Jafnteflistímabilið mikla!

J'a, þótt Liverpool geri ekki fleiri jafntefli það sem eftir er móts, verður þetta tímabil örugglega kallað þessu nafni! Á sl. tímabili voru jafntefli líka að spila stóra rullu, en þetta er nú eitthvað sem hlýtur að vera að nálgast met!?
Þýðir annars lítið að svekkja sig, nóg vísu af tækifærum til að klára leikin eftir jöfnunarmarkið og greinileg vítaspyrna virðist hafa verið tekin af þeim rauðu, auk fleira, en það gengur auðvitað ekki til lengdar að reiða sig á að redda sér á síðustu augnablikum leikjanna, það hef ég nú talað um fyrir löngu.og fjarvera Gerrards og Alonso skipti heldur ekki sköpun, fannst eiginlega alveg eins verið hægt að tala um fjarveru Aggerrs úr vörninni og að hinn ungi Inzia var heldur ekki með.
Minnkandi líkur á titlinum, það segir sig sjálft, heppnin líka gengin í lið með United ofan í kaupið, svo líkurnar eru þeim mjög í hag. En samt, tólf leikir eftir og hinn kankvísi bloggvinur vor hann tóti, vill meina að hlutirnir fari að gerast í mars!?
mbl.is Enn eitt jafnteflið hjá Liverpool á Anfield Road
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Björn Jónsson

Magnús Geir.

Mars á þessu ári eða ????

Björn Jónsson, 22.2.2009 kl. 17:43

2 Smámynd: Þórarinn M Friðgeirsson

Nei drengir Kúlan  mín góða sem að vísu hefur ekki komið með réttan spádóm síðan 14 árum fyrir krist hefur sagt mér að ljós anfield verði bjartari og bjartari eftir því sem líður á árið í sama mund og að yfir Manchester falli myrkrið sem aldrei fyrr. Ég reyndar sé fyrir mér að Benni bjarti sé á útleið frá félaginu og að við fáum einhvern massaklassa vitleysing með bein í nefinu ?? Sé fyrir mér að þetta sé ofurtöffarinn Mourhinnnnnjó. Við töpuðum þó ekki ef það er einhver huggun ????
Meistari góður það er rétt hjá þér að það er engin afsökun þó það hafi vantað Geirharð eða Alla hansa nei ekki vælir Rauðnefur þó Fleksnes sé meiddur. Den tíð den sorg. Nú er að taka Raunverulega Madrídarliðið á Miðvikudaginn. Kv. Totinn

Þórarinn M Friðgeirsson, 22.2.2009 kl. 17:52

3 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Vonum það besta Tóti minn, en svona er boltin og sem ég sagði fyrir nokkru já, að liðið virðist vart geta tapað, þó í lagið hefði verið ef einn þessara leikja sem hafa endað jafnir, hefði tapast en á móti flestir ef ekki allir hinir unnist, þá væri staðan önnur. Þú ert nú búin að svara fyrri athugasendinni, enda tengdist hún meir þér en mér auk þess sem of djúpt á henni var hvort sem er fyrir mína parta!

Magnús Geir Guðmundsson, 22.2.2009 kl. 18:45

4 Smámynd: arnar valgeirsson

æ æ. það þarf að vinna leikina já. sé nú ekki morinho mættan til liverpool. djöfull kæmi það á óvart.

arnar valgeirsson, 22.2.2009 kl. 19:50

5 Smámynd: Hjörtur Herbertsson

Nei þið þarna púllarar,eini titillinn sem fer í hús til ykkar verður svo kallaður jafntefliskóngstitill.Þið skuluð bara láta ykkur dreyma að púllarar slái madridinga út úr meistaradeildini,þar sem þeir eru á glimrandi siglingu núna.

Hjörtur Herbertsson, 22.2.2009 kl. 20:28

6 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Nei Addi, sé það reyndar ekki heldur fyrir mér, en Tóti er svo ansi sprækur strákur svo ég skal nú ekki segja...

Ekki vera svona æstur Mr. HH, mótið er ekki búið.

Magnús Geir Guðmundsson, 22.2.2009 kl. 21:01

7 identicon

Sýnir bara að Loserpool eru með ömurlega breidd á meðan United er með besta hóp í heimi. Gerrard og Alonso frá og þá geta þeir ekki unnið. United með 10 menn frá vegna meiðsla þ.á.m. Rooney, Rio, Evra og Brown, samt halda þeir hreinu 13 leiki í röð eða svo og vinna alla leikina sína.

Björn (IP-tala skráð) 23.2.2009 kl. 16:49

8 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Óttalegt Bjarnarbull, Liverpool vann t.d. MU að mestu eða öllu leiti án Torres og Gerrard og hefur auk þess tapað færri leikjum en rigningarborgarliðið þrátt fyrir allt!Meiri heppni, færanýting og þar með viss einbeiting, skilur þarna að en ekki breiddar- eða getumunur beinlínis. Þessu eru allir rólegir og marktækir sparkspekingar sammála!

Magnús Geir Guðmundsson, 23.2.2009 kl. 22:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Pælt um heima og geima

Höfundur

Magnús Geir Guðmundsson
Magnús Geir Guðmundsson
Áhugamaður um flesta hluti.

Nýjustu myndir

  • wmftcs
  • mgg
  • ...mg2_251805
  • ...mg2_251804
  • ...mg2

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 30
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband