Bara tylliástæða!

http://visir.is/article/20090617/LIFID01/464995874 Jamm, það held ég nú góðir ha´lsar, að sé nú málið, en ekki það sem kemur fram í frásögninni á visir.is og ég er að stelast hérna til að vísa á! Málið er auðvitað það, að Davíð sjálfur, drengurinn knái, hefur aldrei og mun aldrei ráða við að spila með tvo stóra bolta, bara einn! Annars er það svo heldur mikið í lagt, að tala um "ný brjóst" á kvinnunni, eins og þarna er gert í frásögninni,þetta eru jú sömu yndin eftir sem áður þó fyllingar og fleira kannski hafi nú verið fjarlægt, umfangið e.t.v. komið nálægt hinu upprunalega núna? Hins vegar skil ég ekkert í dömunni fögru, að flækjast þetta í Ammrikkunni til þess arna, ætti sem og aðrar slíkar bara að skutlast sem snöggvast hingað til lands, yrði bæði ódýrara nú fyrir þær og svo fengju þær miklu betri þjónustu þykist ég vita sumstaðar!

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Eygló

Hún er farin að skipta um brjóst svona til að passa við fötin. Ja hérna!

Eygló, 17.6.2009 kl. 17:15

2 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

J'ajá,ja hérna og jemmin eini! En ég er samt að reyna að trúa því, að þetta sé af "Fjölskylduástæðum",Davíð geti bara ekki "sinnt þessu umfangi"!?

Annnars má það fljóta með, að alla jafna eru brjóstaminnkanir ekki fegrunaraðgerðir eða þær framkvæmdar af fegrunarástæðum, heldur af skynsemis- og heilsufarsástæðum, ekki allir "karlpungar" til dæmis sem gera sér grein fyrir því!

Magnús Geir Guðmundsson, 17.6.2009 kl. 19:03

3 Smámynd: Eygló

Held ekki að aðgerð frúarinnar hafi ekki verið annað en vingulsháttur, fyrst að stækka. Svo æ,æ, of stór... minnka aftur.

Hárrétt hjá þér, minnkanir eru afar sjaldan eða aldrei í pjattskyni, heldur af heilsufarsástæðum og skynsemi eins og þú skrifar.  Þú færð eitt stig í frádrátt frá karlpungsku!

Eygló, 17.6.2009 kl. 23:37

4 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Hahaha,takktakk, ekki á hverjum degi sem maður fagnar slíkum hlut sem frádrætti, þú gerir mér mikin heiður, reyni að standa undir honum! En er nokk fróður já um "pjattið", fegrunaraðgerðirnar af sérstökum ástæðum.

Magnús Geir Guðmundsson, 18.6.2009 kl. 00:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Pælt um heima og geima

Höfundur

Magnús Geir Guðmundsson
Magnús Geir Guðmundsson
Áhugamaður um flesta hluti.

Nýjustu myndir

  • wmftcs
  • mgg
  • ...mg2_251805
  • ...mg2_251804
  • ...mg2

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 27
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 27
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband