Kynlíf á fótboltaleik!

Pistill á síðu félaga vors, Jens Guð, Kynlíf í sjálfrennireiðum frá í gær, rifjar upp gamla minningu frá fyrr tíð, sem sannar að "Náttúran" lætur ekki að sér hæða og krefst jafnvel að henni sé sinnt og það í votta viðurvist undir berum himni!
Það átti sér semsagt stað á Íþróttavellinum á Akureyri fyrir allavega um 20 árum, að "Leikfimi líkamamlegrar ástar" átti sér stað meðan ef ég man rétt á leik Þórs og Þróttar frá Neskaupstað stóð!
og það sem meira er, ég varð óafvitandi vitni af upphafinu, sem þó virtist bara vera saklaus ærsl ungs manns í ungri stúlku. Ég kannaðist nefnilega við hana og mitt í hláturskviðum hennar er stráksi var að því er sýndist í stríðni að kitla hana, kallaði hún á mig og bað mig að "Taka hann af sér"!
Ei sinnti ég því, enda leikurinn byrjaður og hann áhugaverðari en einhver ærslalæti í krökkum!
En þegar leik lauk og áhorfendur tóku að streyma úr stúkunni og út af vellinum, sáu menn óvænta sýn, parið í "fullum gangi" í grasbrekkunnji!
SAklausi leikurinn orðin að fúlustu alvöru!
Eitthvað sögðu blöð frá þessari "ástarglímu" í brekkunni, en engum sögum fer af að parið hafi ekki í friði fengið að ljúka sér af!?

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Pælt um heima og geima

Höfundur

Magnús Geir Guðmundsson
Magnús Geir Guðmundsson
Áhugamaður um flesta hluti.

Nýjustu myndir

  • wmftcs
  • mgg
  • ...mg2_251805
  • ...mg2_251804
  • ...mg2

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 218060

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband