Meistaraheppnin lætur ekki að sér hæða!

Jamm, líkt og '99 þurftu leikmenn Man. Utd. á sannarlegri meistaraheppni að halda til að sigra og Liverpool sömuleiðis 2005, þó sigur Rauða hersins gegn Milan hafi nú verið mun makalausari!
Svo má segja, að Chelsea hafi verið sjálfum sér verstir kannski, misnotuðu mörg færi, en óheppni fyrirliðans í vítaspyrnukeppninni var þó auðvitað rosaleg, að renna til í skotinu eftir að markið blasti við, Zar farin í rangt horn!
En svona er nú bara boltinn, sem ég hef margoft sagt áður, en það toppaði nú alveg kaldhæðnina að fyrrverandi leikmaður bæði Liverpool og Arsenal, Amelka skildi misnota vítið sem réði úrslitum!
En ákveðnum útvöldum Manchester Unitedáðdáendum (þeir vita hverjir þeir eru) óska ég bara innilega til hamingju, heppnin var ykkar megin í kvöld og þá er bara ekkert hægt að nöldra yfir því!
mbl.is Man. Utd Evrópumeistari
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: arnar valgeirsson

þoli ekki helvítis skumsarana og óska engum til hamingju. er sko enginn chelsea maður en djí.... hvað ég hélt með þeim í kvöld.

skums betri í fyrri hálfleik en chelsea í seinni. fannst þetta ekki réttlátt og er hundfúll.

arnar valgeirsson, 21.5.2008 kl. 23:09

2 Smámynd: Steingrímur Helgason

Með skemmtilegri fótboltaleikjum sem ég hef séð undanfarin árin, bauð upp á allt sem að slíkir geta upp á boðið.

Gat farið á hvorn veginn sem er, en gratjú með þína.

Steingrímur Helgason, 21.5.2008 kl. 23:23

3 Smámynd: Solla Guðjóns

hemm horfiðiekki á leikinn en einhver fögnuður var á

Solla Guðjóns, 21.5.2008 kl. 23:39

4 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Hehe Arnar, þú bregst nokkuð líkt við og bróðir minn, sem þolir ekki derringin í sumum "Uniteddurum" enda er hann Arsenalmaður eins og þú STeingrímur minn!En sjáðu til Arnar minn, örfáar hræður þekki ég sem eru svo "ógæfusamar" að trúa á "Rauðu djöflana", fólk sem stendur mér nærri, svo ég hefða mér stillilega, þó ég hugsi kannski ekki alveg eins fallega!

Hóhó Solla, öll bara að koma til og talar skýrt og greinilega loksins þegar þú tekur til ma´ls. Það kann ég vel að meta og bara besta kveðja á gleðiheimilið!

Magnús Geir Guðmundsson, 21.5.2008 kl. 23:55

5 identicon

Hahaha poolara nöldurpistill dauðanns sem endar síðan "en það er ekki hægt að nöldra yfir því". Segðu mér að markið sem United fékk á sig hafi ekki verið mesta óheppni með kikksuðu skoti sem hefur viðkomu í 2 varnarmönnum, endar í miðju bakinu á Rio og markvörðurinn búinn að renna til á velli sem var tyrfður í ranga átt, jújú chelsea átti sín stangarskot og terry bjargaði á línu en svona er boltinn

 Takk kall gerðir kvöldið ennþá betra :D

Kári (IP-tala skráð) 22.5.2008 kl. 00:18

6 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Kári bara ofsaglaður og allt í lagi með það! Menn bulla þá reyndar líka stundum, en það er sömuleiðis allt í lagi!

Magnús Geir Guðmundsson, 22.5.2008 kl. 01:03

7 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Takk fyrir frómar hamingjuóskir bæði hér og á öðrum vettvangi, minn kæri!  

Lára Hanna Einarsdóttir, 22.5.2008 kl. 01:36

8 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Ekkert að þakka gyðja, minn er heiðurinn!

Magnús Geir Guðmundsson, 22.5.2008 kl. 02:22

9 Smámynd: Brynja skordal

Jeesssss mínir menn unnu hafðu ljúfan dag

Brynja skordal, 22.5.2008 kl. 08:49

10 identicon

"You make your own luck!"

Good karma í gangi þarna

Karma (IP-tala skráð) 22.5.2008 kl. 11:25

11 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

TAkk fyrir það Brynja mín, mun eiga góðan dag og til lukku með sigurinn!

Karma, Chelsea voru fyrst og síðast sínir eigin "ógæfusmiðir" í leiknum!

Magnús Geir Guðmundsson, 22.5.2008 kl. 12:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Pælt um heima og geima

Höfundur

Magnús Geir Guðmundsson
Magnús Geir Guðmundsson
Áhugamaður um flesta hluti.

Nýjustu myndir

  • wmftcs
  • mgg
  • ...mg2_251805
  • ...mg2_251804
  • ...mg2

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband