Þróttur í Þrótturum!

Já svei mér, ef röndótta "Ópalliðið" er ekki bara að taka 1. deildina og stráksinn úr Keflavík, Adolf SVeins, sá um að klára gömlu nágrananna!
Ef þetta nú gengur eftir sem horfir, Þróttararnir vinni deildina, verður sönglífið á pöllunum í úrvalsdeildinni enn líflegra næsta sumar en nú og er þó býsna líflegt í ár!
Um það munu hinu frægu stuðningsmenn Þróttar, Kottararnir, bera vitni!

Nú sjáum við Kottara káta,
kyrja baráttusöngva.
En Grindvíkingana gráta,
gleði finna þeir öngva!

Allavega ekki í bili, baráttan um sigurinn í deildinni ekki útkljáð!


mbl.is Þróttur í efsta sætið eftir 3:1-sigur gegn Grindavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín Björg Þorsteinsdóttir

Hér á heimili er einkennilegt ástand. Við búum í Vogahverfi og erum að sjálfstögðu í 7unda himni með okkar menn. Svo er ég Breiðablikskona að upplagi og er ánægð að ekki sé hægt að segja brandarann "hvað er grænt og fellur að hausti" þetta haustið. HK er síðan bara bónus.

En elskulegur eiginmaður og faðir barnanna er KRingur og á rosalega bágt

Kristín Björg Þorsteinsdóttir, 2.9.2007 kl. 13:15

2 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Haha Kristín Björg, gaman að fá fróma frú og góða útvarpskonu í heimsókn, takk kærlega fyrir það! Sé ekki betur en þú sért að vitna í einhverja gamla "poppflugu" þarna með eiginmannsgarminn, hann ekkert í boltanum eða grætur vegna annars liðs!?

Jamm, gamall þessi með blikana, Óli Kristjáns að gera góða hluti með þá. EF KR-ingagreyin (karlinn kannski að gráta þá?) ná ekki að rétta úr kútnum, vinna til að mynda HK, þá mætti ætla að litla Kópavogsliðið haldi sæti sínu, hef trú á að Safamýrardrengir hangi á þrjóskunni í Óla Þórðar einni saman!

Magnús Geir Guðmundsson, 2.9.2007 kl. 15:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Pælt um heima og geima

Höfundur

Magnús Geir Guðmundsson
Magnús Geir Guðmundsson
Áhugamaður um flesta hluti.

Nýjustu myndir

  • wmftcs
  • mgg
  • ...mg2_251805
  • ...mg2_251804
  • ...mg2

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband