Ég hjá Jóni Val!

Hvað er betra á fögru sumarkveldi, nú eða um dag þegar lítið er að gera eða lundin ei svo létt, en að skella sér inn á bloggið hjá guðfræðingnum kjaftgleiða Jóni Val Jenssyni og gleyma sér þar smá stund, ég bara spyr!?
Það geri ég stundum, eins og fyrr hefur komið fram og víla ekki fyrir mér að svetta einhverju blaðri eða bögukorni í athugasendum, mér til mikillar ánægju og skapsbótar oft á tíðum! Skiptir mig engu þótt andsvörin séu oft út í hött og heldur óbilgjörn sem tíðum hjá kappanum, virkar sjálfsagt álíka á mig líkt og vatni sé skvett á gæs!
Jóni Val líkar ekki mjög önnur sjónarmið en sín eigin varðandi Icesave og sendi mér þessa alveg ágætu sendingu um margt í fjórum línum.

Icesavesnatar ýlfra hátt,
aumka breska vini.
Að mýkja þá er mikið brátt,
Magga Guðmundssyni.

Auðvitað ekki sammála innihaldinu, en afar ánægður með sjálfan mig, setti ég þetta í snarhasti á blað sem andsvar.

Tilfinning er tær og góð,
talsvert stoltur er.
Kveðskapar að kveikja glóð,
í KJAFTASKINUM þér!

Nú svo var hann sem oftar með frjálsa túlkun á orðum annara, sem ég leyfði mér að gera athugasend við. Ekki féll karli það alls kostar frekar en fyrri daginn og orðaði það þannig, að Magnús "þessi" væri lítt marktækur.
Launaði ég fyrir mig svona.

Mælir svo Magnús ÞESSI,
af munni hógværa bæn.
Að dável drottin þig blessi
og dæmi Syndugi-Jón!

Skemmst er frá því að segja, að þögn brast á, sem gerist nú ekki á hverjum degi á þeim bænum!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jens Guð

  Maggi,  ef ég þekki þig rétt áttu ekki í vandræðum með að kasta kveðju á kaþólikkann.  Annars hef ég alltaf gaman af JVJ.  Hann reynir að vera yfirvegaður og málefnalegur og tekst það oft.  En oftast tekst honum að vera ósammála mér.  En umræðan væri fátæklegri ef hann væri ekki svona ákafur í að verja páfa,  slátrun á Írökum,  jafnframt því að berjast gegn fóstureyðingum.  Og duglegur að skrifta og fara með Maríubæni.

Jens Guð, 8.7.2009 kl. 01:06

2 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Hahahaha, góður ertu félagi Jens! En já, ég segi það satt, léttir mér lundina að kasta mér í kæruleysi inn á karlinn og kannski blaðra eitthvað honum auðvitað til sannrar gleði og ánægju!

Magnús Geir Guðmundsson, 8.7.2009 kl. 01:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Pælt um heima og geima

Höfundur

Magnús Geir Guðmundsson
Magnús Geir Guðmundsson
Áhugamaður um flesta hluti.

Nýjustu myndir

  • wmftcs
  • mgg
  • ...mg2_251805
  • ...mg2_251804
  • ...mg2

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 11
  • Frá upphafi: 218000

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband