Og hví skildi hann heldur gera það!?

Mikið fjári er þetta orðið leiðinlegt allt þetta kjaftæði um þennan fjarskylda frænda minn!
Hann er að jafna sig á viðkvæmum meiðslum, sem gætu þess vegna tekið sig upp, hefur lítið sem ekkert æft nú í töluverðan tíma og þar með ekkert spilað, auk þess sem þeir leikmenn sem spiluðu á laugardaginn stóðu sig vel, í stórum dráttum alla vega!
Nú er þetta auðvitað nýr leikur með allt öðrum forsendum og menn náttúrulega komnir í "Gamla og góða bjartsýnisgírinn", en hjálpi mér!
Þessar "Spekúlúsjónir" eru út í hött, ég tala nú ekki um eftir það sem á undan er gengið með Eið og "Samkomulagið mikla" við Barcelona frá því á laugardaginn!
Eigum við öll ekki bara að hugsa um að líkt og með Spánverjaleikinn nái liðið góðum úrslitum, í stað þess að vera endalaust að spá í hvort eða hvað gerist með Eið!?
Í ljósi reynslunnar er ég þó ekki bjartsýnn, burtséð frá Eið Smára Guðjónsen með eða ekki, tap kæmi mér ekki á óvart!
mbl.is Eiður byrjar ekki inná gegn Norður-Írum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Það er mikið talað hér í breskum fjölmiðlum um þennan leik á morgun milli Níranna og Ísfólksins. Þeir eru ekkert að vanmeta liðið okkar og spá því að leikurinn verði spennandi. Ég spái því líka, og er búin að setja kassa í kælinn. Það er mér eiður sær.

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 11.9.2007 kl. 22:32

2 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Jahá, kassa af kókómjólk geri ég ráð fyrir haha!

En farðu nú ekki of geyst í sakirnar og vertu við öllu búin! Eins og ég sagði, um leið og menn fyllast bjartsýni eins og núna eftir síðasta leik, byrja viðvörunarbjöllurnar að klingja í mínum hausgarm!

En þú sérð þetta semsagt bara heima í stofu!?

Magnús Geir Guðmundsson, 11.9.2007 kl. 23:05

3 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Þú mátt kalla það kókómjólk ... eða kallakók, eins og allir spennandi og forboðnir drykkir voru kallaðir á mínu æskuheimili fyrir fjörutíu árum.

Ég er ávallt við öllu búin, eins og Flosi þegar hann gengur um Hellisgerði, en hér gildir ekkert nema fullkomin bjartsýni og ekki ástæða til annars þegar stórsigur er í sjónmáli. Einu viðvörunarbjöllurnar sem fá að hringja á mínu heimili hanga um hálsinn á kattarófétunum, og ef marka má indjánaskrautið í garðinum, þá eru þær álíka gagnlegar og krullujárn fyrir Ómar Ragnarsson...

ÁFRAM ÍSLAND!   

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 11.9.2007 kl. 23:52

4 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Haha, þú ert alveg yndisleg, vona þó að "skipulögð fjöldamorð" séu daglegt brauð í garðinum, þannig að stefni í útrýmingu á bíbí!?

Þú lofar bara að grýta elskulegan eiginmanninn ekki með "kókómjólkurfernunum" ef við vinnum ekki!

Og já hann Flosi karlinn, hann hefur ort margar afbragðshnyttnar, eins og í Hellisgerðinni ef hann hitti þar hýran Hafnfirðing.

Hann var hérna í MA og var rekin og orti ýmislegt, eins og t.d. vísuna sem fleistir þekkja á Akureyri er um það bil.. þú þekkir hana.

Önnur sem er fín frá sama tíma er svona og jfjalla um "erfiðið að labba upp í MA!

Eitt finnst mér vera út í hött,

á þessum fagra stað.

Það er hvað brekkan er brött,

blessaðir lagiði það!

Magnús Geir Guðmundsson, 12.9.2007 kl. 00:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Pælt um heima og geima

Höfundur

Magnús Geir Guðmundsson
Magnús Geir Guðmundsson
Áhugamaður um flesta hluti.

Nýjustu myndir

  • wmftcs
  • mgg
  • ...mg2_251805
  • ...mg2_251804
  • ...mg2

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 7
  • Frá upphafi: 218211

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband