Sama gamla sagan!

Æ, veit ekki hvurt þetta lag eitt og sér veldur einhverjum straumhvörfum.
Strákar að klæmast undir rós og ekki, hvað skildi það nú hafa viðgengist lengi?
Blúsinn mótaðist snemma á sl. öld í vesturheimi.
þar sungu menn jú um sorgir sínar, en ekki síður um gleði, vonir og þrár!
Það síðastnefnda ekki síst umfjöllunarefnið, bersögult eða ekki. Stundum þó með frábærum myndlíkingum á borð við Little Red Rooster, en svo bara líka beint frá hjartanu, I Just Wanna Make Love To You!
Hvorugt neitt klám og satt best að segja held ég að vinirnir tveir hérna að neðan, Timberlake og "Íslandsvinurinn" 50 cent, geri í raun ekki meiri skurk með þessu lagi en áður hefur verið gert af stjörnum popps og rokks!
Undir rós eða ekki, I wanna Hold Yourt Hand með Bítlunum, eða myndbandið langa og alræmda Erotica með Madonnu, man einhver ennþá eftir því?
Nú eða bara "Allt á floti alls staðar" með Skafta Ólafssyni!
Haha, Leitum ekki langt yfir skammt, þetta er alltaf sama gamla sagan!
mbl.is Klámhundarnir Justin og 50 Cent
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Gamall Íslenskur sumarsmellur var eitthvað á þessa leið "Ég sé um hestinn, þú sérð um hnakkinn, við skulum ...."

að ógleymdum "ég ætla að ríða þér í nótt.." 

Fransman (IP-tala skráð) 8.7.2007 kl. 10:21

2 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Jájá,margt svo glatt verið sungið er grannt er skoðað!

rúnni Júll söng það fyrrnefnda og síðar Skriðjöklar síðar til vinsælda, en man ekki eftir hinu.

Magnús Geir Guðmundsson, 8.7.2007 kl. 15:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Pælt um heima og geima

Höfundur

Magnús Geir Guðmundsson
Magnús Geir Guðmundsson
Áhugamaður um flesta hluti.

Nýjustu myndir

  • wmftcs
  • mgg
  • ...mg2_251805
  • ...mg2_251804
  • ...mg2

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 6
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 218006

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 15
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband