Fagrar og gáfaðar mæðgur!

Verð nú að játa að lítt vissi ég um þetta pólitíska brölt Bryndísar og Önnu, en hitt veit ég upp á hár, að mikill er missir af þeim fyrir alla, fallegar, gáfaðar og glæsilegar sem þær eru!
Og þess má geta, að ég hef verið svo heppin að kyssa þær báðar!
mbl.is Draga sig til baka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Yfirgengilega bjánalegt bull!

Ef hér er öllu til skila haldið, rétt með farið og þýtt, er bara engu logið á þetta "hægribakvarðarmannkerti" hjá Mu og fíflaleg framkoma hans í leikjum og eftir, hefur stundum gefið til kynna!
Á þessu er að skilja að landsliðsþjálfarinn hafi reynt að fá Scholes til baka, en svo líka að þjálfarinn hefði frekar átt að fá Scholes til að snúa aftur en Carragher?!
En toppurinn er auðvitað þetta með hægri bakvörðin og að Capello hefði frekar átt að velja Wes Brown en Carragher?
Hvurslags bjáni er maðurinn eiginlega?
Á að velja leikmann þótt vissulega góður sé, en hefur nánast bara ekkert spilað vikum og mánuðum saman vegna meiðsla og annars, í stað leikmanns sem óumdeilanlega er ekki bara einn besti varnarmaður lands síns og reynslumesti, heldur sá stöðugasti og að vera afskaplega sterkur og drífandi persónuleiki í ofanálag?
Makalaust moð, sem ég ítreka aftur, að ef sé rétt, þá er ekki alveg í lagi með mannin sem setur það fram!
Kannski svona svekktur sjálfur að hafa hætt núna þegar þessi mikli spenningur er í kringum liðið og það talið geta farið jafnvel alla leið í keppninni og ekki sjálfur fengið beiðni um að koma aftur, hver veit?
N'u eða afbrýðisamur út í Liverpoolleikmannin fyrir hönd MU?
Veit ekki, en þetta er alveg sprenghlægilegt í öllum kjánaskapnum!
mbl.is Neville: Capello reyndi að fá Scholes
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samt hefur það nú verið með "Carra" eins og eðalvínin...,

...hann hefur nær stöðugt batnað með árunum og fyrirfram er það ekkert nema gæfa fyrir enska landsliðið að fá þennan "hertoga" aftur inn í landsliðið!
og jafnvel þótt hann muni ekki spila nema takmarkað kannski, verður líka af honum ómældur andlegur styrkur í baráttunni sem framundan er.
Þessi tíðindi auka svo sömuleiðis möguleika enskra mikið að ná langt í S-Afríku, allavega í 8-liða úrslit, þar sem síðan allt getur gerst með framhaldið!
Það lítur því út fyrir að einum allraversta þjálfara enskra frá upphafi vega, Steve mcLarren, hafi sem betur fer ekki alveg tekist að eyðileggja landsliðsferil þessa án eefa TRAUSTASTA miðvarðar Englands sl. tíu árin eða svo!
mbl.is Carragher: Ég yngist ekki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ha,ha,ha!


Upp nú andan rífið,
út með leiðindabrag.
Hláturinn lengir lífið,
léttur hljómar í dag!
mbl.is Hlegið í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skítt!

Jamm og ei er ég mjög bjartsýnn á að mínir menn geti endurtekið leikin frá því í fyrradag, unnið aftur í "Símasalnum" að Hlíðarenda?!
Svo bætir ekki úr skák að sjá þarna eina tvo norðanpilta í liði Vals eiga drjúgan þátt í sigri þeirra og þá sérstaklega Arnór Gunnarsson auðvitað auk Baldvins Þorsteinssonar!
En svona er lífið og maður á aldrei að segja aldrei..!
mbl.is Valsmenn tryggðu sér oddaleik
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú rignir tárum!

Svo er nú víst í Regnborginni miklu henni Manchester og ekki undarlegt, ræfilsdeildarbikarinn virðist nú það eina sem fótboltaliðið MU muni bera úr bítum á þessu tímabili eftir þessa framgöngu!

mbl.is Robben skaut United út úr Meistaradeildinni (myndband)
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sagnameistarinn!

Nú frómur er fallin í val,
frömuður lands og tungu
Glæstur í sagnanna sal,
seyddi þá eldri sem ungu
mbl.is Jón Böðvarsson er látinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Brúðkaup ársins!

Jamm, ekki spurning um það!

Hins vegar vekur eitt auðvitað athygli.

Á vænni stund ég velti fyrir mér,
hve veröldin hún gerist ´skrítin stundum.
Að besta fólk á brúðkaupsdegi sér,
blessunar nú óski mest frá hundum?!


mbl.is Jónína og Gunnar í hjónaband
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dagur gjafmildi og gleði!

Það má já með sanni segja, sólin skín í heiði og gos gleður landan. Og ekki nóg með það, gerast nú geðshrærðir og ljúfir sem lömb aðdáendur fótboltaliðsins Manjú eftir sigur vannst á vígreifum andstæðingum.
En auðvitað hafðist sá sigur ekki nema með stakri "Gjafmildi & hjálpsemi" stjórnanda leiksins og andstæðinganna sjálfra, en svona er þetta bara stundum á þessum vígstöðvum!
mbl.is United lagði Liverpool og endurheimti toppsætið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ísgerður Eðalsnót!

Já góðir hálsar, Ísgerður Elva frænka mín er frábær og margt væri hægt að gera vitlausara en að gefa þessari plötu hennar tækifæri!
mbl.is Bara plata barnaplata
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Pælt um heima og geima

Höfundur

Magnús Geir Guðmundsson
Magnús Geir Guðmundsson
Áhugamaður um flesta hluti.

Nýjustu myndir

  • wmftcs
  • mgg
  • ...mg2_251805
  • ...mg2_251804
  • ...mg2

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 218062

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 18
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband