Neytendanöldur!

Komin tími á smá nöldur varðandi neytendamál og um hlut reyndar sem fer alveg óstjórnlega í taugarnar á mér!
Hví í veraldarandskota þarf matvælafyrirtækið Kjarnafæði (já einmitt, fyrirtækið sem hann Auðjón gamli kunningi minn vinnur hjá, bróðir vinsælasta bloggarans Jens Guð!) að stunda þá eyðileggingarstarfsemi á hrásalatinu sínu af íslenskri gerð, að sulla ómældu magni af sykri saman við það!?
Maður er með sínu litla lóði á vogarskál neyslusamfélagsins íslands, að kaupa helst ekki af öðrum en heimafyrirtækjum, starfsfólki til stuðnings (þó alvöru slík fyrirtæki séu nú orðin sárafá í bænum í eigu heimamanna!) en svona vitleysa kvetur mann nú ekki beinlínis í því!
Alltaf er verið að segja almenningi að það borði ekki nóg af grænmeti, ávöxtum og svo framvegis, en það er nú til lítis ef hollustugildinu er beinlínis drekkt í sykurhelvítinu!
Auðvitað eru til aðrir sem framleiða hollara salat, en ég vil helst kaupa af heimaframleiðendum.
Bæta úr þessu Auðjón og "Kjarnafæðisbræður"!

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Agnarlús af sykri drepur engann viljandi. Stundum gerir hún samt gæfumuninn í bragði, sbr þegar þú steikir lauk á pönnu að setja agnarögn af sykri og örlítið salt á pönnuna. WHOLLA! Allt annar matur og helmingi betri.  

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 20.10.2007 kl. 01:48

2 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Agnarögn já, trúi því nú alveg, en vel vaxna þrumuskutlan þú, myndir breytast hrukkótta hryllingsnorn, ef þú myndir fara að neyta þessa annars ágæta hrásalats frá Kjarnafæði haha!

Almennt talað mín góða Helga Guðrún, þá er þetta bara eitt af stóru heilbrigðis- og neyslumálunum í hinum vestrræna heimi allavega, hve viðbættur sykur í tonnavís er algengur!

Hvbað býður þú svo helst upp á með smásætulauknum?

Magnús Geir Guðmundsson, 20.10.2007 kl. 21:14

3 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Með pönnufylli af steiktum lauk myndi ég bjóða uppá heimatilbúnar kjötbollur, brúna rjómasósu, kartöflustöppu súperspes og rabbabarasultu frá mömmu.

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 21.10.2007 kl. 01:12

4 Smámynd: Jens Guð

  Ekkert veit ég um þetta hrásalat.  Hinsvegar er ég ósáttur við það að sífellt fleiri matsölustaðir eru farnir að sjóða blandað grænmeti í sykurvatni. 

Jens Guð, 21.10.2007 kl. 15:38

5 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Blandað grænmeti í sykurvatni?

Hljómar nú sem versti ófögnuður!

En viðurkenni mín góða Helga Guðrún, að ég hefði ekkert á móti því að mæta í mat hjá þér að snæða ´þínar kjötbollur, nema hvað að lágmarkssosa og sulta yrði nú á mínum diski!

Magnús Geir Guðmundsson, 21.10.2007 kl. 19:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Pælt um heima og geima

Höfundur

Magnús Geir Guðmundsson
Magnús Geir Guðmundsson
Áhugamaður um flesta hluti.

Nýjustu myndir

  • wmftcs
  • mgg
  • ...mg2_251805
  • ...mg2_251804
  • ...mg2

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 13
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband