UPP-SKERU-HÁTÍÐ!

Haha, það mætti nú já aldeilis segja mér það, að svo muni verða og það í ýmsum skilningi, gestir sem mæta munu til dæmis án minnsta vafa uppskera góða og skemmtilega kvöldstund ef að líkum lætur!
Á sjálfur örugglega eftir að næla í bókina hjá Hjálmari, hann keypti nú á sínum tíma bók af mér blessaður, sem m.a. innihélt einmitt slatta af limrum!
En Baldur hinn göldrótti er eins og kannski margur man enn, ekki neinn nýgræðingur reyndar í "uppskurðum", því án mikils vafa er eitt hans allrafrægasta töfrabragð einmitt uppskurður sem hann framkvæmdi í sjónvarpinu um árið til að sýna fram á að einvherjar kraftaverkalækningar af slíkum toga og ættaðar frá Filippseyjum, væru ekki "allar þar sem þær væru séðar"!
Mjög eftirminnilegt er Baldur framkvæmdi þetta og það með miklum tilþrifum, blóði með meiru og allt hvað eina!
N'u er hins vegar stóra spurningin hvort gamla aðferðin eða einvher ný með enn meiri tilburðum verði á "boðstólnum"?
ég hygg svo, að ævisaga Baldurs sé einmitt líka að koma út núna, svo þessi viðburður tengist því eflaust líkt og útgáfa hjálmars á "Gömlu limmunum"!? (flott nafn!)
Hvað er svo betur við hæfi hérna, en einmitt enda þetta á limru og þá með pælingum um hugsanlega STÓRAÐGERÐ!?

Verður með töfranna tækni,
já, tímamótaframsækni
borð á borin,
burtu nýskorin
Heilinn í Hjálmari lækni!?


mbl.is Læknir verður „skorinn upp“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Hólmdís Hjartardóttir, 18.12.2008 kl. 19:35

2 Smámynd: Hildur Helga Sigurðardóttir

Minn ágæti Magnús Geir, vantar þið ekki góðan uppskurð ?

Hildur Helga Sigurðardóttir, 19.12.2008 kl. 03:18

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Góðour eins og venjulega.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 19.12.2008 kl. 09:41

4 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Takk Hólmdís, en verst hvað þú ert orðlaus alltaf!

Haha Hildur Helga, eftir allan niðurskurðin veitir mér ekkert af honum kannski, tala nú ekki um ef þú myndir framkvæma hann!

Takk mitt göfuga Vestfjarðavíf, er allavega sæmilegur!

Magnús Geir Guðmundsson, 19.12.2008 kl. 13:54

5 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Bíddu bara þangað til ég fæ málið góurinn

Hólmdís Hjartardóttir, 19.12.2008 kl. 17:02

6 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Heyrist þú nú alveg hafa það, ert bara svona hógvær og feimin við "Sjarmatröllið mig!?

Magnús Geir Guðmundsson, 19.12.2008 kl. 18:11

7 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Að ósekju mætti skera hann Magnús upp og fjarlægja úr honum heilabúiö, hann kæmist vel af án þess, þar sem það er honum bara til trafala sem stendur.

Greta Björg Úlfsdóttir, 20.12.2008 kl. 11:21

8 Smámynd: Þórarinn M Friðgeirsson

Einungis færð þú inn comment frá konum
kannski þær kunni þig karl minn að laga
eitt veit ég þó að þú ert víst að vonum
með heilann í standi- ja flestalla daga ??

Maður spyr sig tótinn 

Þórarinn M Friðgeirsson, 20.12.2008 kl. 16:25

9 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Haha, takk Tóti og vonandi verðum við hressir og kátir eftir leikin á morgun!?

Stuðlasetningin reyndar dálítið "út og suður" í vísunni, en asskoti fín viðleitni hjá þér samt!

Og mín ágæta frú Greta, ert bara hress og alltaf í stuði heyri ég!?

Og svo orðin þetta skotin í Geiranum Ólafs líka, alveg yndislegt bara!Skál fyrir þér!

Magnús Geir Guðmundsson, 20.12.2008 kl. 23:59

10 Smámynd: Þórarinn M Friðgeirsson

Ég veit það meistari góður að bæði stuðlar og höfuðstafir hafa verið að vefjast fyrir mér í hvert skipti sem ég set vísukorn á blað og ég er ákveðinn í því að þrátt fyrir það þá mun eitt og eitt "vísn"detta á bloggið ekki spurning. Jú nú verðum við að treysta á að Liverpool sýni hvað þeir geta en ég verð að viðurkenna að ég ber kvíðboga fyrir þessum leik en það geri ég reyndar alltaf fyrir leiki hjá okkar mönnum en nú verður Geirharður að sýna úr hverju hann er gerður eins og Gauí Þórðar hefði sagt. kv.Tótinn

Þórarinn M Friðgeirsson, 21.12.2008 kl. 14:41

11 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Ekki gerði hann það þðó því miðir, klúðraði góðu færi sem gæti hafa orðið sigurmarkið!?

En Svo fór sem ég var nær hundrað prósent viss um, Chelsea gerði aðeins jafntefli við Everton, sama jafna baráttan því upp á teningnum áfram. Aston Villa hins vegar unnið fjögur stig á toppliðin tvö og virðist til alls líklegt áfram.

Magnús Geir Guðmundsson, 22.12.2008 kl. 22:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Pælt um heima og geima

Höfundur

Magnús Geir Guðmundsson
Magnús Geir Guðmundsson
Áhugamaður um flesta hluti.

Nýjustu myndir

  • wmftcs
  • mgg
  • ...mg2_251805
  • ...mg2_251804
  • ...mg2

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband