Endurtekið veisluefni!

SAnnarlega já frá Stanford Bridge um daginn, en nú bara full af klúðri hjá þeim Rauðu, sem fyrir ólánsskap voru ekki búnir að klára dæmið í fyrri hálfleik, höfðu þá yfirburði og áttu að skora ein fjögur allavega!
Nú er þetta því enn betur og þægilegrar kannski í höndum MU, þó dettur mér enn ekki í hug að telja möguleikana úti, af og frá!
En synd að svona mörg mistök í einum leik skuli eiga sér stað, fleiri held ég bara en í tíu leikjum til samans þar á undan!?
mbl.is Liverpool í toppsætið - Arshavin með fernu fyrir Arsenal
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Skarfurinn

Hvernig færðu út að Liverpool sé komið í toppsætið ??

Skarfurinn, 21.4.2009 kl. 21:13

2 identicon

með því að reikna út markamun ;)

Frelsisson (IP-tala skráð) 21.4.2009 kl. 21:15

3 identicon

Það gildir það sama nú og alltaf,ekki búið fyrr en flautan flautar af í síðasta lei vertíðar.enfyrir utan það spennandi leikur með fullt af tækifrum sem voru misjafnlega vel og illa nýtt.Sendi allavega blómin ekki strax til MU MU.

Ólöf Björnsdóttir (IP-tala skráð) 21.4.2009 kl. 21:20

4 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Rétt hjá Frelsisson, Liverpool telst vera ofar á betri markatölu, hún ræður ef lið eru með jafn mörg stig.

Magnús Geir Guðmundsson, 21.4.2009 kl. 21:21

5 identicon

Sannarlega frábær leikur og Rússinn á flugi hjá mínum mönnum.Óskiljanlegt að hafa hann ekki inná á móti Chelsea í bikarnum.Vona að Liverpool nái að klára deildina,en þeir gera það reyndar ekki með svona varnarleik !!!

Kem diskunum til þín á morgun eða hinn,farin að hlakka til að heyra þitt álit á honum.

Binni D (IP-tala skráð) 21.4.2009 kl. 21:24

6 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Rétt hjá þér líka Ólöf og takk fyrir innlitið. Nema hvað, að það er víst réttara að orða það svo, að þetta sé ekki búið fyrr en DÓMARINN flautar af, eða eins og ég hef sjálfur margsagt, "Þetta er ekki búið fyrr en það er búið"

Magnús Geir Guðmundsson, 21.4.2009 kl. 21:25

7 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Og nei ekki ástæða til að senda blóm enn.

Takk fyrir það Binni, komdu bara, best síðdegis eða um kvöldið. (ert annars meiri prakkarinn að lauma þessu að hérna!)

Og mikið rétt, enn og aftur, menn vinna ekki titil með svona "Gjafamarkaði" eins og mér virtist þetta vera og Arnar garmurinn tíundaði vel í lýsingunni.

Magnús Geir Guðmundsson, 21.4.2009 kl. 21:30

8 Smámynd: Brattur

... hálf svekkjandi að Arsenal skildi fá á sig þetta klúðurs mark í blálokin... mér fannst Arsenal betra liðið...

Áfram United...

Brattur, 21.4.2009 kl. 21:35

9 identicon

@ Brattur: Fannst þér Arsenal vera betra liðið? Eins og þetta sé eitthvað álitamál. Það er ekki einu sinni hægt að hlægja að þessu, en ansi dæmigert fyrir manu mann að láta svona frá sér. Tölfræðin lýgur ekki:

skot: liv 26 - ars 8

horn: liv 12 - ars 0

varin skot: liv 0 - ars 10

Pepe varði sum sé ekkert  af þeim 4 skotum sem hittu rammann (sem voru reyndar öll óverjandi). Pólverjin knái bjargaði Arsenal hins vegar frá niðurlægingu. Van der sar gat ekki státað af því á old traffor um daginn...

Einar (IP-tala skráð) 21.4.2009 kl. 21:49

10 Smámynd: Steingrímur Helgason

Flottur leikur tveggja skemmtilegustu liðanna í deildinni, enda prúðmannlega leikinn, annað en þegar eitthvað minna liðið í mannheztaborg á í hlut yfirleitt með leikaraskap & stjörnuztælum.

Ég er sáttur við að gefa eftir stigið & hefði verið sáttur við að tapa öllum, ef það myndi duga til tilitlz fyrir púlara.

Steingrímur Helgason, 21.4.2009 kl. 21:49

11 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

TAkk fyrir tölfræðina Einar, ég missti af henni. Brattur er bara að reyna að vera stríðin, en það gengur ekki.

STeini minn,þú mælir manna heilastur, er farin að hallast að því að í brjósti þér leynist GULLHJARTA!

Magnús Geir Guðmundsson, 21.4.2009 kl. 22:45

12 Smámynd: Brattur

Já, ég er pínu stríðinn... viðurkenni það... samt fannst mér Arsenal betra liðið... meiri að segja var eitt mark dæmt af Arsenal vegna rangstöðu sem var rangur dómur... Liverpool því stálheppnir að fá 1 stig út úr leiknum...

Ég hélt að Steini væri með gullhjarta... en held að hann sé bara með silfurhjarta eftir þetta komment...

Brattur, 21.4.2009 kl. 23:42

13 Smámynd: Oddur Helgi Halldórsson

Verð að viðurkenna að Lífiðerpúl var betra í leiknum. Vörnin okkar virkaði óörugg og stundum eins og áhorfendur. Við höfum allt of oft verið í þessarri stöðu, sem lífiðerpúl var í,í kvöld,  að eiga miklu meira í leiknum, en tapa eða ná aðeins jafntefli. En, það eru MÖRKIN sem telja. Rosalega var rangstaðan tæp, sem dæmd var á Bentner. Var ekki þar komið fimmta markið okkar??? Tóku þið eftir því að annar þrumufleygur rússans var með hægri, en hinn með vinstri!!

Oddur Helgi Halldórsson, 21.4.2009 kl. 23:57

14 identicon

Þessi leikur skipti öllu máli fyrir Liverpool en minna fyrir Arsenal. Hefði það verið á hinn veginn þá hefði Arsenal tekið þetta létt.

 Því miður er Rússinn Arshavin ekki með á móti Man.Utd í meistaradeildinni. Það getur gert útslagið til að Man.Utd komist áfram.

Svo góður er hann.

Már (IP-tala skráð) 22.4.2009 kl. 02:03

15 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

E skiptir engu Már, allir sanngjarnir og vitrir menn eins og Steini og Oddur viðurkenna það bara sem við blesti og tölfræðin að ofan staðfestir. En þetta er bara gamla sagan, þú vinnur ekki leiki ef þú nýtir ekki færin betur. Arshavin mikill fengur fyrir Arsenal og mikill skotmaður já greinilega, en í þremur tilfellum getur hann jú samt þakkað mistökum Livemanna að hann fékk þessi færi til að skora.

Magnús Geir Guðmundsson, 22.4.2009 kl. 18:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Pælt um heima og geima

Höfundur

Magnús Geir Guðmundsson
Magnús Geir Guðmundsson
Áhugamaður um flesta hluti.

Nýjustu myndir

  • wmftcs
  • mgg
  • ...mg2_251805
  • ...mg2_251804
  • ...mg2

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband