30.7.2009 | 18:04
Vísnagaman!
Jamm, komin tími á slíkt svona rétt til að hita upp fyrir helgina. (eða þannig)
Oft finnast mér meint rök sumra bloggara, ærið haldlítil svo ekki sé meira sagt og þá ekki hvað síst þegar um pólitík er að ræða. Í krafti slíkra sjónarmiða eða til að verja þau, falla oft hin skrautlegustu orð, þannig að snautleg verða að teljast fyrir viðkomandi og gera lítið úr honum.
Setti þetta niður inni hjá Láru Hönnu vinkonu minni um daginn!
Þegar skynsöm skortir rök,
skoðanir að tjá á blaði.
Fjári oft í fíflsins vök,
falla menn og það með hraði!
Herskái verkfræðingurinn Loftur Þorsteinsson er velþekktur bloggari, nú eða alræmdur, eftir því hvernig menn líta á það.
Honum tókst að verða svo í nöp við mig og mín skrif í átt til hans, að hann lokaði á mig og er ég bara stoltur af því!
Inni hjá öðrum vígreifum karli, guðfræðingnum og ættapælaranum Jóni Val, gafst mér þó tækifæri til að pota örlítið í hann og það raunar svo mjög, að hann æstist allur upp og sagði mig stefna að "trúðsmennsku" hjá stjórnvöldum, en það því miður tækist þó ekki.svona "Dauðafæri" getur nú galgopi eins og ég ekki látið ónýtt og baunaði því ansi háðskur á karlinn til baka.
Nú er ég guminn já glaður,
glitra í augunum tár.
Loftur svo lítill er maður,
linur og kvikusár!
Engin fékk ég viðbrögðin til baka nema þögnina, þannig að líkast til hefur "Airman" bara verið sáttur við þetta!?
Ég er svo alltaf annað veifið að flækjast í pilsunum hennar Kollu vinkonu og varaformanns Ff. Oftast er það henni að skapi og þá kviðlingarnir fögru um hana fljúga, en stundum er ég leiðindaormur þótt sjaldan sé og þá sussar hún bara á mig eða skammar!
Hún var annars um daginn með kostulega frásögn af "Köngulóakynlifi" með ofbeldi í bland sem mestmegnis átti sér stað um bjartan miðdaginn. Svona í orði kveðnu var hin prúða mey ekki of hrifin af hinu fyrrnefnda "náttúrubrölti", en en sagði þó frá því ódeig og dróg svo ekkert af sér við "ofbeldislýsingarnar"!
Mér varð því eftirfarandi að orði í mínum kankvísa ályktunardrætti!
Bæði sæl og sómakær,
sýndist Kolla enn í gær.
En núna orðin næstum ær,
niður brytjar köngulær!
Þótt kunni á köllunum lag,
Kolla með glæsibrag.
Hún spúsa er spök,
sparar sín mök
Að mestu um miðjan dag!
Kolla var nú ekki alveg af baki dottin og kom með þetta um hæl!
(með örlítilli bót frá mér)
Að mestu um miðjan dag,
maður, á þér er lag.
Ja, flest er farið að spara,
fólk, ég segi nú bara!
Loks er það svo ein létt og laggóð sem féll inni hjá einni af fyndnustu konum landsins, Hildi Helgu Sigurðardóttur. Var þetta í kjölfarið á brunanum á Valhöll um daginn, hvað ætti að koma í staðin. hinn sposki og norðlenskættaði bloggari, Brjánn Guðjónsson, var með allt á hreinu um þetta, reisa ætti bara ölstofu í staðin og svo gæti fólk bara brugðið sér í gjána ef þyrfti að pissa!
Það teldist bæði lukka og lán,
þó lítið yrði ég hissa.
Á Almennagjáarbarminum Brján,
blindfullan sæi að pissa!
Meginflokkur: Dægurmál | Aukaflokkar: Lífstíll, Spaugilegt, Vinir og fjölskylda | Facebook
Um bloggið
Pælt um heima og geima
Eldri færslur
- Desember 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- Janúar 2013
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Janúar 2011
- Nóvember 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
Bloggvinir
- Jens Guð
- arnar valgeirsson
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Big Fats Slim
- Blúshátíð í Reykjavík
- Brynjar Davíðsson
- Einar Bragi Bragason.
- Eva Benjamínsdóttir
- Eygló
- Gulli litli
- Heiða Þórðar
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Hildur Sif Thorarensen
- Hlynur Hallsson
- Hólmdís Hjartardóttir
- Inga Lára Helgadóttir
- Ingvar Valgeirsson
- Jenný Anna Baldursdóttir
- Jóhanna Magnúsdóttir
- Kolbrún Stefánsdóttir
- Kristinn Halldór Einarsson
- Kristín Einarsdóttir
- Kristín M. Jóhannsdóttir
- Kristján Kristjánsson
- Kristján Logason
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
- Oddur Helgi Halldórsson
- Ólafur Ragnarsson
- Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
- Rannveig H
- Sema Erla Serdar
- Sigþrúður Þorfinnsdóttir
- Sjónstöð Íslands
- Solla Guðjóns
- Steingrímur Helgason
- Svala Jónsdóttir
- Svavar Alfreð Jónsson
- Vefritid
- Víðir Benediktsson
- Þórarinn M Friðgeirsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.2.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þér er óhætt að vera stoltur af að Loftur loki á þig. Það er gæðastimpill. Vegna orða JVJ um að þú stefnir að "trúðsmennsku" hjá stjórnvöldum rifjast upp fyrir mér þegar Færeyingar tóku ritmál sitt föstum tökum um miðjan fimmta áratug síðustu aldar. Þar var tekið mið af íslensku ritmáli. Ekki síst er lýtur að bókstafnum ð. Hann heyrist ekki beinlínis í færeysku talmáli sem slíkur heldur er stundum borinn fram sem v (maður), j (Héðinn), g (veðrur = hrútur) og svo framvegis. Til að byrja með var færeyskur almenningur í vandræðum með að átta sig á hvenær átti að skrifa ð, sleppa því eða skrifa annan staf.
Um svipað leyti hóf göngu sína í Færeyjum tímarit sem enn kemur út og heitir Trúboðinn. Fyrsta eintak tímaritsins hét Trúðboðinn.
Jens Guð, 30.7.2009 kl. 22:24
Haha Jens, takk kærlega fyrir skemmtilegt og fræðandi innlegg! En JVJ átti að þessu sinni ekki hlut að máli, Loftur var með þessa "Trúðsyfirlýsingu". Annars voru hirðfífl fyrri alda ekki bara skemmtun fyrir herra sína, þau höfðu nefnilega oftar en ekki vit fyrir þeim og töluðu fyrir þá, svo þetta var í raun afar fyndið!
Magnús Geir Guðmundsson, 31.7.2009 kl. 00:47
Jæja Magnús. Þegar ég las það að menn væru að kvarta undan þér og loka á þig á netinu, þá ákvað ég að setja saman eitt lítið vísubrot handa þér:
Hirðfífl hann Magnús sagður er Hendir að öllu gaman Harðlífi og hreðjasig menn óska þérOg haltu þér nú saman.
Svona gerist það á mölinni þegar andinn kemur yfir mann - sem gerist u.þ.b. einu sinni á ári.
Stefán Sigurðsson (IP-tala skráð) 31.7.2009 kl. 14:28
Vísan kom ekki vel út. En ég copy and paste-aði hana frá öðru blaði. En hér kemur hún aftur:
Hirðfífl hann Magnús sagður er
hendir að öllum gaman
Harðlífi og hreðjasig menn óska þér
Og haltu þér nú saman.
Alveg stórkostlegur skáldskapur.
Stefán Sigurðsson (IP-tala skráð) 31.7.2009 kl. 16:28
Hahaha Stebbi Melur, færð 10 fyrir innihaldið, en fyrir stíl og stuðlasetningu er einkunin bara á huldu og skiptir ekki alveg máli hérna.
TAkktakk!
En tja, hvort ég held mér saman? Þú ert annars hress vænti ég eftir "Skotbardagann" hér nyrðra um daginn og ekki dauður úr öllum æðum?
Magnús Geir Guðmundsson, 31.7.2009 kl. 20:47
Já, maður er bara furðu hress .... sendi þér tölvupóst við tækifæri ...
Stefán Sigurðsson (IP-tala skráð) 31.7.2009 kl. 21:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.