Skoðanakannannapæling!

Það er svo sem ekki í fyrsta skipti sem ég spyr sjálfan mig þegar ég les um könnun sem þessa, TIL HVERS?
Og ekki bara til hvers, heldur af hverju og í hvaða tilgangi.
Til hvers er verið að spyrja úrtak af öllu landinu um einhvern oddvita og kannski hugsanlegan borgarstjora eftir ár?
Af hverju eru ekki bara kjósendur D listans spurðir? og hvaða tilgangi já þjónar það eiginlega að vita hvort til dæmis kjósendum annara flokka sé ekki alls kostar ílla við þennan oddvita, lítist kannski vel á hana bara vegna þess að hú sé sæt eða eitthvað!?
Jújú, reykjavík er vissulega höfuðborg okkar landsmanna allra, eða svo rifja sumir upp allavega við hentug tækifæri, en samt, hvaða óskaplega þörf er á því að spyrja bæði og uppfræða okkur landan um þetta, sem í sannleika sagt skiptir afskaplega litlu máli og varðar í raun bara vissan hóp fólks!
Auðvitað þarf liðið hjá C/G að hafa eitthvað fyrir stafni, tala nú ekki um svona þegar komið er sumar og rólegheit yfir mannskapnum, en kannanir sem þessar hafa nú varlega sagt, afskaplega litla þýðingu, ef þá nokkra.
Ég er nú svo mikill æringi, að ef ég hefði lent í þessu úrtaki og verið spurður um fraukuna, hefði ég eflaust spurt á móti hvort spyrjandin vissi hvernig fatastíll HB væri þessa dagana, því ef hún væri "Frjálsleg í fasi" í veðurblíðunni, óhrædd við að flíka kroppnum í stuttpilsi og topp, væri ég aldeilis sáttur með hana sem nýjan oddvita og kannski jafnvel líka bara sem væntanlegan borgarstjóra.
En ef ekki, nú þá ætti bara að halda í "Villan"!
En þið skiljið, svona skoðanakannanir tel ég ekki mikilvægari en þetta,ef spyrja ætti mig labbakútinn norður í landi, hvorki D mann (né nokkurs annars flokks reyndar) eða íbúa í borginni.
En sumum finnst þetta hafa upplýsingagildi eða finnst bara gaman að lesa svona kannanir, hvernig svo sem þeir fá það út!?
En hvernig var það annars, eru ekki blikur á lofti í landsstjórninni, jafnvel að spádómur Völvu Vikunnar geti ræst um slit?
Allavega var fjallað um það í fréttum gærdagsins, hva ðsem svo hæft er í því.
En Gallup ætti kannski að vippa sér í að gera könnun á vilja þjóðarinnar til að efna til nýrra kosninga?
VEit ekki, en finnst samt svolítið meira vit í því en að tékka á því hvort landinn sé spenntur fyrir einni frauku í borginni!?
mbl.is Konur ánægðari með Hönnu Birnu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég er að vona að allt springi til andskotans.  Fyrirgefðu orðbragðið.  En mér er þungt niðri fyrir.

Lalalala

Jenný Anna Baldursdóttir, 2.7.2008 kl. 16:16

2 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Já, í þetta sinn, en átt að haga þér skikkanlega, ljótt að blóta haha!

Annars spurði nú elskuleg vinkona mín mig einmitt fyrir stuttu, hvort nokkuð væri svo slæmt að fara þangað, auk þess sem fólk gantast oft með það í seinni tíð hvort ekki sé búið að sameina "Uppi og niðri" í hagræðingarskyni!?

En við sjáum hvað setur.

Magnús Geir Guðmundsson, 2.7.2008 kl. 20:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Pælt um heima og geima

Höfundur

Magnús Geir Guðmundsson
Magnús Geir Guðmundsson
Áhugamaður um flesta hluti.

Nýjustu myndir

  • wmftcs
  • mgg
  • ...mg2_251805
  • ...mg2_251804
  • ...mg2

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 218056

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 15
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband