Sunnlendingar! Því meiri rigning nú, því betra.

Miðað við hve lítið hefur snjóað yfir vetrartíman sl. árin og sömuleiðis rignt á suður- og vesturhluta landins, ættu íbúar þessara landshluta að fagna já rigningunni og það sem mest!
og ekki bara það og vona að hún verði sem mest, því auk minni úrkomu hafa jarðskjálftarnir bæði árið 2000 og nú fyrr í sumar, haft afgerandi áhrif á grunnvatsstöðuna þarna og raunar víðar á landinu til hins verra!
Ekki langt síðan vísindamenn voru að segja frá því í fréttum, að miklar tilfærslur hafi orði á þessu í kjölfar jarðhræringanna og sumstaðar vatn meira að segja horfið. Bora þarf svo sífelt dýpra eftir neysluvatninu okkar, svo full ástæða er fyrir fólk núorðið að nöldra kannski aðeins minna þegar tíðin verður eins og núna að þessar fellibylsleifar bera slíka úrkomu yfir landið.
vatnið er jú einu sinni undirstaða alls lífs auk sólarljóssins á þessari jarðarkringlu okkar!
mbl.is „Rofar til síðdegis á morgun"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: J. Einar Valur Bjarnason Maack

Já. Ég er að mörgu leiti sammála þér þarna, en svo er aftur annað mál, hversu langan tíma það tekur fyrir vatnið að síga í gegnum jarðskorpuna. Ég hef heyrt þúsundir ára, en er ekki viss, veist þú það?

J. Einar Valur Bjarnason Maack , 21.7.2008 kl. 16:21

2 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

J Einar minn, hér snýst málið ekki um að vera sammála eða ekki, né hversu lengi það tekur úrkomuna að bindast, það sem skiptir máli er að ÞAÐ RIGNI!

Magnús Geir Guðmundsson, 21.7.2008 kl. 16:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Pælt um heima og geima

Höfundur

Magnús Geir Guðmundsson
Magnús Geir Guðmundsson
Áhugamaður um flesta hluti.

Nýjustu myndir

  • wmftcs
  • mgg
  • ...mg2_251805
  • ...mg2_251804
  • ...mg2

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband