Vorvísutetur!

N'u held ég að ei lengur sé um að villast, vorið er smátt og smátt að fikra sig til okkar, allavega eru ýmis teikn á lofti um það hérna hjá mér í fagra höfuðstaðnum í norðri!
vinkona mín á Ísafirði, hun Ásthildur Cdsil var líka að sýna ótvíræða vorboða í kúlunni sinni fyrir vestan á sínu bloggi í gær, svo þetta er já allt að koma smátt og smátt og það jafnvel þótt enn geti auðvitað kulað og muggað úr lofti!
Setti litla vorvísu hjá vinkonunni góðu fyrir vestan í gær, orta upphaflega fyrir nokkrum árum, en núna örlítið breytta.

Hagurinn okkar nú hlýtur að vænkast,
er hlýnar í veðri og oftar skín sól.
Senn heilsar vorið og grundirnar grænkast
og gleðin í hjörtum kemst aftur á ról!

Og blessuð sólin hefur já glennt sig nokkuð hérna í morgun og á vonandi eftir að gera mikið af slíku á komandi vikum og ma´nuðum!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Brynja skordal

Hafðu ljúfa helgi minn kæri

Brynja skordal, 11.4.2008 kl. 11:46

2 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Þakka góða kveðju margfalda móðir á Skaga!

Magnús Geir Guðmundsson, 11.4.2008 kl. 12:09

3 Smámynd: Eva Benjamínsdóttir

Þú átt nú ýmislegt í handraðanum Magnús, þetta er mikil bjartsýnisvísa og ekki veitir af á vorum dögum. Góða helgi og áfram með sólskinið

Eva Benjamínsdóttir, 11.4.2008 kl. 17:26

4 identicon

Takk fyrir vísuna - og téða aðdáun á hjólasnilli undirritaðrar - ég veit ég er mest og best og gott að fleiri eru búnir að fatta það. Vona bara að þið hin farið ekki að fyllast sama mikilmennskubrjálæði og ég - mér finnst best að vera ein á toppnum.....ég og BÓ erum best, Bubbi og þið eruð bolurinn. ST 

k.e. (IP-tala skráð) 11.4.2008 kl. 17:35

5 identicon

Vor...á hverju byggirðu það minn kæri Magnús, ef ég vissi ekki að þú byggir fyrir norðan mig hefði ég haldið að þú værir sunnar á jarðarkringlunni

Bubbi J. (IP-tala skráð) 11.4.2008 kl. 19:00

6 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Kæra Eva!

Jájá, ég á ýmislegt í handraðanum og er kannski heldur ekki allur þar sem ég er séður! Þú og minn kæri bubbi, þetta er allt að koma, engin bjartsýni eða bið upp á von eða óvon, bara gangur lífsins og náttúrunnar! Og Bubbi minn, alveg fínasta veður hér í dag, ekki nefna það annað!

Takið bara mark á Guðjóni Viðari, hann veit hvað hann syngur!

Hehe Ke, er bara mikilmennskubrjálaður á öðrum sviðum. Ekkert að þakka annars, mín var ánægjan og hugarleikfimin!

Magnús Geir Guðmundsson, 11.4.2008 kl. 22:04

7 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

...Og þú og Bo?

Hélt þú værir ein á toppnum!?

Magnús Geir Guðmundsson, 11.4.2008 kl. 22:05

8 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Þú ert flottastur Magnús minn.  Já vorið er í loftinu, og það færist yfir okkur smátt og smátt, og að lokum..... kemur það alveg, knús á þig inn í daginn minn kæri

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 13.4.2008 kl. 12:15

9 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Síðbúnar þakkir frú Cesil, dagurinn í gær var ágætur, allt þér að þakka! En að ég sé flottastur, veit nú ekki alveg!?

Magnús Geir Guðmundsson, 14.4.2008 kl. 13:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Pælt um heima og geima

Höfundur

Magnús Geir Guðmundsson
Magnús Geir Guðmundsson
Áhugamaður um flesta hluti.

Nýjustu myndir

  • wmftcs
  • mgg
  • ...mg2_251805
  • ...mg2_251804
  • ...mg2

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 6
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 218006

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 15
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband