Færsluflokkur: Bloggar

Blóðugt!

Ég er komin af bændum í báðar ættir, þó sérstaklega móðurmegin.
Er þessi fregn já sorgleg og missir bændanna sannarlega blóðugur, svo sterklega sé til orða tekið!
Hið gríðarmikla vatnsveður síðustu daga hfur greinlega silað inn í með ána, hvað sem svo öðru líður með ástæður þessa slyss!
mbl.is Um 100 kindur drukknuðu í Kálfá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mikill afreksmaður fallin frá!

Ásgeir Elíasson var sannarlega mikill íþróttamaður og tvímælalaust einn af farsælli þjálfurum okkar Íslendinga í fótboltanum!
Það er því full ástæða til að minnast hans með virðingu um leið og að harma hans sviplega fráfall.
Vil ég sérstaklega votta eftirlifandi eiginkonu hans, Soffíu Guðmundsdóttur, virðingu mína og samúð auk sonum þeirra tveim, en Soffíu kynntist ég aðeins fyrir tæpum 30 árum er við fórum saman auk fleiri í íþróttaferð með fötluðum til Dannmerkur.
Sú ferð var ánægjuleg og átti Soffía þar stóran hlut í að halda utan um hluta af keppendunum.
SEndi ég henni mínar innilegustu samúðarkveðjur!
mbl.is Leikið með sorgarbönd gegn Norður-Írum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ef ég væri kona..

...Þá væri ég alveg til í að vera í sporum fröken Cameron! En væri líka alveg til í að vera Hillary Clinton! En vildi ekki vera ein af fjölmiðlafraukunum sem sóttu um nýja upplýsingaembættið hjá Utanríkisráðuneytinu, en virðast bara ekki vera til í fregn Moggans fyrir helgi um málið! Bara nöfn sex karlumsækjenda nefnt, en ekki 17 kvenna!? Þetta las ég áðan hjá bloggvinkonu minni henni Svölu, farfuglinn.blogspot.com.
Og ef ég væri kona, myndi ég vilja giftast mér!
mbl.is Fyrsta konan í 522 ára sögu varðsveitarinnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Obbobobb, bíðum nú við!

Mikið getur nú oft verið gaman að lesa Moggann!
Hér er fréttin þó ekkert skemmtiefni, bruni á bústað og kannski ekki komin til að góðu, einhver ef til vill að hefna sín á Gunnari "Kópóbæjó"!?
En það er þetta með fyrirsögnina og síðan myndatextan.
Hvernig getur bústaður brunnin til grunna verið "ílla skemmdur" Það sem er brunnið til grunna er þá væntanlega og síðast þegar ég vissi, orði að ösku og því "ílla skilgreint sem ílla skemmt"
Eða hvað?
En fólk getur víst dæmt um það sjálft!
mbl.is Sumarbústaður í Grímsnesinu brann til grunna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sunnudagur sviptinga!

Sumir dagar eru viðburðaríkari en aðrir og það má segja um þennan annars veðursæla sunnudag, víðast hvar á landinu!
Þetta óhuggulega Stuðlamál, stórt rútuslys fyrir austan, árekstur í Hvalfjarðargöngunum, að ég tali nú ekki um "uppgötvunina miklu um sanna fegurð kvenna" sem ég blogga einmitt um hér að neðan, allt allt hendir þetta á stuttum tíma í dag og maður já veit ekki hvað á sig stendur veðrið!
Og tapið í kvennalandsleiknum, bætir svo gráu ofan á svart!
mbl.is Tveim bjargað úr eldsvoða á Stuðlum í Reykjavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÁKALL! - Allar Bloggvinkonur og aðrar Íslandsmeyjar sameinist!!!

Já, með rödd sem væri hún hrópandans í eyðimörkinni, fullum hálsi og öllum lífs og sálarkröftum, ákalla ég ykkur, allar mínar fögru og föngulegu Bloggvinkonur og aðrar sem mig þekkja, lesa og elska!

N'u ER STUND SANNLEIKANNS LOKSINS RUNNIN UPP!

Rífið upp málbandið og horfist í augu við það sem þið alltaf hafið þráð að vita...

...Í HVERJU FELST FEGURÐIN!

Hikið ekki við, smegið málbandinu um mjaðmir og mitti og sjáið hversu skammt eða langt þið eigið að takmarkinu eina og sanna, ekki 007 heldur..

07!!!

En sannlega segi ég yður!
SEndið ykkar vitra og vænasta vini ykkar sannleika, hikið eigi við það, vþí í sannleikanum felst ekki bara ein fegurð, sú ytri, heldur ekki síður og frekar..

...SÚ YNNRi!

Ó nei, hikið ei, Gurrí, Helga Guðrún, SVala, Jenfó, Ólína, Auður og allar hinar, hræðist ei, heldur sýnum samstöðu í
GÖNGUNNI EFTIR GRÝTTUM VEGI SANNLEIKANS!!!


Stórtíðindi!

ÉG get ekki sagt að fréttanna flór,
forvitni minni sé alltaf í hag.
En nú eru tíðindi nokkuð svo stór,
Nýbýlavegi er lokað í dag!
mbl.is Nýbýlavegur lokaður í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alveg ágæt frétt, en..

... ég velti því hins vegar fyrir mér hvort ákvörðun verði ekki líka TEKIN um að TAKA höfund þessarar fyrirsagnar í bakaríið!?
mbl.is Ákvörðun tekin um stofnun Listmenntaskóla Íslands tekin á næsta ári
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jón Ásgeir Sigurðsson útvarpsmaður látinn!

Jón Ásgeir Sigurðsson, útvarps- og fréttamaður til margra ára hjá Ríkisútvarpinu, er látin langt fyrir aldur fram!
Jóns minnist ég fyrst sem fréttaritara Útvarps í New York, en þar var hann um árabil og flutti oft mjög góða og ígrundaða pistla og það líka gagnrýna, um bandariskt þjóðfélag. Ekki munu þeir stundum hafa verið öllum að skapi, en Jón lét engan bilbug á sér finna. Heimkomin m.a. frá námi vestra, byrjaði hann að vinna sem starfsmaður á RÚV og gerði hygg ég allar götur síðan, m.a. sem dagsrárgerðar- og fréttamaður. ERu mér margir þættir hans minnistæðir um ýmis mál, djúp og skýr röddin sömuleiðis eftirminnileg. Jón Ásgeir var svo virkur í félagsmálum, var um langt skeið formaður starfsmannafélags ríkisútvarpsins held ég.
EFtirlifandi eiginkona hans er Margrét Oddsdóttir, sem fram til þess að RÚV ohf. var stofnsett fyrr á þessu ári, var yfirmaður innlendrar dagskrárgerðar á rás eitt!

En hvað?

Já, ég bara spyr, en hvað var annars í gangi?
Þetta auðvitað hið ágætasta "lögfræðitorf" sem hér má lesa, Héraðsdómur fær skömm í hatt fyrir að taka ekki á tilfærslunni, skal gjöra svo vel að segja af eða á hvort svo skuli vera eður ei, konan skuli fara eða vera á sínum stað!
En ég endurtek, en hvað með "Rót vandans"? Hvað gerði hjúkkan og við hvern? VAr fórnarlambið karl eða kona?
Klappaði hún á rass?
N'u eða kleip?
Káfaði í klof?
Eða kitlaði??
Ég er að spyrja fyrir hönd þúsunda ekki satt!?VArð reyndar sjálfur "næstum því" fyrir kynferðislegu áreiti á sjúkrahúsi, en það kemur nú þessu ekkert við!
mbl.is Hæstiréttur fellir úr gildi frávísun dómkröfu í héraði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Pælt um heima og geima

Höfundur

Magnús Geir Guðmundsson
Magnús Geir Guðmundsson
Áhugamaður um flesta hluti.

Nýjustu myndir

  • wmftcs
  • mgg
  • ...mg2_251805
  • ...mg2_251804
  • ...mg2

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 218027

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband