...Og okkur kannski ekki heldur!

Já, blessaður karlinn hann Árni er samur við sig, tæpitungulaus og orðhagur í þessari yfirlýsingu, þannig að já, eiginlega meiri "bragur" á henni en orðum Agnesar, ef þið skiljið hvað ég meina!?
En auðvitað er karlinn þarna einfaldlega já að stappa stálinu í sjálfan sig og ekki að undra, erfitt að þurfa að kyngja öllu saman eftir allt sem á undan gekk og hafa gefið út ákæru um meiðyrði. Ætla nú annars ekki efnislega út í þessa sálma nánar, nema hvað í einu hefur nú Árni alveg kolrangt fyrir sér.
"Barnið er löngu dottið ofan í" hvað varðar að skemmta skrattanum, hann fyrir lifandis löngu búin að vera að stunda þá yðju og líka nú þegar með þessu brölti varðandi Agnesi.
Og litla púkanum sem í mér býr, hefur svo sannarlega líka verið skemmt, það verður því miður að segjast eins og er í öllum annars alvarleika málsins!
Honum myndi ekki til dæmis svo mislíka í framhaldinu, að vera fluga á vegg þegar og ef Agnes flytur árna þennan "upprifjunar- og áminningarpistil", sem hún boðar.
mbl.is Ákvörðun Árna kemur Agnesi ekki á óvart
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sverrir Einarsson

Veistu ég held að minnið hennar Agnesar sé töluvert áreiðanlegra en minni fyrrv. Kvíabryggjuíbúans.

Held að Árna sé það ekki holt að Agnes fari að rifja upp farsann í sambandi við dúkinn fræga.

Sverrir Einarsson, 9.9.2008 kl. 17:44

2 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Takk fyrir það Sverrir, en fraukan segist nú sjálf ætla að rifja þetta upp við hann og stendur þá væntanlega við það blessunin!?

Magnús Geir Guðmundsson, 9.9.2008 kl. 21:05

3 Smámynd: Solla Guðjóns

Solla Guðjóns, 9.9.2008 kl. 22:22

4 identicon

Þetta er hið ágætasta skemmtiatriði.

Húnbogi Valsson (IP-tala skráð) 9.9.2008 kl. 23:41

5 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Sammála Húnboga!

Þessu ótengt:  Skemmtilegur þáttur sem var á Rás 1 í dag - sagan um leigubílstjórann í Stoke er dásamleg.

Lára Hanna Einarsdóttir, 10.9.2008 kl. 00:40

6 Smámynd: Rannveig H

Ég vildi ekki fleiri Árna,en vill samt ekki vera á 'Arna  En Agnesur meiga fjölga sér.

Rannveig H, 10.9.2008 kl. 10:04

7 Smámynd: Gulli litli

Þarf maður ekkert að borga inn á þetta leikrit?

Gulli litli, 10.9.2008 kl. 10:35

8 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Já, ekki laust við að visst skemmtanagildi sé að þessu, Húnbogi og Lára mín Hanna og það fyrir alla sem vilja og það já ókeypis Gulli, engin aðgangseyrir!

Þú segir það já Rannveig, sumir eru þó ekki heldur hrifnir af frammistöðu Agnesar í "leikritinu"!

Og takk fyrir hlekkin Lára, legg eyrun við.

Magnús Geir Guðmundsson, 10.9.2008 kl. 11:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Pælt um heima og geima

Höfundur

Magnús Geir Guðmundsson
Magnús Geir Guðmundsson
Áhugamaður um flesta hluti.

Nýjustu myndir

  • wmftcs
  • mgg
  • ...mg2_251805
  • ...mg2_251804
  • ...mg2

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 218054

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 15
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband