14.8.2007 | 16:29
Bolir og fleiri flíkur!
Það er örugglega orðin gömul uppátektarsemi, að líkja fólki á einn eða annan hátt við flíkur, eða lýsa fólki misgóðu með slíkum nafngiftum.Beint eða óbeint, Bubbi fann að líkindum upp Jakkalakka um árið yfir vissa gerð karlmenna og konur geta verið algjörar "dúllur" eða "Blúndur" eftir atvikum!
Svo er það nútíminn, til eru "Hnakkar" "Úlpur" og svo "Hnakkamellur" sem frægt varð!
Og "Blir" líka, samanber bloggfyrirbærið sem kallar sig því nafni og hefur með ýmsum klækjum komið sér á topp vinsældalistans hjá Moggablogginu!
Kíkti eitt skipti snöggt inn á það, en stökk jafnharðan út aftur, ekki fyrir minn smekk! Einn frekar stór galli við Moggabloggið, að nafnleynd skuli leyfð.
Svo er það nútíminn, til eru "Hnakkar" "Úlpur" og svo "Hnakkamellur" sem frægt varð!
Og "Blir" líka, samanber bloggfyrirbærið sem kallar sig því nafni og hefur með ýmsum klækjum komið sér á topp vinsældalistans hjá Moggablogginu!
Kíkti eitt skipti snöggt inn á það, en stökk jafnharðan út aftur, ekki fyrir minn smekk! Einn frekar stór galli við Moggabloggið, að nafnleynd skuli leyfð.
Um bloggið
Pælt um heima og geima
Eldri færslur
- Desember 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- Janúar 2013
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Janúar 2011
- Nóvember 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
Bloggvinir
- Jens Guð
- arnar valgeirsson
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Big Fats Slim
- Blúshátíð í Reykjavík
- Brynjar Davíðsson
- Einar Bragi Bragason.
- Eva Benjamínsdóttir
- Eygló
- Gulli litli
- Heiða Þórðar
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Hildur Sif Thorarensen
- Hlynur Hallsson
- Hólmdís Hjartardóttir
- Inga Lára Helgadóttir
- Ingvar Valgeirsson
- Jenný Anna Baldursdóttir
- Jóhanna Magnúsdóttir
- Kolbrún Stefánsdóttir
- Kristinn Halldór Einarsson
- Kristín Einarsdóttir
- Kristín M. Jóhannsdóttir
- Kristján Kristjánsson
- Kristján Logason
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
- Oddur Helgi Halldórsson
- Ólafur Ragnarsson
- Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
- Rannveig H
- Sema Erla Serdar
- Sigþrúður Þorfinnsdóttir
- Sjónstöð Íslands
- Solla Guðjóns
- Steingrímur Helgason
- Svala Jónsdóttir
- Svavar Alfreð Jónsson
- Vefritid
- Víðir Benediktsson
- Þórarinn M Friðgeirsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Gaurinn var víst að djóka í okkur ... og ég sem hélt að þetta væri bara enn einn töffarinn sem bloggar við fréttir! Nú skilst mér að hann verði afhjúpaður eða hafi verið látinn hverfa! Mjög gruggugt!
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 14.8.2007 kl. 16:43
Þú segir það bara Guðríður góð!
En getur þetta ekki bara verið svona uppgerðar töffaraskapur í fleiri en einum, svona til að sanna fyrir sjálfum sér og öðrum, að hægt sé að "hræra upp í þessu Moggabloggsdrasli"? Kæmi mér ekki á óvart, enda óknyttastrákur sjálfur stundum, eins og þú veist!
Annars átti nú að standa í fyrirsögninni "Bolir" ekki "Bolur" en nennti svo ekki að breyta því.
Magnús Geir Guðmundsson, 14.8.2007 kl. 17:12
Ég kom held ég einu sinni inn á þetta treyjublogg, en þar var ekkert merkilegt og satt best að segja hélt ég að þetta væri fótboltabullublogg og kom því ekki aftur.
Nafnopinberun breytir engu í þessu. Það er nafnleynd um allt internet og hefur verið um árabil - og er reyndar á öllum bloggum sem ég hef rekist á . Það verða alltaf til sjálfskipaðir grínarar leynt eða ljóst. Annars fannst mér þetta ekki alvarlegt uppátæki og enginn sakaður um að hafa drepið neinn og engar morðhótanir. Svo hann fær ekki "Lúkasinn" eins og Gurrí orðaði það svo snilldarlega annars staðar.
Það er samt ákaflega merkilegt hvað margir moggabloggarar og vísisbloggarar og nokkrir aðrir eru uppteknir af því að fá nafn og kennitölur (smá ýkt) og annað þykir bara ekki fínt. Þegar alls staðar fólk er varað við að gefa persónulegar upplýsingar á netinu, sem meðal annars vörn fyrir misyndismönnum, (fyrir utan að þetta er rótgróið í netmenningunni). Börnum og unglingum er sagt að gefa engar upplýsingar til neins á netinu. Þar til allt í einu er komið á íslenskar bloggsíður... rétt eins og það sé eitthvað öruggari staður en annars staðar í netheimum. Þetta eru tvöföld skilaboð í mínum bókum.
krossgata, 14.8.2007 kl. 21:43
Ágæta Krossgata!
Veit nú ekki alveg hvaða tvöföldu skilaboð þú átt við, að halda úti bloggsíðu þar sem þú viðrar skoðanir þínar og eftir atvikum í athugasendakerfinu hjá öðrum, undir fullu nafni er eitt, verandi fullorðin einstaklingur, en alltallt annað að vera barn og unglingur flakkandi inn á einhverjum ótilgreindum spjallsvæðum, þar sem nefndir misyndismenn eru gjarnan í því augnamiði að lokka ungviðið út í fenið til sín!Þetta er alveg tvennt ólíkt í mínum huga og ósambærilegt!
Hvað varðar svo þetta "snilldaruppátæki" Henrys Birgis sem Bolur, þá fannst mér ekki skipta máli hvort hann væri sniðugur eða ekki, heldur hver tilgangurinn var í raun og veru! Jújú, nafnleyndin hefur ríkt, en undir fullu nafni hefði Henry aldrei getað þetta og ég held raunar að ekki sé öll sagan sögð með uppátækið, þótt hann segist afhjúpa gjörningin á svæðinu sínu á visi.is.En einhverjum stendur ekki á sama um þetta líka, allavega ef marka má aðstandendur Moggabloggsins, Henry lísir líka ekki beinlínis yfir ást á því í "afhjúpunarpistlinum"!
Kannski skrifa ég pistil hérna um hvað mér finnst augljóslega búa að baki, nenni því allavega ekki ennþá og vonast reyndar að aðrir uppgötvi það sem mér sýnist liggja að baki.
Magnús Geir Guðmundsson, 14.8.2007 kl. 23:00
Börn og unglingar vafra á bloggum líka og halda úti bloggum, líka á moggablogginu.
Annars var augljóst að Henry þessum Birgi þótti lítið til moggabloggsins koma, það (moggabloggið) er þó ekki verra en önnur blogg. Hann hefði kannski átt erfiðara með þetta undir sínu nafni - held ekki, mér finnst nafnið ekki skipta máli - en sem Sigurður Jónsson eða Nonni Nonn alveg sömu möguleikar og bolur bols.
Ekki veit ég hvað lá að baki eða hver tilgangurinn var. Þetta mun þá algerlega hafa mistekist hjá honum ef fólk sér ekki hvað hann er að fara með uppátækinu.
krossgata, 14.8.2007 kl. 23:52
Ma ma ma ma maður verður náttúrlega að ganga milli bols og höfuðs á svona mönnum sem nota flíkur til að flíka svona dýrslegum hvötum og kommentum!
-R. Reykás
Helga Guðrún Eiríksdóttir, 15.8.2007 kl. 00:21
Hahahaha! Þú ert í banastuði í kvöld frú H.G.!
En við þig sem ert á bak við nafnið Krossgata, þá sýnist mér bara að við verðum að vera sammála um að vera ósammála! ÉG get að minnsta kosti ekki sett samasemmerki á milli spjallrása eða jafnvel MSM samskipta og svo galopina bloggsíða eins og Moggabloggsins!En einmitt, Moggabloggið er sannarlega ekki verra en önnur slík svæði, jafnvel betra en sum, því geta menn áfram spurt hvað Henry gekk í raun og veru til!
Magnús Geir Guðmundsson, 15.8.2007 kl. 01:36
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.