Þetta er "EKKI FRÉTT"!

N'u finnst mér fyrir alvöru vera farið að halla undan fæti hjá elskubestaMogga!
Hvenær í dauðanum hefur það fyrr talist frétt, að sól skíni á Akureyri, ég bara spyr?
Hún skín ALLTAF á Akureyri, það vita nú allir, en vilja bara ekki alltaf viðurkenna það En það kemur bara fyrir, að hún gerir það mismikið og svo hitt, að hún fær stundum smá fýuluköst og felur sig þá bakvið Vaðlaheiðina, en það er nú ekkert að marka slík smá frávik í samhengi heildarinnar!
Moggamenn eru því vinsamlegast beðnir að birta ekki svona "No News Nonesense" framvegis, ef þeir vilja ekki verða að eilífu athlagi!
Farin í síðkvöldssólbaðið mitt!
mbl.is Sólin skín á Akureyri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jens Guð

  Hehehe!  Hún er skemmtilega orðuð hjá þér þessi færsla.  Þegar ég sá fréttina datt mér í hug að nú þyrfti mamma að baka rúsínulummur og hella upp á sólarkaffi í Furulundinum.

  Á uppvaxtarárum mínum í Hjaltadal var það siðurinn þegar fyrst sást til sólar eftir áramót:  Að bakaðar voru rúsínulummur með kaffinu.  Það kallaðist sólarkaffi.

Jens Guð, 5.8.2007 kl. 22:02

2 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Jájá Jens minn, maður verður líka að "horfa á björtu hliðarnar" eins og Stormskerið söng svo vel um árið! (tja, söng kannski ekki vel þannig séð, en textinn allavega fínn!) þú og þinn oft á tíðum óborganlegi kaldhæðnishúmor líka glöggt dæmi um það! Jamm, sólarkaffin þekkjast víða þar sem Sunna blessunin lætur lítið á sér kræla vegna hárra fjalla allan veturinn, en því er nú ekki að heilsa í "Hamingjubænum" Akureyri!

Magnús Geir Guðmundsson, 5.8.2007 kl. 22:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Pælt um heima og geima

Höfundur

Magnús Geir Guðmundsson
Magnús Geir Guðmundsson
Áhugamaður um flesta hluti.

Nýjustu myndir

  • wmftcs
  • mgg
  • ...mg2_251805
  • ...mg2_251804
  • ...mg2

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (13.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 218047

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 18
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband