Erotík!

Með hörund svo hrífandi,
hárlokka sindrandi
Álfmeyjan yðandi
eggjar mig seyðandi
Blíðleg og biðjandi,
bíður mín liggjandi
Með barma svo beljandi,
og brúnhnetur æpandi.

Og ég...

...stekk

SEKK!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Erotík við unaðsstund

yljar mér í frosti

en hommar vilja erohund,

eða held það minnsta kosti.

Húnbogi Valsson (IP-tala skráð) 6.2.2009 kl. 08:01

2 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Hm Húnbogi minn, segi nú fátt við þessu skensi þínu, ekki alveg í takt við fallega ljóðið mitt!

Magnús Geir Guðmundsson, 6.2.2009 kl. 10:14

3 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Þið eruð dásamlegir

Hólmdís Hjartardóttir, 6.2.2009 kl. 14:08

4 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

ERt þú Álfamey Hólmdís?

Magnús Geir Guðmundsson, 6.2.2009 kl. 16:06

5 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Eða viltu vera Álfamey?

Magnús Geir Guðmundsson, 6.2.2009 kl. 16:07

6 Smámynd: Þórarinn M Friðgeirsson

Já ef þetta er ekki kveðskapur um erótík þá hef ég lítið vit á músík, áttu lag við þetta fallega ljóð ?? Það er spurning hvort þú þurfir ekki að tala við Stormskerið frænda minn hann semur örugglega fyrir þig fallegt lag við þetta þríræða ljóð en maður spyr sig ????

Þórarinn M Friðgeirsson, 6.2.2009 kl. 19:02

7 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Haha Tóti, takk kærlega fyrir hrósið, en ég held nú að þetta sé ekki nógu gróft fyrir Stormskerið! Hann myndi eflaust bara vilja breyta textanum, setja meira "fútt" í hann, kannski ekki ósvipað og hann gerðir fyrir einhverjum 17 eða 18 árum með Adam og syni hans sjö, sem breyttist í að "Saddam átti syni sjö..." en ekki orð úr þeim texta meir!?

En ertu þá með tengsl hingað norður eins og Sverrir, skyldur honum í móðurætt?

SVerrir annars fínn músíkant, en ætli ég myndi nú ekki bara sjálfur semja eitthvað við ef það væri málið!

Magnús Geir Guðmundsson, 6.2.2009 kl. 21:22

8 Smámynd: Þórarinn M Friðgeirsson

Heyrðu ég er skyldur honum í móðurætt mína en ég er kominn af kotbændum og galdrahyski að mér skilst langt aftur í ættir af snæfellsnesinu / úr Eyjarhreppnum og að ég best veit þá á ég ekki ættir að rekja norður né niður en maður veit aldrei, var ekki oft talað um að stór hluti íslensku þjóðarinnar væri rangfeðraður og því gæti maður þess vegna vera kominn af galdramönnum að norðan eða hottintottum frá frans en það er það skemmtilega í þessu að vita ekki neitt og vera nær nákvæmlega sama maður spyr sig.......

Þórarinn M Friðgeirsson, 7.2.2009 kl. 11:18

9 identicon

Þess vegna hef ég engan áhuga á ættfræði.........

Húnbogi Valsson (IP-tala skráð) 7.2.2009 kl. 11:26

10 identicon

Þetta er argasta klám - Svei ...

Jón (IP-tala skráð) 7.2.2009 kl. 18:14

11 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Hehe Húnbogi!

Þú segir ekki J'on minn!?

Magnús Geir Guðmundsson, 8.2.2009 kl. 00:29

12 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Þá er bara spurning minn velættaði tóti hovrt mamma þín sé skyld hans móður eða pabba!?

Magnús Geir Guðmundsson, 8.2.2009 kl. 00:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Pælt um heima og geima

Höfundur

Magnús Geir Guðmundsson
Magnús Geir Guðmundsson
Áhugamaður um flesta hluti.

Nýjustu myndir

  • wmftcs
  • mgg
  • ...mg2_251805
  • ...mg2_251804
  • ...mg2

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 218008

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband