Eitt vekur sérstaka athygli.

ER nú ekki mikill áhugamaður um skoðanakannanir, fylgist ekki mikið með þeim og tek þeim flestum með góðum fyrirvara. Þessi sem aðrar sem þó eru einna mest athyglinnar virði og vandaðastar, gefa manni ágæta vísbendingu um ástandið í dag, en meiri þýðingu er nú eiginlega ekki að ræða.
Ríkisstjórnin er nú orðin rúnlega ársgömul og hefur á ýmsu gengið hjá henni og einstökum ráðherrum, það hefur nú ekki vantað, auk þess sem hún horfir nú fram á meiri erfiðleika í sínu starfi en þekkst hafa síðan um og eftir 1990. 1999 voru reyndar svipaðar blikur á lofti varðandi til dæmis atvinnuleysi og nokkra óvissu í hagstjórn og þá voru líka gerð þau reginmistök sem nú hafa m.a. valdið áhyggjum, að gjaldeyrisforði Seðlabankans var ekki styrktur og prófessor Þorvaldur Gylfason lagði til, en ekki var hlustað á. En erfiðleikarnir nú eru mun meiri, verðbólga eykst mikið og vandin er samfara svipuðum erfiðleikum víða um heim sem kunnugt er í kjölfar lækkunar á hlutabréfum, olíuverðshækkunum o.s.frv.
Nema hvað, þessi könnun sem flestar aðrar frá því ríkisstjórnin var mynduð, vekur þó m.a. í þessu ljósi helst athygli vegna þess að fylgi S helst og hefur haldist býsna stöðugt og það alveg við kjörfylgið, öfugt við D, sem hefur rokkað nokkuð, en þó dalað meir en hitt sem best sést nú, um 5 eða 6% minna frá kjörfylginu.því er allavega hingað til, eða þetta rúma ár sem stjórnin hefur lifað, ekki staðist hin annars nær bjargfasta regla, að sá flokkur sem fari með D í stjórn gjaldi fyrir það með minnkandi gengi og meðbyr hjá þjóðinni!
Nokkuð já, sem fróðlegt verður að sjá hvort haldist meðan stjórnin lifir. ERfiðleikarnir í borginni eiga að líkum einhverja sök gæti ég trúað, að fylgi D er minna, en þó held ég að það geti ekki verið nema að hluta til.
Annað sem svo nokkra athygli vekur hjá mér, eða væri gaman að vita, er hvernig þessi 11% skiptast á milli stjórnarflokkanna, þ.e. mismunurinn á samanlögðu fylginu sem styður flokkana annars vegar og stuðningsmönnum stjórnarinnar hins vegar.
Þingmenn flokkanna hafa sumir hverjir verið duglegir að tala "út og suður" ef þeir hafa verið óánægðir með gjörðir hins flokksins, þannig að hvernig þetta liggur með kjósendurna væri gaman að vita.
Svo væri gaman að vita hversu mikil eða lítil áhrif úrskurður umhverfisráðherra með umhverfismatið á fyrirhuguðu álveri á Bakka við Húsavík, hafi haft, það mælist nú ekki með hérna hygg ég.
En bara svona léttar pólitískar pælingar á ljúfu og rólegu verslunarmannarhelgarkveldi, aðstæður og ástand á vafalaust eftir að breytast og það í báðar áttir, fram og til baka í næstu könnunum ef að líkum lætur!
mbl.is Fylgi við ríkisstjórn minnkar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: tatum

það er nú eins og útsala að tala um það að borgarmálin, ein og sér túlki þessa könnun.  Ekki hefur sést mikið til ráðherra í ríkisstjórn Íslands, hvort sem um sjálfstæðismenn eðs samfylkingu hefur verið að ræða, kannski í heimsreisu, í einkaþotum!  það eina sem hægt er að segja í stöðu okkar kjósenda,...   Vertu viss um að kjósa "rétt" í næstu kosningum!!!!!  Ég held að það sé sami rassinn undir öllum sem eru í framboði!!!!   þeir virðast allavega vera falir fyrir einkaþotum auðmanna, sem þeir auðguðu sjálfir....... en þurfa að hegða sér núna eins og þriðja flokks mella..... undirgefnir auðmönnum, sorgarsaga!!!!

tatum, 2.8.2008 kl. 21:53

2 Smámynd: Jens Guð

  Það er full ástæða til að taka skoðanakönnunum með fyrirvara.  Sum skekkjumörk lærast af langri reynslu.  Til að mynda koma D-listi og Vinstri grænir jafnan betur út í skoðanakönnunum en kosningum.  Þessu er öfugt farið með F-lista og Framsókn.  Þeir koma betur út í kosningum en skoðanakönnunum.

  Hvað F-listann varðar er talið að skekkjumörkin liggi í því að hann nýtur hlutfallslega mest fylgis meðal sjómanna.  Skoðanakannanir ná ekki til þeirra.  Þeir eru úti á sjó.      

Jens Guð, 2.8.2008 kl. 21:53

3 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Hér var ekkert rætt um að borgarmálin túlki eitt né neitt, hvað þá að sagt væri að þau réðu ein og sér einvheru. vinsamlegast lesa betur.

Mikið rétt há þér félagi Jens, að skoðanakannanir hafa löngum túlkað fylgi hinna ýmisu flokka í báðar áttir og öfugt við það sem svo komið hefur upp úr kössunum. Þó hefur þetta breyst með B í tvemur síðustu kosningum, fyrir tveimur árum til sveitastjórna og fyrir ári í alþingiskosningunum. Að flokkurinn myndi tapa miklu fylgi kom þá vel fram í könnunum eins og svo varð raunin, nema hvað með þeirri smáuppsveiflu sem varð í Reykjavík þannig að Björn Ingi íllu heilli slapp inn, sem nú í ljósi reynslunnar fyrir borgarbúa, eiginlega aldrei skildi verið hafa!

Því miður svo fyrir þína menn, þá fer nú sjómennum fækkandi, þeirra lóð vegur því æ minna er ég hræddur um og held að 5% sé nokkuð nærri lagi nú að minnsta kosti!

(en að fjá mig um F geri ég nú lítið og þá varlega, verð að halda friðin við bloggvini, sem einmitt eru ansi margir opinberir stuðningsmenn og fulltrúar flokksins!)

Magnús Geir Guðmundsson, 2.8.2008 kl. 22:32

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég vil beinharðar kosningar og það þeim loknum og ríkisstjónin er fallin þá fagna ég í 15 daga.

Eða lengur.

Jenný Anna Baldursdóttir, 2.8.2008 kl. 23:48

5 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

og hvað ætlar þú að kjósa Jenný mín?

Hugsanlegt að stjórnin geti sprungið, en eitthvað annað mynstur yrði nú reynt áður en menn færu í kosningar.EF marka má svo hina síkátu "Leidí Lómatjörn", Valgerði SVerrisdóttur í fréttum í dag, þá myndi henni ekki leiðast að vera orðin aftur iðnaðarráðherra að koma upp álveri á Bakka vi Húsavík.

Magnús Geir Guðmundsson, 3.8.2008 kl. 00:02

6 Smámynd: Jens Guð

  Maggi minn,  láttu bara vaða á gagnrýni á FF.  Við þolum það.  FF fær 5% í skoðanakönnunum en allt upp í 11%.  Framsóknarflokkurinn kemst hinsvegar aldrei aftur inn í borgarstjórn Reykjavíkur.  Í síðustu kosningum slefaði Björn Ingi inn á uppkeyptu fylgi útlendinga,  Paul Ramses og fleiri.

  Jenný kýs VG sem er hið besta mál.  Allt er betra en íhaldið.

Jens Guð, 4.8.2008 kl. 01:50

7 Smámynd: Jens Guð

  Allt upp í 11% í kosningum átti það að vera.

Jens Guð, 4.8.2008 kl. 01:54

8 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Takk kærlega Jens minn, en gagnrýni á "þitt pólitíska fley" er nú engin sérstök, nema að þar er nú ansi misjafn sauðurinn sem oft mikið rásar og másar auk þess sem kvennlegan þokka vantar alveg á ásýnd og forystu flokksins einkum og sér í lagi. Ætli hann sér gott framhjaldslíf, verður hann að breikka sína skýrskotun, ella mun fleyið varla styrkjast, heldur ryðga og gliðna hratt í sundur!

Þetta var nú bara svona smá glens til Jennýar, allir vita nú hvar kellan stendur hygg ég.

Magnús Geir Guðmundsson, 4.8.2008 kl. 16:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Pælt um heima og geima

Höfundur

Magnús Geir Guðmundsson
Magnús Geir Guðmundsson
Áhugamaður um flesta hluti.

Nýjustu myndir

  • wmftcs
  • mgg
  • ...mg2_251805
  • ...mg2_251804
  • ...mg2

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 31
  • Frá upphafi: 217984

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 31
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband