"Skömmustulistinn" minn og MJ!

Minn gamli félagi hann Bubbi, (bubbinn.bloggar.is) birti um daginn fróðlegan lista úr tímaritinu fræga Rolling Stone, yfir sveitir sem margur hefur dáðst af í laumi að sögn, en ekki farið of hátt með.Kallast þetta á útlenskunni "Guilty Pleasure", sem ég kalla bara "skömmustu" svona stutt og laggott.
Datt svo bara í hug að gleðja strákin og senda honum svona lista, með ýmsum flytjendum og lögum er mér fannst eiga við og komu upp í hugan að þessu tilefni.
Michael Jackson var einmitt eitt nafnið, eins og lesa má hér að neðan, en vart hafði ég sent Bubba listan og hann birt, en garmurinn snéri upp tánum! Kenni mér þó ekki um, en þetta var ansi örlagaríkt að rifja þetta upp með hann og fleiri, eða þannig!
Annars er fréttaflutningurinn nú eftir dauða hans og viðbrögðin víða, t.d. hér á blogginu, alveg yfirgengileg og ofurviðkvæm, svo hálfa af því hálfa væri nóg!Lítið hins vegar við því að segja og fólk verður bara að fá að haga sér kjánalega ef það vill!

Þegar ég hugsa til baka er ég á efri efri barnsárum, ef svo má taka til orða og síðan unglingsárum, var að mótast í mikin harðrokkara er hlustaði mest á Heep, Purple, Zeppelin og síðan Slade, Black SAbbath og Iron maiden o.s.frv. koma furðulega mörg lög jafnframt upp í hugan, sem gripu mann líka, en hreinlega DAUÐASYND hefði verið að láta vinina vita af!
Hérna koma nokkur, ekki þó í neinni sérstakri tímaröð, man árin heldur ekki svo glöggt eða útgáfuár laganna.

Tina Charles - I Love To Love.
-Man vel enn þann dag í dag, er einn bræðra minna kom með plötuna með þessu lagi og byrjaði að spila daginn út og inn! Bölvað diskó auðvitað, en viðurkenni nú, að ekki aðeins fékk maður þetta lag á heilan, heldur fannst sveininum unga söngkonan svo sæt!

Dr. Hook - Sylvia's Mother.
-Hef aldrei skilið það, en þetta helv. væmnislag lét mig bara ekki í friði mitt í rokk og bárujárnsupplifunum,eins og flest lögin hérna allt eldri bræðrum að kenna að þetta gerðist!

ABBA - hellingur af lögum, t.d. Fernando, Vúlli vú, Arrival, Money, Money, Money..o.s.frv.
- Hygg að margir hafi sömu sögu að segja,maður mátti ALLS EKKI viðurkenna að þetta annars fína popp ætti möguleika upp á pallborðið, þvert á móti var það mikill "töffaraskapur" að blóta þessu "Væluskjóðupoppi" En, ég laumaðist svo líka á myndina þarna um árið, hundleiðinleg reyndar, nema hvað eins og með tinu, stelpurnar voru svo sætar!

Human League - Don't You Want Me Baby.
-maður gat í orði þolað þetta á unglingaböllunum, en maður lifandi, þetta var eitt allramesta draslið! og raunar finnst mér þetta frekar þunnur músíkþrettándi í dag, en þetta lag og nokkur önnur sitja samt enn í huganum.

Judy Garland - Somewhere Over the Rainbow.
-Held að hefði einvher félaganna vitað að undir þessu lagi felldi ég tár harðjaxlinn, gjörsamlega heillaður ef ég slysaðist til að heyra þetta, þá hefði ég líkast til orðið fyrir alvöru einelti!
En mörg orð þarf ekki að hafa um þetta, með sígildari lagaperlum amerisku söngvamyndanna, úr Galdrakarlinum í Oz!

Þú & ÉG - Í Reykjavíkurborg.
-Svipað og með tinu Charles, fékk þetta diskó Gunna Þórðar bara á heilan, skil ekki hvers vegna enn í dag auk þess að verða skotin í Helgu Möller! (urðu annars ekki flestir stráklingar það á þessum árum?)

10cc - svipað og með ABBA, fullt af lögum sem urðu vinsæl, (flest þó af plötunni þarna með kafaranum framan á með drukknuðu stelpuna í fanginu, man ekki nafnið bubbi og man laganöfnin reyndar fæst líka nema á hinu frábæra Wall Street Shuffle, sem var þó ekki á þessari plötu held ég!)

Foreigner - I've Been Waiting For A Girl LIke You.
- Já, ehem, þetta annars ofurvinsæla lag gerði mann alveg grænan á endanum, stundum spilað hundrað sinnum, en var svona á jaðrinum að mátti viðurkenna hrifningu á eða að manni þætti söngvarinn "Raddmjói" flottur. Þó þótti í það heila ekki svo hallærislegt að hrífast af hljómsveitinni.

Roxy Music - Dance Away.
-Man hversu leiðinleg og asnaleg þessi sveit þótti, en þetta lag tók mig með trompi, bræðradæmi, en held ég hafi ekki heyrt lagið fyrst fyrr en nokkru eftir að það kom fyrst út.

Jóhann G. - Don't Try To Fool Me.
-Eitt af flottustu íslensku popplögunum frá upphafi, frábært lag, en það fór nú ansi hljótt um hrifninguna á unglingsárunum og hún mátti ekki vitnast.

BA Robertson - Flight 19
-Skoski háðfuglinn þótt nú bara hálfvitalegur minnir mig í félagahópnum, en þetta lag og fleiri heilluðu mig nú og platan þessi auk annarar á eftir ef ég man rétt.

Michael Jackson - Billie Jean & Beat It
-þarf nokkuð að útskýra þetta frekar, nema hvað að menn gáfu sjéns vegna Stevie VAi og síðar Steve Stevens, enenen, að sýna MJ sjálfum einhverja aðdáun, tja, það þótti bara vont mál! (og þykir nú reyndar enn!)


mbl.is Lík Jacksons flutt til Neverland
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Steingrímur Helgason

Dona, dona Maggi minn.

Við erum bara breyzkir í því að viðurkenna að fíla dona lög sem að allir hinir fíluðu líka.  Ég viðurkenndi ABBA blætið mitt í fyrra & tapaði bara hálfum vinahópnum fyrir.

'Good riddance of bad rubbizh..'

Tek undir með alla þezza lagazúbu, hún á í mér líka.

Til að bæta á zmá gráma;

Bee Gees & KIZZ ázamt Eaglez...

Allt saman eðalmúzzíg !

Steingrímur Helgason, 1.7.2009 kl. 01:08

2 Smámynd: Inga

he he, ótrúlega fyndið. Ég er viss um að allir eigi svona skömmustulista :)

Inga, 1.7.2009 kl. 10:08

3 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Hahaha STeini minn, góður, en já, margt ágætt með Örnunum og Gibbagibbbfræðrum, þó falshettustællinn hafi nú alltaf farið í mínar taugar og gerir að hluta enn!En Kizz? Það kemur nú nokkuð á óvart, en í mínum ungdómi skiptust lómarnir einmitt oftar en ekki í aðdáun á þeim og svo einvherju mýkra "Drasli"!

Takk kærlega fyrir þitt innlegg Inga og já þetta er mikið rétt hjá þér!

Annars vekur eftirnafn þitt athygli mína, frænka mín ein tók nefnilega upp á þeim óskunda sem aldrei skildi verið hafa er hún giftist manni sínum frá Köln í´Þýskalandi,Rainer Jessen, að taka upp nafnið hans! En mikil ósköp jú, þetta allt til gamans gert.

Já minn góði Eyjólfur, blessaður sendu Bubbanum lista og þá ekki bara endilega með lögum heldur nefndum plötum kannski ef þú hefur þær í huga. Er þér svo annars sammála í stórum dráttum, nema hvað að ef eitthvað er, þá getur dæmið hafa snúist við frá æskuárunum, sumt frá þeim þannig að maður skammast sín bara pínu að hafa haft gaman af er það er rifjað upp í dag!

Spurning hvort ekki væri hægt líka að búa til slíkan lista!?

Magnús Geir Guðmundsson, 1.7.2009 kl. 22:33

4 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

hehe ég hafði nú lúmskt gaman af þessu ELO-diskói líka og þess má raunar geta, að fyrsta platan sem ég keypti mér í Reykjavík, var einmitt með ELO!

Magnús Geir Guðmundsson, 2.7.2009 kl. 16:46

5 identicon

   Góða kvöldið Magnús eða jafnvel góðan daginn.  Ég er sammála þér um mörg þessara laga en ekki öll.  En  aldrei nokkurn tíma hef ég skammast mín fyrir að halda uppá nokkurn skapaðan hlut.  Ekki lög, ekki fólk ekki neitt.  Þetta er allt partur af "programmet"  leið okkar till vits og þroska.  Með vinsemd og virðingu.

Sólveig Margrét Magnúsdóttir (IP-tala skráð) 4.7.2009 kl. 04:03

6 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Sæl Sólveig margrétt og þakka þér fyrir þessi nokk svo heimspekilegu orð.

Ekki skal ég draga í efa það sem þú segir, að þú hafir ekki skammast þín fyrir eitthvað sem hrifið hefur hug þinn og hjarta á mismunandi þroskastigum ævinnar, en spurningin er hins vegar hvort þú hefur ekki viljað deila því endilega með öðrum eða þorað, því það hentaði ekki tíðarandanum eða andrúmsloftinu sem þú hrærðist í? (eða með öðrum orðum vinahópnum)

Út á það nnánar tiltekið gengur þetta anannars, sem ber þó reyndar ekki að taka mjög alvarlega auk þess sem mín þýðing er ekki endanilega sú besta.

Takk aftur fyrir innleggið.

Magnús Geir Guðmundsson, 4.7.2009 kl. 23:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Pælt um heima og geima

Höfundur

Magnús Geir Guðmundsson
Magnús Geir Guðmundsson
Áhugamaður um flesta hluti.

Nýjustu myndir

  • wmftcs
  • mgg
  • ...mg2_251805
  • ...mg2_251804
  • ...mg2

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 30
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband