Neytendahornið - AB - léttmjólk.

Hættið, hættið, já hættið að kaupa þessa viðurstyggilegu AB venjulegu mjólk, segi ég alveg harður nú!
Alltof feit og bragðverri, kaupa létt útgáfuna miklu frekar, allir og alltaf, miklu hollari og betri með morgunkorninu!
Og hætta að borða bara Cheeious með nýmjólkurfjanda á morgnana, AB - létt með All Bran miklu betra og jú kannski stundum allt í lagi að fá sér hringina með hnetubragðinu svona einu sinni í viku, eða kannski blanda þeim með All Braninu!
En hætta í fitumjólkinni, draga úr henni til dæmis líka með því að nota léttmjólk út í kaffi, te eða soðna vatnið!
Og lifi Bónus, Krónan Nóatún, Kaupmannsbúðirnar, Hagkaup, NETTÓ og allar hinar okurbúðirnar okkar!

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Maggi þú vilt kannski minnka aðgengi að AB mjólk, væri þá ekki sniðugt að selja hana bara í ríkinu. Mér finnst að þú sért ekki mikið fyrir það þessa dagana að fólk fái að velja og hafna, dálítið "að því að mér finnst þá skal það vera þannig" stefna. Við sem erum fullorðnar manneskjur viljum fá að ráða því svolítið sjálf hvort við kaupum þessa eða hina vöruna, borgum meira eða minna fyrir hana. Mér fannst undarleg samlíking hjá þér sem ég sá einhversstaðar, að líkja því að selja áfengi í matvörubúðum við að selja haglabyssur og sprengjur og sýna að menn eru komnir alveg útí móa í þeirri umræðu. Það er hinsvegar nokkuð ljóst að við erum að kaupa ýmsan óþverra í matvöruverslunum, en það er okkar að fylgjast með því sem við kaupum og finna út hvað fer vel í okkur  og hvað illa,  sennilega kemst "allt er best í hófi"  næst því að virka fyrir hvern og einn.

Bubbi (IP-tala skráð) 3.11.2007 kl. 16:06

2 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Séra Björn á reynivöllum hefur heiðrað oss með nærveru sinni og innblásnum skoðunum sínum, þökkum vér honum fyrir það.

Magnús Geir Guðmundsson, 3.11.2007 kl. 21:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Pælt um heima og geima

Höfundur

Magnús Geir Guðmundsson
Magnús Geir Guðmundsson
Áhugamaður um flesta hluti.

Nýjustu myndir

  • wmftcs
  • mgg
  • ...mg2_251805
  • ...mg2_251804
  • ...mg2

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband