Haha, dæmið snérist við og þar kom að því að Liverpool tapaði!

Jamm, þar kom að því að Rauði herinn laut í gras og þá fyrir neðsta liðinu Tottenham!
Og dæmið frá mörgum fyrri leikjum snérist aldeilis við, eftir að hafa leitt í 75 mínútur og átt að vera búið að skora allavega eitt mark í viðbót, tók gjafmildi og gáleysi við, sjálfsmark á silfurfati og svo sigurmark á lokamínútunum!
Chelsea því aftur efst á markatölu og ekkert við því svosem að segja, menn verða bara að herða sig upp, Meistaradeildin um miðja vikuna kjörin til að rétta aftur úr kútnum og svo heldur ballið bara áfram eftir viku!
Engin ástæða til að leggjast í þunglyndi vegna þessa, ó seisei nei!
Á hinn bógin svo glaður yfir öðrum sigri Steke í röð og þetta sögulegum gegn Arsenal, aldeilis frábært!
Chelsea og Man. Utd. á flugi, nema hvað ævintýri Tottenham gegn Arsenal endurtók sig næstum!
mbl.is Tottenham - Liverpool, bein lýsing
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Steingrímur Helgason

& ég sem ætlaði að vera góður við þig & samúðazt...

Steingrímur Helgason, 1.11.2008 kl. 21:14

2 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Æ, það hefði já veri gaman að gráta með þér, hvor okkar greindu hausa á öxl hins Steingrímur minn, en annars vegar gat ég ekki verið svekktur eftir tap minna manna svo mjög og hins vegar (sem hér vegur þyngra hvað þig varðar og grey Arsenalana) að einn minn kærasti vinur til aldarfjórðungs er gallharður Stoke city aðdáandi og var allavega á þeim tíma sem liðið var í eigu Íslendinga, þekktasti stuðningsmaður félagsins af íslensku bergi á svæðinu! Þess vegna gleðst ég frekar yfir þessum einstöku úrslitum en ella hefði verið og annað sigurlið átt í hlut!

Þykir í aðra röndina vænt um Skytturnar auk þess sem einn bræðra minna styður þá!

Magnús Geir Guðmundsson, 1.11.2008 kl. 22:38

3 Smámynd: arnar valgeirsson

átti nú reyndar von á því að liverpúllarar myndu þegja um þetta en þessi færsla er virðingarverð, því ég veit þú lást heima grátandi og bölvandi yfir óförunum.

tottenham virðist vera að vakna af blundinum og það var töff lökk fyrir þig. að þessu sinni sko, að þessu sinni.

arnar valgeirsson, 1.11.2008 kl. 23:59

4 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Að þessu sinni hefur þú bara rangt fyrir þér Addi minn, aldrei þessu vant! Þegar menn klúðra færum og eru í raun í öðrum klassa en andstæðingurinn, en vinna ekki, tapa meira að segja eins og þarna, þá er bara ekki hægt annað en að hrista hausin bara og hlægja að þessu!

Magnús Geir Guðmundsson, 2.11.2008 kl. 01:41

5 identicon

Velgengni liv springur bráðum eins og við höfum svo oft séð undanfarin 20 ár, Ruslalið, Liverpool fuck!!!

Diddi (IP-tala skráð) 2.11.2008 kl. 04:01

6 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Takk kærlega fyrir hlý og góð orð bubbi!

Magnús Geir Guðmundsson, 2.11.2008 kl. 15:57

7 identicon

Ekki vera að eigna mér það sem einhver Diddi skrifar.

Bubbi J. (IP-tala skráð) 3.11.2008 kl. 08:25

8 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

haha, enda mælir þú sjaldnast slík vinaryrði sem nafni þinn þarna gerði!

Annars vantaði líka hið klassiska og ómissandi J, auk þess sem þú ert nú "virkur hlekkur", svo þetta fór nú ekki mikið á milli mála. Að vísu var möguleiki að þú værir orðin bilaður og blindfullur, hangandi þetta um hánótt, en á því eru nú minni en agnarsmáar líkur hygg ég!

Magnús Geir Guðmundsson, 3.11.2008 kl. 15:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Pælt um heima og geima

Höfundur

Magnús Geir Guðmundsson
Magnús Geir Guðmundsson
Áhugamaður um flesta hluti.

Nýjustu myndir

  • wmftcs
  • mgg
  • ...mg2_251805
  • ...mg2_251804
  • ...mg2

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband