Hannes vill tryggja eftir á!

EFtir að hafa barist með kjafti og klóm gegn hverju og einu einasta orði sem á hann var hallað varðandi þessi makalausu ævisöguskrif og nú fyrir skömmu þrátt fyrir alla baráttuna, verið dæmdur í Hæstarétti, er karlinn ekki alveg endanlega af baki dottin!
Ónei, eftir að hafa nú sloppið með skrekkin varðandi Háskólan fengið bréf frá rektor sem snuprar hann vissulega en á ósköp formlegum nótum svona, "Skammskamm Hannes litli, skammskamm, ef þú gerir þetta aftur færðu ærlega fyrir ferðina" var hann bara eftir atvikum brattur í Kastljósinu og rembdis sem ahnn gat að sýna yfirbót og eftirsjá!En það tókst nú ekki alveg ef fólk hefur hlustað grant, til dæmis ætlaði hann jú að læra af þessu blessaður "fyrst Hæstire´ttur túlkaði lögin svona og dæmdi hann sekan"!?
Átti þá rétturinn að mati Hannesar eftir allt saman að geta dæmt öðruvísi? Honum hlýtur að finnast það þrátt fyrir orðin um að hann ætlaði að læra af þessu, öðruvísi verður nú kappinn ekki skilin.
Og svo var það þessi dæmalausa yfirlýsing um að endurskrifa ævisögurnar og gefa þær aftur út!?
Hvaða heilvita manni er ekki sama um þó hann gerði það?
"Þú tryggir ekki eftir á" segir ágætt orðatiltæki sem og "Það er of seint að byrgja brunnin þegar barnið er dottið ofan í"
En hannes virðist í alvöru trúa því að hann öð´list aflausn bara með vþí að gera hlutina upp á nýtt, að hægt sé að tryggja eftirá til að bjarga því sem bjargað verður af andlitinu!
Seiseisei!
mbl.is „Ég hefði átt að vanda mig betur"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mér fannst þetta flott hjá honum. Skil ekki alveg hvert þú ert að fara. Held samt að hans verði ávalt minnst sem mikils dugnaðarforks og einum af þeim sem kippti Íslandi upp í 21. öldina. En hver ert þú, dómari????

pétur (IP-tala skráð) 4.4.2008 kl. 01:32

2 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Dugnaðarforkur, jájájá, mikil ósköp. Hér mælir Meistarinn, þú sem kallar þig petur kannt að lesa. Dómararnir eru hins vegar í Hæstarétti og hafa fellt sinn úrskurð.

Magnús Geir Guðmundsson, 4.4.2008 kl. 08:54

3 identicon

Það er nú gott að sé búið að lækka í honum Hannesi rostann. Ég held að það sé hamrað á því, frá grunnskóla upp í háskóla, að menn skuli geta heimilda þegar vitnað er í annarra manna texta. Ég er ekki frá því að Hannes geri það sjálfur þegar hann er að leiðbeina nemendum sínum í ritgerðasmíð. Ef hann gerir það ekki, þá er hann ekki hæfur sem háskólakennari. Annars er þetta mál allt hið leiðinlegasta. Hannes Hólmsteinn skrifar þessar æviminningar í óþökk flestra þeirra sem standa að Laxness heitnum. En hann hunsaði óskir þeirra að hann léti vera af því að skrifa þessar bækur. Nú er að hann sjálfur að upplifa samskonar „yfirgang“ og „frekju“, því vatnssalinn Jón Ólafsson virðist ætla að fara með meiðyrðamálið gegn Hannesi eins langt og hann getur, þó svo að Hannes hafi óskað eftir því að þeir græfu stríðsöxina. Er þetta spakmæli ekki við hæfi: Sagan endurtekur sig!

Stefán (IP-tala skráð) 4.4.2008 kl. 15:47

4 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Jú, kannski hefur þú rétt fyrir þér með það Stefán, sagan endurtaki sig.

Magnús Geir Guðmundsson, 4.4.2008 kl. 19:03

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Svo er verið að reyna að koma því að, ef fólk gagnrýnir Hannes að það hati hann, og vilji honum illt.  Hverslags bölvar rugl er þetta eiginlega.  En svo sem von, þetta er sérhannað í Valhöll, þeir eru sérfræðingar í að umsnúa sannleikanum.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 6.4.2008 kl. 17:51

6 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Eitthvað hefur þeim þó förlast eins og best sést á V.V. og borgarmálunum, mín kæra Cesil!

En Hannes blessaður er sinnar gæfu smiður og hóf þessa vegferð alla sjálfur. En það er nú þetta rektorsbréf sem vekur mestar vangaveltur hjá mér í dag, innihaldið eins og önnur ísfirsk freyja hefur bent á, afar athyglivert!

Magnús Geir Guðmundsson, 6.4.2008 kl. 21:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Pælt um heima og geima

Höfundur

Magnús Geir Guðmundsson
Magnús Geir Guðmundsson
Áhugamaður um flesta hluti.

Nýjustu myndir

  • wmftcs
  • mgg
  • ...mg2_251805
  • ...mg2_251804
  • ...mg2

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 218034

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 18
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband