin að gleyma því)

En við eigum heima í litlu landi og þetta er bara enn eitt góða dæmið um það!

Haha, skemmtileg limra hjá þér, en þeir eru hlutfallslega ekki margir sem geta hnoðað saman hendingum og eru jafnframt bloggarar er ég nú hræddur um. En þessi "ósköp" hafa lengi blundað í mér, en fóru ekki að brjótast fram að neinu bærilegu viti fyrr en svona um 18 ára aldurinn eða þar um bil.

Greinilegt að þú gengur með þetta líka, eins og þú átt eflaust kyn til gæti ég trúað!

Það vantar allavega ekki listrænu hæfileikana í fjölskyldunni, það er á hreinu!

Magnús Geir Guðmundsson, 6.7.2008 kl. 14:36

4 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Alltaf gaman að sjá þegar bloggið brúar tímana og gamlir vinir hittast. Eigið góða viku, vinir!

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 6.7.2008 kl. 19:16

5 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Takk kærlega, íslenska englandsmær!

Magnús Geir Guðmundsson, 6.7.2008 kl. 23:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Pælt um heima og geima

Höfundur

Magnús Geir Guðmundsson
Magnús Geir Guðmundsson
Áhugamaður um flesta hluti.

Nýjustu myndir

  • wmftcs
  • mgg
  • ...mg2_251805
  • ...mg2_251804
  • ...mg2

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 218024

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 24
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband